Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 16
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is Auður Magndís Leiknisdóttir stjórnar í kvöld fyrsta hittingi haustsins sem talskona Femínistafélagsins en hún tók við því embætti nýlega af Katrínu Önnu Guðmundsdóttur. Spurð hvað titillinn þýði svarar Auður: „Hann felur aðallega í sér samskipti við fjölmiðla. Svo sit ég í ráði með fólki úr ýmsum hópum innan félagsins sem hittist reglulega og fundar stíft þegar eitthvað stendur til.“ Auður Magndís er ættuð frá Patreks- firði en alin upp í Hafnarfirði. Hún kveðst ekki hafa fengið pólitískt uppeldi en réttlætiskenndin hafi snemma komið við sögu. „Þaðan kemur undirstaðan undir baráttugleðina,“ segir hún brosandi. Nú starfar Auður sem félagsfræðingur við Háskóla Íslands og er nýkomin til landsins frá London þar sem hún stundaði mastersnám í greininni. Femínistafélagið var stofnað fyrir fjórum árum af körlum og konum sem vita að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vilja gera eitthvað í því og allt sem er unnið fyrir félagið er ólaun- að, að sögn Auðar. „Félagsmenn eru nokkur hundruð og þeir greiða árstillög en þau eru ekki rukkuð inn með offorsi. Þeir peningar sem koma inn renna í við- burði sem haldnir eru á vegum félags- ins,“ útskýrir hún. Margir hafa orðið til að hnýta í félagið, fólk af báðum kynjum. Hvernig skýrir Auður það? „Kvenfrelsissamtök hafa aldrei unnið vinsældakosningar. Rauðsokka var skammaryrði á sínum tíma,“ segir hún róleg. „Heilbrigð skoðana- skipti eru af hinu góða og það fylgir róttækri réttindabaráttu að bylgja rísi á móti. Þannig er það alltaf þegar barist er fyrir breytingum á ríkjandi viðhorfum og valdafyrirkomulagi. Við fáum enn sömu svör og rauðsokkurnar. Að þetta komi allt með tímanum. Við femínistar höfum líka vakið athygli á ýmsum málum sem ekki snúast um launamun og hlut kvenna í stjórnunarstöðum, svo sem klámvæðingu og kynfrelsi. Hluti sem erfitt er að festa fingur á og ekki birtast í neinum súluritum. Við tökum gjarnan þátt í heilbrigðum skoðanaskiptum.“ En býst hún við að breyta einhverju í félaginu nú þegar hún er orðin talskona þess? „Ég hef engin grand plön um það. Starfið mótast af þeim straumum sem eru í þjóðfélaginu á hverjum tíma og ef mér dettur eitthvað nýtt í hug þá ber ég það upp á fundum ráðsins.“ Að lokum er Auður spurð hvort hún eigi fleiri áhugamál en félagsstörfin. Hún er fljót til svars. „Já, ég er prjónakona. Það er arfur frá fjölskyldunni og ég er stolt af því að halda á lofti kvenlegum hefðum og gildum. Eitt skýrasta dæmið um kynbundin viðhorf í samfélaginu er hvað tómstundaiðja karla er yfirleitt hafin upp en aftur á móti litið niður á iðju kvenna. Kona sem stundar veiðiskap nýtur virðingar en karl sem prjónar þykir hlægilegur.“ Uppreisn Pinochets Ástkær móðursystir okkar, Sigríður Ólafsdóttir, Dvergasteini, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést 7. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 14. september kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Hannesdóttir, Helgi Hannesson, Guðmundur Þór Hannesson. Eiginkona mín, móðir og systir, Jóhanna Á. H. Jóhannsdóttir blaðamaður, lést á Heilsustofnun Suðurlands á Selfossi 6. september sl. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. september og hefst kl. 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á GÖNGUM SAMAN-hópinn sem styrkir rannsóknir og meðferð á brjóstakrabbameini. Reikningsnúmer er 115-05-069806, kennitala 251059-7569. Merkja þarf innleggið JÁHJ. Brahim Boutarhroucht, Helgi Idder Boutarhroucht, Alda og Jóhanna. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigþrúður Pálsdóttir ljósmóðir, Frá Eyjum í Kaldrananeshreppi, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. september. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 14. september kl. 13.00. Halldór Hjálmarsson, Steinunn Halldórsdóttir, Einar Steingrímsson, Hjálmar Halldórsson, Rún Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Stella Óladóttir, Örn Halldórsson, Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, eiginkona og dóttir, Inger Tara Löve Ómarsdóttir, Hjallahlíð 29, varð bráðkvödd á heimili sínu sl. föstudag, útför verður auglýst síðar. Vignir Steindórsson, Vignir Ómar Vignisson, Gréta Guðný Snorradóttir, Þóra Löve, Ómar Másson og fjölskyldur. Okkar ástkæri Ari G. Guðmundsson, Krókahrauni 10, Hafnarfirði, áður til heimilis að Húnabraut 28, Blönduósi, lést á Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 2. september. Hann verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn 13. september klukkan 13.00. Guðmunda Guðmundsdóttir, Guðmundur Arason, Inga Birna Tryggvadóttir, Óskar Eyvindur Arason, Margrét Rósa Grímsdóttir, Ása L. Aradóttir, Ólafur Arnalds, og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Erla Jónsdóttir, Hrafnistu í Hafnarfirði, lést aðfaranótt 10. september. Jarðarförin auglýst síðar. Árni Arnarson, Borghildur Vigfúsdóttir, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir, Aldís Arnardóttir, Ólafur Þór Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, Hjördís Ragna Þorsteinsdóttir, sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi laugardaginn 8. september, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 17. september kl. 13.00. Georg Ragnarsson, Friðbjörn Georgsson, Margrét Ingólfsdóttir, Hildur Georgsdóttir S., Hlynur Árnason, Ingólfur Már, Hjördís Ragna, Ingibjörg og Thelma. „Ef ég væri kyntákn fengi ég mun meira á broddinn en ég fæ núna.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.