Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 38

Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 38
hús&heimili BÓKASTOÐ er nauðsynleg í hillurnar í barnaher- berginu þar sem mikið er af bókum. Barnabækur eru nefnilega af öllum stærðum og gerðum og erfitt að halda þeim á sínum stað í hillunni. Þessi fallega bókastoð fæst í Hnokkum og hnátum á Skólavörðu- stíg og hægt er að fá snaga í stíl. Bókastoðin kostar 1.490 kr. barnaherbergið „Langömmubróðir minn, Bjarni Pálmason úr Skálavík, á að hafa smíðað þennan skáp ásamt fleiri húsgögnum,“ segir María Péturs- dóttir kaup og smíðaáhugakona um þennan forláta, fallega furuskáp sem hún notar undir kjólana sína og annað fínerí. María hefur sérstakt yndi af gömlum furuhúsgögnum og segist deila þeim áhuga með móður sinni. „Við höfum verið að sanka að okkur skápum og kommóðum hér og þar, jafnvel gömlum hurðum til að afsýra og gera upp. Svo dílum við um þetta fram og aftur. Ég kannski finn einhvern skáp og spyr hvort hún vilji taka hann eða hvort ég eigi að gera það og svo framveg- is,“ segir María og bætir við að með þessu byggi þær smátt og smátt upp erfðagripasafn sem nýtist af- komendunum. „Þó að við smíðum kannski ekki húsgögnin sjálfar þá setjum við engu að síður mark okkar á þau með því að gera þau upp,“ segir María sem gerðist þó eitt sinn svo fræg að smíða borð þar sem hún tók grunndeildina í trésmíðanámi Iðnskóla Reykjavíkur. „Það var ákveðið skylduverk- efni að smíða taflborð en ég fór í uppreisn og smíðaði mitt með lúdói á annarri hlið í stað þess að gera myllu. Þetta forláta lúdóborð er svo orðið „erfðagripur“ í herbergi sonar míns í dag,“ segir hún og hlær. Hlutir með sögu höfða meira til Maríu en aðrir og það má glöggt sjá í verslun hennar, þar sem hver hluturinn er öðrum sérstak- ari. „Ég er mikill dótasafnari enda finn ég oftar fyrir meiri sál í göml- um hlutum en í Ikea-plastinu. Mér finnst líka skemmtilegt að fram- leiða og endurhanna gamla hluti og þannig hef ég búið til margs konar minnisbækur úr gömlum bókakáp- um, áróðursplaköt, ísskápasegla og annað skemmtilegt. Oft er líka ákveðinn húmor í liðnum áratugum sem flestir hafa gaman af og því verður þetta bæði fallegt og fyndið í senn,“ segir þessi handverkskona að lokum. margret@frettabladid.is Smíðagaldur Maríu Péturs Hún á ættir sínar að rekja til vestfirskra handverksmanna sem gerðu smíðagaldra úr gamalli furu. Ásamt móður sinni safnar hún að sér gömlum furuhúsgögnum, afsýrir og pússar upp, en þess utan rekur María verslunina Ranimosk á Laugavegi þar sem gamal- dags og húmorískir hlutir ráða ríkjum. María Pétursdóttir hefur yndi af því að safna að sér gömlum furuhúsgögnum og gera þau upp, en svo virðist sem þessi áhugi sé henni í blóð borinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON INUKU-STÓLLINN eftir Ryan Frank er unninn úr endurunnum plastpokum og endurunnu áli og er hannaður undir áhrifum frá afrískri menn- ingu. Hönnuðurinn Ryan Frank í London er einn þeirra sem taka verndun jarðarinnar alvarlega og reyna að endurnýta hluti í hönnun sinni. Mjög mikið er um að ungir hönnuðir eins og Ryan notist við endurvinnslu í hönnun sinni, enda hefur umræðan um umhverfismál sjaldan verið meira áberandi. endurvinnsla Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók þessa mynd á heimili Úlfars Eysteinssonar matreiðslumanns . Útgáfu- félag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@ frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 5175724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. Hinar vinsælu dönsku bókahillur komnar aftur Tekk - Kirsuberja - Hlynur Hringið og biðjið um mynda- og verðlista 25. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.