Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 28

Fréttablaðið - 25.08.2007, Síða 28
H var hittust þið fyrst og hverjar eru ykkar minn- ingar um þann fund? Ef þið yrðuð að skipta um hlut- verk í einn dag – hvað mynduð þið gera í líkama hvors annars? Páll Ásgeir: Já, ég man eftir því. Ég tók eitt sinn viðtal við Sveppa. Hvaða ár var það? Sveppi: Í nóvember 2003. Þegar nýbúið var að velja mig sjónvarps- mann ársins. Páll Ásgeir: Eða, þú varst nýbúinn að láta þjóðina velja þig sem sjón- varpsmann ársins. Sveppi: Stóra svindlmálið – þetta var alveg yndislegur tími. Ég hef nú ekki rekist mikið á hann síðan þetta var, en ég veit alltaf hver hann er og hugsa með sjálfum mér þegar ég sé hann: „Já, þetta er gæinn sem tók við mig viðtal, alveg rétt – hvað, helvíti veit hann mikið. Já, þetta er greinilega eng- inn vitleysingur.“ Páll Ásgeir: Ég veit svo sem ekki hvort ég myndi gera eitthvað annað í líkama Sveppa en það sem ég er vanur – fara út að hlaupa og svo framvegis. En jú, jú, ég myndi sjálfsagt líka hlaupa niður Lauga- veginn og hrella fólk. Sveppi: Bara svo þú vitir það þá er ekki mikið hægt að gera með þenn- an líkama. Hann er ekki hannaður til margs, nema einmitt bara að fíflast. En af því ég veit að Páll Ásgeir er göngugarpur og hefur gengið allan fjandann myndi ég líklega ganga upp á eitthvert gott fjall. Ég er nefnilega svo latur að ganga að ég þarf kannski bara eitt gott spark í rassinn og þá myndi þetta byrja að rúlla. Getur það verið? Páll Ásgeir: Já, það er málið. Byrja á einu fjalli. Esjan er fín. Þú ert kannski klukkutíma að fara upp að steinunum. Nema harðjaxlarnir sem nota Esjuna til að þjálfa sig – þeir fara svona tvo, þrjá hringi, upp og niður að steinunum – hlaup- andi. Sveppi: Bara upp og niður Esjuna? Páll Ásgeir: Já. Sveppi: Fyrir hvað eru þessir menn að þjálfa sig? Kenýa-maraþonið? En já, ég myndi líka fara á tónleika, því hann er svo hávaxinn. Ég myndi sjá svo vel á sviðið. Páll Ásgeir: Ég er fimmtugur svo hvað haldið þið eiginlega að ég sé búinn að fara oft í bíó? Samt heyri ég í hverri einustu bíóferð, þegar ég er sestur, fólkið fyrir aftan mig segja: „Eigum við að færa okkur? Sérð þú eitthvað?“ Hefjum svo leika á kjúklingi. Hann er orðinn vinsælli á borðum þjóðar- innar en lambakjötið. Hafið þið ykkar eigin skýringar á þessari þróun? Hvort mynduð þið taka með ykkur gám af kjúklingi eða lambi á eyðieyju? Hvað finnst ykkur almennt um mataræði þjóð- arinnar? Sveppi: Á mínu heimili er kjúkl- ingur mun vinsælli, enda hægt að matreiða hann á svo margan hátt. Páll: Þetta er ekki þróun sem kemur mér neitt sérstaklega á óvart, enda heilsutengt – minni fita í kjúklingi og allt það. Líklega tengt heilsuæðinu. Sveppi: Svo er líka svo gott að narta bara í hráan kjúkling á kvöldin og svona. Páll: Já, já. Á eyðieyjuna held ég að ég myndi taka með mér lamba- kjöt því öfugt við kjúklinginn er hægt að borða það hrátt. Sveppi: Góður punktur. Mætti ég taka með mér lifandi kjúkling? Bara svo mér skyldi ekki leiðast? Páll: Hvað mataræði þjóðarinnar varðar sýna tölur að við stefnum sömu leið og Ameríkanar. Offita fer að verða eitt stærsta heilsu- farsvandamál þjóðarinnar. Tut- tugu til þrjátíu prósent þjóðarinn- ar þjást af offitu og maður þarf ekki annað en að fara hér upp á næsta götuhorn til að sjá að þetta er rétt. Sveppi: Maður rekst á feitabollu allavega einu sinni á dag. Páll: Við áttum frábært tækifæri til að lýsa Ísland McDonald‘s Free Zone á heimsvísu, en við slepptum því. Ég hef aldrei farið inn á McDonald‘s á ævinni og mun aldrei gera. Sveppi: Og þess vegna er hann líka gangandi upp á fjöll – annað en ég sem dett þarna inn öðru hvoru. Dóttir mín hrópar upp „McDonald‘s!