Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 48
Persónur sem hafa öðlast annað líf í tölvuveröldinni Second Life
eru orðnar um níu og hálf milljón.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þessa
handanheims gengur leikurinn út á
það að venjulegt fólk af holdi og
blóði getur búið sér til veru eftir
eigin höfði og stýrt lífi hennar í
tölvunni. Í þessu landi, sem er í
senn svo fjarlægt en þó svo nálægt,
er sérstakur gjaldmiðill notaður.
Þar eru gefin út blöð um lífverurn-
ar á eyjum þessarar tilveru, fyrir-
tæki og stofnanir hafa þar útibú og
þar gengur fólk í hjónaband sem
hefur jafnvel aldrei hist augliti til
auglitis í því sem við köllum raun-
veruleika.
ganga sumir íbúar
þessa lífsleiks svo langt að þeir
segja lífið eins og flestir hafa þekkt
það í gegnum tíðina ekkert raun-
verulegra en það sem finna megi í
tölvunni. Dágóðar líkur séu jafnvel
á því að jarðlífið sé ekkert annað og
merkilegra en fullkomin útgáfa af
sýndarheimi líkt og Second Life er.
sem til er í þeim hugmynd-
um er ljóst að þessi tilvera milli
reyndar og sýndar er í miklum
vexti og fær fólk til að velta nokkr-
um lykilspurningum um tilveruna
fyrir sér, svo sem: Hvað er raun-
verulegt og hver er tilgangurinn
með þessu öllu? Er kannski rétt að
fólki sem ekki hefur tekist að hanna
tilvist sína hér fái uppreisn æru
þar? Hlutskipti nútímans og net-
lendanna virðist í raun ósköp svip-
að enda eru þau af sama meiði.
Hvoru tveggja snúast að stórum
hluta um afþreyingu, verslun, kyn-
líf og þrá eftir vinsældum. Auð-
veldara aðgengi að slíkum hlutum
er hægt að finna í tölvunni með
kreditkortið að vopni en á jörðu.
Fallegri líkami fæst með minni fyr-
irhöfn, sem og betra húsnæði. Þetta
er dásamlegt fyrirkomulag sem
mætti benda mörgum minnipoka-
manninum á.
er venjulega nokk sama um
tilvistarlegar spurningar enda ein-
föld manneskja sem helst ergir sig
á lituðum þvotti. En þegar maður
hittir góðan vin sem maður hefur
ekki hitt árum saman nema í gegn-
um netið áttar maður sig á því að
tilfinningarnar sem sendar eru í
gegnum stýrikerfi, sem flestar
dauðlegar verur munu aldrei getað
skilið til fulls, eru alveg jafn raun-
verulegar og þær sem maður
útdeilir til þeirra sem standa and-
spænis manni.
hef ég einnig vissar grunsemd-
ir um að blessaðar opinberanirnar
sem gúgglið veitir á óvini og vini
séu svindlleið í veruleik jarðarbúa.
Litaður þvottur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
9
0
5