Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 42
hús&heimili
Við bryggjuna í Kópavogi vekur
bygging með burstabæjarlagi at-
hygli. Þar hafa listamenn og aðrir
góðir borgarar komið sér fyrir
með verkstæði á neðri hæð og
íbúðir undir súð. Einn þeirra er
Úlfar Eysteinsson, kokkurinn góð-
kunni á Þremur frökkum. Honum
fannst ekki mikið mál að fá blaða-
mann og ljósmyndara í heimsókn.
„Gefðu mér bara smá stund til að
þurrka af. Ég hef ekki verið heima
í viku og því er heimilið eins og
sandkassi,“ segir hann í símann.
Þegar keyrt er niður á Kárs-
nesið verða orð Úlfars skiljanleg,
húsið stendur í rykmekki. Þar er
nefnilega steypustöð við hliðina.
Allt er þó orðið hreint og fágað hjá
Úlfari þegar hann býður í bæinn
og komnir gestir í kaffi. Þeir eru
fljótir að kveðja og ætla greini-
lega ekki að lenda á mynd.
„Ég flutti hingað 2003 en hér
var byrjað að byggja 1997. Ég er sá
eini eftir af frumbyggjunum. Síð-
asti móhíkaninn,“ segir Úlfar bros-
andi. „Ég tími ekki að fara héðan,
enda kann ég því vel að geta horft
út á sjóinn og svo á ég líka trillu
hér í höfninni sem ég leik mér á.
Upphaflega var húsnæðið hugsað
sem veiðarfærageymslur og ver-
búðir fyrir okkur sem vorum hér
með báta en það var alltaf verið að
nauða í mér um að opna hér kaffi-
stofu. Þá vildi ég hafa flóttaleið og
því komu svalirnar. Svo spurði ég
hvort ég mætti ekki líka vera með
lægri lofthæð niðri og meiri uppi.
Jú, það var sjálfsagt. Nú er þetta
samþykkt sem 120 fermetra íbúð
í iðnaðarhúsnæði og niðri er ég
með frystigeymslu fyrir veitinga-
staðinn.“
Heimilið er líkast safni því þeir
veggir sem ekki eru hallandi eru
þaktir málverkum og myndum.
Þegar haft er orð á því kemur
Úlfar með skýringu. „Ég lærði
hjá Þorvaldi í Síld og fisk, einum
mesta listunnanda sem uppi hefur
verið. Þannig að segja má að ég
hafi smitast.“ gun@frettabladid.is
Horft út á hafið
Í andrúmslofti listaverka, sjávar og steypuryks býr Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari
á hinu umdeilda Kársnesi. Hann fylgist með umferð skipa og báta og bregður sér jafnvel út
á miðin þegar vel viðrar.
Uppi er „púkaloft“ eins og Úlfar kallar það. „Ef ég hefði opið upp í þakbitana þyrfti ég að setja upp viftu þar til að blása hitanum
niður,“ útskýrir hann.
Eldhúsið er snyrtilegt hjá kokknum.
Í stofugluggakistunni stendur gamall
hrafn og að sögn Úlfars setjast stundum
lifandi kollegar hans á svalahandriðið
að heilsa upp á hann.
Sjónvarpshornið. Meðal listaverka á
veggjunum eru myndir eftir gömlu
meistarana Finn Jónsson, Ásgrím Jóns-
son og Alfreð Flóka.
25. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR6