Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 1
Mæður og börn geta nú æft saman í mömmu-
þreki, nýju námskeiði sem Borghildur Sverris-
dóttir kennir hjá Heilsuakademíunni.„Við ætlum að koma líkamameðgö
„Svo er ég með áskorunarnámskeið fyrir konur,
sem ég hef verið að þróa en er nú komi
í Heilsuakademí
Kennir mömmuþrek í
Heilsuakademíunni
Suðrænn trjábörkur
á íslensk gólf
Íslenski ljósmyndarinn
Smári Ásmundsson nýtur
mikillar
velgengni í
auglýsingaljós-
myndun í
Bandaríkjun-
um. Hann er
búsettur í
Boston en
starfar á
landsvísu.
Smári hefur
meðal annars
myndað fyrir
bílafyrirtækin Lexus og Toyota
og úraframleiðandann Rolex á
starfsferli sínum.
Íslenskt landslag og fólk er
honum einnig kært myndefni og
Smári kemur reglulega til
Íslands. „Mér finnst rosalega
gaman að mynda heima. Veðrið
og birtan eru alveg einstök,“
segir Smári, sem tók nýlega
myndir hér á landi fyrir Getty
Images.
Myndar fyrir
Lexus og Rolex
Sýnir í New York á
tískuvikunni
flutningarÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007
Lítill heimur …
… hugsum stórt
Starfsemi okkar snertir, beint eða óbeint, daglegt líf fólks í öllum heimshlutum.
Korngörðum 2 104 Reykjavík Sími 525 7000 Fax 525 7709 www.eimskip.is
Stærstu lífeyris-
sjóðir landsins munu ekki bregðast
sérstaklega við spám um niður-
sveiflu á fjármálamörkuðum. For-
svarsmenn þeirra óttast ekki hrun,
og segja sjóðina fjárfesta til langs
tíma og standa þar af leiðandi af
sér sveiflur.
Úrvalsvísitalan í Kauphöll
Íslands lækkaði um tæp þrjú pró-
sent í gær og hlutabréf á mörkuð-
um víða um heim lækkuðu nokkuð
í verði.
„Við högum okkur ekkert öðru-
vísi en við gerum venjulega,“
segir Árni Guðmundsson hjá Gildi-
lífeyrissjóði.
Engar grundvallarbreytingar
verða gerðar á fjárfestingarstefnu
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins, segir Haukur Hafsteinsson,
framkvæmdastjóri sjóðsins. Hann
segir erlenda stýringaraðila meta
stöðuna þannig að ekki verði um
langtímaniðursveiflu að ræða.
Í sama streng tekur Kristján
Örn Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins.
„Það þurfa að vera sterkari vís-
bendingar um að eitthvað slæmt
sé yfirvofandi á mörkuðum. Við
getum ekki séð að svo sé.“
Óttast ekki hrun á
hlutabréfamarkaði
Ekki verða gerðar róttækar breytingar á fjárfestingarstefnu stærstu lífeyrissjóða
landsins þrátt fyrir niðursveiflu á mörkuðum. Forsvarsmenn sjóðanna segjast
fjárfesta til lengri tíma og reikna með því að niðursveiflan verði skammvinn.
Fornleifafræðingar
telja sig hafa fundið um þúsund
ára gamalt víkingaskip á
vesturströnd Englands, á
Wirral-skaga.
Skipið gæti verið meðal
merkustu fornleifa sem fundist
hafa á Bretlandi. Háskólinn í
Nottingham leitar því fjárfram-
laga til að geta hafið uppgröft.
Skipið er talið vera undir
bílastæði, þar sem áður var krá.
Það er langt inni í landi og barst
hugsanlega þangað í flóði, hefur
BBC eftir fræðimönnum, sem
fundu skipið með ódýrri
jarðratsjá. Skipið fannst fyrst
árið 1938 þegar kráin var rifin
en verkamönnunum var skipað
að hylja það á nýjan leik svo það
tefði ekki framkvæmdina.
Víkingaskip
fannst undir
bílastæði
Foreldrar Madeleine
McCann, stúlkunnar sem hvarf í
Portúgal í maíbyrjun, hafa leitað
ásjár hjá lögfræðingi sem varði
Augusto heitinn Pinochet, fyrrum
einræðisherra Chile.
Spænskir fjölmiðlar greina frá
því að hjónin hafi nú ráðið til sín
Michael Caplan, sem varði Pinochet
árið 1999 og kom í veg fyrir að hann
yrði framseldur frá Bretlandi til
Spánar.
Portúgalska lögreglan hefur sent
McCann-málið til ríkissaksóknara,
sem mun ákveða hvort þau verða
ákærð eða hvort málið verði
rannsakað betur. Ólíklegt þykir að
hann láti málið niður falla.
Fréttamaður Sky News hafði í
gær eftir portúgölsku lögreglunni
að DNA-sýni, sem fannst í skotti bíls
sem hjónin leigðu mánuði eftir
hvarf stúlkunnar, hefði án nokkurs
vafa verið úr henni.
Ein kenningin er sú að móðirin
hafi gefið Madeleine of stóran
skammt svefnlyfja, áður en þau
hjónin fóru út að skemmta sér.
Svo gæti farið að McCann-hjónin,
sem nú eru grunuð um að hafa orðið
stúlkunni að bana, viljandi eða
óviljandi, misstu einnig hin tvö börn
sín.
Að mati barnaverndarnefndar í
Leicestershire, þar sem fjölskyldan
býr, þurfa tvíburarnir Sean og
Amelie á fósturforeldrum að halda,
fari svo að blóðforeldrar þeirra
verði í Portúgal í lengri eða skemmri
tíma vegna þessa máls.
Nefndin rannsakar einnig hvort
tvíburarnir njóti yfirleitt nægi-
legrar umhyggju, í öllu sem á geng-
ur, til að geta verið hjá foreldrum
sínum.
Ráða lögfræðing Pinochets