Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 24
 11. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 fréttablaðið flutningar Það færist í vöxt að seljendur íbúðarhúsnæðis fái utan- aðkomandi aðila til að þrífa gamla húsnæðið fyrir afhend- ingu til nýrra eigenda. „Þetta verður æ vinsælla,“ segir Theódór Pálsson, framkvæmd- astjóri Hvítu línunnar, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem taka að sér þrif á íbúðum milli eigenda. „Mér finnst eins og aukningin haldist í hendur við líflegan fasteign- amarkaðinn hin síðustu ár. Þegar fólk er búið að selja eignir sínar og er með meira fé á milli handa þykir því ekki tiltökumál að ráða ræst- ingafólk til að þrífa og á margan hátt skiljanlegt að það sé óþreyjufullt að komast í sitt nýja húsnæði þar sem mörg handverkin bíða,“ segir Theó- dór, en þrif af þessu tagi kosta frá 35 þúsund krónum fyrir meðalstóra íbúð og hækkar verðið eftir auknum fermetrafjölda. „Innifalin í verði er allsherjar hreingerning, utan þrifa á veggj- um og lofti. Það er sjaldgæft að þrífa þurfi veggi og loft þar sem flestir mála þegar flutt er í nýtt húsnæði,“ segir Theódór, en glugg- ar, skápar, innréttingar, ofnar, gólf og hreinlætis- og heimilistæki eru þrifin hátt og lágt. „Húsnæðið er eins og nýtt eftir að við höfum farið um það hönd- um. Við notum ýmis tæki sem létta okkur vinnuna en allir vita hve mikil vinna er að hreinsa heilt ein- býlishús þegar kalla þarf kannski saman alla fjölskylduna yfir heila helgi. Þá er betra að fá fagfólk í verkið og kveðja gamla heimilið tandurhreint en óþreyttur.“ Skíturinn skilinn eftir Þrifin geta tekið mikinn tíma og sífellt fleiri ráða til sín hjálp. Að ýmsu þarf að huga þegar skipta skal um híbýli. Betra er að gera smá plan áður því það mun að lokum spara manni tíma. Hér á eftir koma nokkur nytsöm ráð: Byrjið á að taka til og henda. Væntanlegir flutningar eru rétta tækifærið til að losa sig við ónýtu garðhúsgögnin og úreltu tímaritin. Það er óþarfa tvíverknaður að flytja dót á nýjan stað sem verður síðan strax hent. Passið að pakka nauðsynlegustu hlutunum í ferðatösku sem höfð er uppi við. Maður kemur sér ekki fyrir í nýrri íbúð á einum degi og til að losna við að þeysast á milli kassa, til dæmis í leit að tannkreminu, er best að hafa allt á einum stað. Raðið vandlega ofan í kassana. Nýtið plássið vel og flokkið hlutina, látið til dæmis allar bækur saman, öll föt saman og allt eldhúsdót saman. Hafið það hugfast að kassarnir geta orðið fyrir hnjaski. Því skal pakka þétt, nýta plássið vel og láta ekkert hringla laust. Einnig skal öllu brothættu pakkað inn í bóluplast eða sellófan, helst ekki dagblöð þar sem þau smita prentsvertu í hlutina. Komið ykkur upp merkjakerfi. Í fyrsta lagi er mjög nauðsynlegt að vel komi fram hvað sé í hverjum kassa svo auðvelt sé að pakka upp. Einnig hraðar það öllum flutningi ef kassar og húsgögn eru merkt herberginu sem þeir eiga endan- lega að fara í. Ef gæludýr tilheyrir fjölskyldunni skal loka það inni í einu her- bergjanna eða koma því fyrir í pössun meðan á flutningun- um stendur. Stressið sem flutningum fylgir leggst á alla fjölskyld- una – líka dýrin. Hafið nóg að drekka og borða fyrir sjálfboðaliðana í flutningunum. Það stuðlar að því að fólk hjálpi lengur til. Flutt á nýtt heimili

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.