Fréttablaðið - 02.09.2007, Page 88
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
Þegar ég var lítil dreymdi flesta drengi um að verða lögreglu-
menn. Þeim þótti spennandi að fá
að aka greitt um götur bæjarins
með sírenurnar í gangi og heilluð-
ust af þeirri hugsjón að bjarga
saklausum borgurum frá vondu
körlunum. Nú til dags ætla ungir
strákar að verða áhættufjárfestar,
framkvæmdastjórar og verðbréfa-
miðlarar þegar þeir verða stórir,
og jafnaldrar mínir sem létu lög-
regludrauminn rætast hafa skipt
um starfsvettvang vegna lágra
launa.
þykir ekki eftirsókn-
arvert lengur að handsama glæpa-
menn og halda uppi lögum og
reglu. Kannski er það álíka ómerki-
legt og að standa við kennaraborð-
ið og uppfræða æsku landsins.
Umræðan um kjaramál lögreglu-
þjóna er vissulega ekki orðin eins
gömul og rotin og umræðan um
kennaralaunin en í grunninn er
þetta sama þrotlausa baráttan.
þarf að hækka launin til
þess að laða hæft starfsfólk í þessi
störf,“ ómar úr sjónvarpinu og ég
hef ekki hugmynd um hvort þar er
verið að ræða kjör kennara eða
lögregluþjóna. Umræðan gæti líka
allt eins fjallað um sjúkraliða,
sjúkraflutningamenn eða leik-
skólakennara því alls staðar er það
sama upp á teningnum. Það er ekk-
ert að hafa upp úr klisjukenndum
hugsjónum um að uppfræða fólk,
bjarga mannslífum og standa vörð
um réttlætið. Hugsanlega geta
menn fundið einhverja fró í slík-
um störfum en langi menn í pen-
inga verða þeir að róa á önnur
mið.
eru ekki allt en þeir
skipta fjári miklu máli. Þótt ráða-
menn tali um mikilvægi mannauðs
við hátíðleg tilefni liggur það í
augum uppi að peningar eru eini
auðurinn sem virkileg virðing er
borin fyrir. Við rifnum úr þjóðar-
stolti þegar við sjáum nöfn
íslensku peningamannanna skríða
upp lista yfir ríkustu menn í heimi,
meðan engum dettur í hug að setja
saman lista yfir bestu kennara
heims.
er svo þröngsýn að ég get ekki
skilið sjónarmið þeirra sem þykir
laun kennara sanngjörn. Mér
finnst líka eitthvað óhugnanlegt
við tilhugsunina um lögreglu skip-
aða mönnum sem nenna varla að
eltast við bófana af því að launin
sem þeir fá fyrir vikið eru svo lág.
Lögregluþjónar og kennarar eiga
skilið að störf þeirra séu metin til
fjár, þó ekki sé nema til þess að
börn geti áfram látið sig dreyma
um að aka lögreglubíl með blikk-
andi ljósum og sírenum.
má ekki
drepa hugsjónirnar.
Að drepa
hugsjónir