Fréttablaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 45
www.alcoa.is
Hvað gerir Fjarðaál að góðum vinnustað
fyrir metnaðarfulla raf- og véliðnaðarmenn?
Fjölbreytt tækifæri á spennandi vinnustað
Í hátæknivæddu álveri Fjarðaáls starfar metnaðarfullur hópur
tæknimenntaðra sérfræðinga. Takmark Fjarðaáls er að verða
í fremstu röð á heimsvísu í meðferð og viðhaldi tækja. Allir
starfsmenn fyrirtækisins taka þátt í að tryggja áreiðanleika
tækjanna og viðhaldi er stýrt í samræmi við raunverulegt
ástand þeirra. Iðnaðarmenn vinna í teymum og verkefnin eru
fjölbreytt. Áhersla er lögð á frumkvæði og stöðugar endur-
bætur. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri.
Góð laun fyrir vaktavinnu eða dagvinnu
Í boði eru vakta- og dagvinnustörf fyrir raf- og véliðnaðarmenn.
Góðir möguleikar eru á aukavinnu og viðbótartekjum fyrir þá
sem þess óska.
Öryggi og velferð starfsmanna ávallt í fyrirrúmi
Allt vinnufyrirkomulag miðast við að koma alfarið í veg fyrir vinnutengd
slys og óþægindi. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkamsbeitingu og
nuddari heimsækir vinnustaðinn tvisvar í viku. Starfsmenn Fjarðaáls
hafa aðgang að öflugri velferðarþjónustu sem nær meðal annars til
læknisþjónustu og ráðgjafar á ýmsum sviðum. Starfsmenn fá hollar og
góðar máltíðir í glæsilegu mötuneyti. Fjarðaál greiðir hverjum starfs-
manni 12.000 kr. líkamsræktarstyrk árlega og leigir íþróttatíma í Fjarða-
byggðarhöllinni. Boðið er upp á rútuferðir frá Reyðarfirði, Eskifirði,
Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Fyrirtækið útvegar
og þvær allan vinnufatnað starfsmönnum að kostnaðarlausu.
Kostnaðarlaus og auðveldur flutningur inn á svæðið
Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr meira en 100 km fjarlægð frá
vinnustaðnum greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu fasteigna, svo
sem sölulaun, lántökugjald og stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að pakka
búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju heimili. Með fyrsta launa-
seðlinum fær starfsmaður 200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir á
svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa á svæðinu við að leigja
húsnæði. Starfsmenn fá flugmiða með Flugfélagi Íslands á hagstæðum
kjörum.
Vaktavinna Dagvinna
15 tólf tíma vaktir 40 stunda
í mánuði vinnuvika
Heildarárslaun 5,4 milljónir kr. 3,6 milljónir kr.
Mánaðarlaun 450 þúsund kr. 303 þúsund kr.
Meðaltímakaup 2.500 kr. 1.700 kr.
Laun útlærðra iðnaðar-
manna miðað við 15%
árangursávinning
Framtíðartækifæri fyrir iðnaðarmenn
Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteins-
dóttur hjá Capacent, í síma 540 71000 eða á netfangið sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is
eða skrá umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
3
88
01
0
8.
20
07