Fréttablaðið - 02.09.2007, Side 88

Fréttablaðið - 02.09.2007, Side 88
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil Þegar ég var lítil dreymdi flesta drengi um að verða lögreglu- menn. Þeim þótti spennandi að fá að aka greitt um götur bæjarins með sírenurnar í gangi og heilluð- ust af þeirri hugsjón að bjarga saklausum borgurum frá vondu körlunum. Nú til dags ætla ungir strákar að verða áhættufjárfestar, framkvæmdastjórar og verðbréfa- miðlarar þegar þeir verða stórir, og jafnaldrar mínir sem létu lög- regludrauminn rætast hafa skipt um starfsvettvang vegna lágra launa. þykir ekki eftirsókn- arvert lengur að handsama glæpa- menn og halda uppi lögum og reglu. Kannski er það álíka ómerki- legt og að standa við kennaraborð- ið og uppfræða æsku landsins. Umræðan um kjaramál lögreglu- þjóna er vissulega ekki orðin eins gömul og rotin og umræðan um kennaralaunin en í grunninn er þetta sama þrotlausa baráttan. þarf að hækka launin til þess að laða hæft starfsfólk í þessi störf,“ ómar úr sjónvarpinu og ég hef ekki hugmynd um hvort þar er verið að ræða kjör kennara eða lögregluþjóna. Umræðan gæti líka allt eins fjallað um sjúkraliða, sjúkraflutningamenn eða leik- skólakennara því alls staðar er það sama upp á teningnum. Það er ekk- ert að hafa upp úr klisjukenndum hugsjónum um að uppfræða fólk, bjarga mannslífum og standa vörð um réttlætið. Hugsanlega geta menn fundið einhverja fró í slík- um störfum en langi menn í pen- inga verða þeir að róa á önnur mið. eru ekki allt en þeir skipta fjári miklu máli. Þótt ráða- menn tali um mikilvægi mannauðs við hátíðleg tilefni liggur það í augum uppi að peningar eru eini auðurinn sem virkileg virðing er borin fyrir. Við rifnum úr þjóðar- stolti þegar við sjáum nöfn íslensku peningamannanna skríða upp lista yfir ríkustu menn í heimi, meðan engum dettur í hug að setja saman lista yfir bestu kennara heims. er svo þröngsýn að ég get ekki skilið sjónarmið þeirra sem þykir laun kennara sanngjörn. Mér finnst líka eitthvað óhugnanlegt við tilhugsunina um lögreglu skip- aða mönnum sem nenna varla að eltast við bófana af því að launin sem þeir fá fyrir vikið eru svo lág. Lögregluþjónar og kennarar eiga skilið að störf þeirra séu metin til fjár, þó ekki sé nema til þess að börn geti áfram látið sig dreyma um að aka lögreglubíl með blikk- andi ljósum og sírenum. má ekki drepa hugsjónirnar. Að drepa hugsjónir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.