“ þegar við keyrum framhjá. Þetta heitir skyndibiti og maður fer þarna inn stundum þegar mikið hefur verið að gera og maður er nýbúinn að sækja í leikskólann og er svo að hlaupa í eitthvað annað fljótlega. Hvað gerir Páll Ásgeir þegar allt er í pati og hann hefur ekki tíma? Þetta er svona gæi sem sýður sér eitt ýsuflak og slafrar því í sig. Páll Ásgeir: Það eru til hollir skyndibitar – sem eru búnir til úr alvöru mat. Það er til dæmis hægt að fá sér Subway ef þú vilt að ég nefni vörumerki. Við erum hins vegar að taka þátt í því að gera allar höfuðborgir heimsins eins með því að leyfa McDonald‘s, Burger King og fleiri stöðum að vaða yfir okkur. Nú eru bankarnir nýbúnir að halda veglega tónleika þar sem helstu listamenn þjóðarinnar tróðu upp. Hefðuð þið viljað sjá þessum pen- ingum eytt á annan hátt í nafni bankans? Hvert var besta atriðið? Hvað olli vonbrigðum? Sveppi: Var þetta ekki ágætis hug- mynd bara? Páll Ásgeir: Þetta samband við- skiptavinar og banka er flókið. Þeir okra á okkur og við leyfum þeim það. Skuldir heimilanna eru að aukast og bestu viðskiptavinir bankanna eru þeir sem skulda mest. Og þeir sem eru að draga á eftir sér mörg hundruð þúsund króna yfirdráttarheimild, sem þeir borga 20 prósenta vexti af – ef þið vissuð það ekki – þeir eru allra bestu viðskiptavinirnir. Og það er fólkið sem stendur undir þessum tónleikum. Sveppi: Þannig að þetta voru í rauninni ekki fríir tónleikar. Páll Ásgeir: Nei, það væri mjög mikil einföldun að segja það, því það voru þeir alls ekki. Ég held að það besta sem bankinn geti gert fyrir viðskiptavini sína sé að gefa þeim góð kjör og lága vexti. En bankinn getur ekki haft vit fyrir fólki. Það er jafnmikið manns eigið mál og bankans að ganga með myllustein um hálsinn í formi himinhás yfirdráttar. Sveppi: Mann sundlar þegar maður heyrir af bönkum sem kannski fyrsta ársfjórðung hafa hagnast um einhverja 15 millj- arða. Páll Ásgeir: Einmitt – og þá réttir einhver smælingi upp höndina og spyr: „En getið þið þá ekki lækkað vextina hjá okkur sem skuldum ykkur svona mikið?“ Bankarnir segja nefnilega að einstaklings- viðskipti séu orðin svo lítill hluti af viðskiptum bankans að þau skipti nánast engu máli fyrir reksturinn. Sannleikurinn er hins vegar sennilega sá að það eru samt einmitt smælingjarnir sem standa undir hagnaðinum. Einhvers stað- ar í myrkviðum bankans drögum við hjólið sem knýr þetta áfram. En það vilja bankarnir ekki viður- kenna. Sveppi: Mér heyrist þessi maður hafa mun sterkari skoðanir á þessu en ég. Ég missti af báðum tónleikunum en pabbi sagði að Bubbi hefði verið bestur og Stuð- menn verstir. En Stuðmenn hafa örugglega ætlað sér þetta – þú Sjáum feitabollu einu sinni á dag Páll Ásgeir Ásgeirsson tók viðtal við Sverri Þ. Sverrisson, betur þekktan sem Sveppa, þegar sá síðarnefndi var valinn sjónvarps- maður ársins. Sveppi hefur stundum séð Pál Ásgeir síðan þá, til að mynda í spurningaþætti, og oft verið hvumsa yfir því hvað Páll Ásgeir veit mikið. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti félagana og ræddi við rithöfundinn og skemmtikraftinn um Stuðmenn, Veðurstofueinelti og sýslumanninn á Selfossi. Sveppi: Maður hlustar á textana hans og pælir virkilega í þeim. Hann er bestur í heimi að nota erlend tökuorð, búa til nýyrði og svo framvegis. Páll: Og allar kynslóðir sem á eftir koma læra texta Megasar og nýyrðin. Þetta er maðurinn sem kenndi okkur að segja spáðu í mig og smælaðu framan í heim- inn. Maður sér ekki Sigur Rós leika þetta eftir. Sveppi: Attsjú-ú. Páll: Nei, það er ekki alveg eins. Sveppi. Sææææ- ljón.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.