Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 32
Hyundai i30 er bíll sem stílað-
ur er inn á Evrópumarkað. i30
er fínasti bíll en það er eins og
eitthvað vanti.
Hvað eiga kvikmyndirnar Twins,
Twin Dragon, Big Business og
Parent Trap sameiginlegt? Jú, þær
fjalla allar um tvíbura sem aðskild-
ir hafa verið í fæðingu en mætast
svo aftur á miðri lífsleiðinni.
Hvernig kemur það Hyundai i30
við? Sjáið til. Einu sinni fyrir ekki
svo langa löngu í fjarlægu landi er
nefnist Suður-Kórea fæddust tveir
bílar: i30 og cee`d. Þeim var stíað í
sundur rétt eftir fæðinguna og
settir í fóstur hjá tveimur bræðrum,
Hyundai og Kia. Þar ólust þeir upp
þangað til þeir loksins komust á
götuna árið 2007 þar sem þeir, loks-
ins segja sumir, mættust á Miklu-
brautinni. Hyundai i30 og Kia cee`d
eru nefnilega nær sami bíllinn.
Nóg um það í bíli. Hyundai hefur
verið í nokkurri sókn undanfarið
og með nokkrum vel heppnuðum
nýjum bílum hefur fyrirtækið náð
að losa sig við druslustimpilinn að
mestu. Bílarnir koma vel út úr bil-
anakönnunum víðast hvar og það
verður að segjast eins og er að
þeir eru ódýrir.
Nú á að nýta meðbyrinn og
sækja inn á Evrópumarkað af
hörku. Breyta á nafnakerfi
Hyundai og fara svipaða leið og
BMW, Audi, Citroën og Benz hafa
farið. Nöfnin munu samanstanda
af bókstaf og tölustaf og er fyrsta
slíka nafnið i30. i30 fellur í flokk
C-bíla, það er að segja hlaðbaka
líkt og Ford Focus, VW Golf og
Toyota Corolla (nú Auris).
i30 er ágætlega útlítandi bíll á
afskaplega látlausan hátt. Öfugt
við gamla Hyundai Accent, er bíll-
inn vel byggður og ber með sér að
bílaframleiðandinn hafi þroskast
og stefni nú á markaðshóp sem til-
búinn er að eyða meira í bílana
sína.
Sama er uppi á teningnum inni í
bílnum, látlaus og stílhrein inn-
réttingin er viðkunnanleg og þó
mælaborðið beri þess augljós
merki að vera upprunnið í austan-
verðri Asíu gengur það vel inn í
heildarmyndina.
i30 býður upp á ágætis aksturs-
eiginleika. Hann er mýkri en syst-
kin sitt cee`d án þess þó að verða á
nokkurn hátt óstöðugri, eiginlega
þvert á móti. Dísilvélarnar sem
boðið er upp á eru sprækar en
bensínvélarnar eru ekki jafn
spennandi kostur. Þær eru ein-
faldlega ekki nógu kraftmiklar.
Stærsti galli i30 er hins vegar
sjálfskiptingin. Hún er eins og
eitthvað sem þeir áttu á lager og
er hún illa til þess fallin að færa
Hyundai upp í virðingarskalanum.
Sorglegt og í raun frekar furðu-
legt þar sem passað hefur verið
upp á að allt annað sé í lagi.
Þegar á heildina er litið er
Hyundai i30 afskaplega sam-
keppnishæfur bíll. Hann er hins
vegar ekki mikið meira en það.
Það er eins og hönnuðir Hyundai
hafi vandað sig svo mikið við að
gera allt rétt að þeir hafi gleymt
að taka einhverja áhættu, áhættu
sem gert hefði bílinn að einhverju
öðru en enn einum hlaðbaknum.
i30 fyrir Evrópumarkað
Jeppadekk
ALORKA • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Betra verð á
heilsársdekkjum
235/65R17, kr. 12.900
245/70R17, kr. 13.900
265/70R17, kr. 14.900
275/60R17, kr. 15.900
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" 17" og 18".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 70753
Nánar á jeppadekk.is
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.
G
C
I A
LM
AN
N
AT
EN
G
SL
-
G
R
EY
C
O
M
M
U
N
IC
AT
IO
N
S
IN
TE
R
N
AT
IO
N
AL
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.mazdabrimborg.is
mazdabrimborg.is
Skoðaðu nýjasta
pallbílinn frá Mazda.
Mazda BT-50. Smelltu
á mazdabrimborg.is.
Gerðu góð kaup.
Komdu í Brimborg.
Vertu Mazda.
Nýr Mazda
Mazda BT-50 4x4 DoubleCab. Verð frá
2.890.000 kr.*
*Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Smelltu á