Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 12
„Stærsta ógnin við
vestræna menningu er vestræn
menning sjálf.“ Þetta sagði Ayaan
Hirsi Ali, sem er sómölsk að
uppruna en varð heimskunn er
hún var orðin þingmaður í Hol-
landi og helgaði sig baráttu gegn
kúgun múslimakvenna, á hádegis-
spjallfundi á vegum alþjóðlegu
bókmenntahátíðarinnar í Reykja-
vík í gær. Hún er gestur hátíðar-
innar í tilefni af því að sjálfs-
ævisaga hennar er nýútkomin á
íslensku undir titlinum Frjáls.
Með þessum orðum – að
vestræn menning sé mesta ógnin
við sjálfa sig – átti Ali við að sú
menningarlega afstæðishyggja,
sem mjög hefði grafið um sig á
Vesturlöndum, kynni ekki góðri
lukku að stýra.
„Sú trú, að öll menning sé
jafngild, er á villigötum,“ segir
Ali. Hún segist trúa því að allir
einstaklingar séu jafngildir, en
ekki öll menning. Að sínu mati sé
sú menning sem þróast hafi á
Vesturlöndum einfaldlega betri
en sú siðmenning sem í boði sé
annars staðar meðal mannkynsins.
Hún sé ekki fullkomin frekar en
aðrar afurðir mannanna, en hún
standi öðrum framar, meðal
annars vegna þess að einn grund-
vallarþátta hennar sé að ala upp
fullveðja, frjálsa einstaklinga,
hvort sem þeir séu karlar eða
konur.
„Það þýðir ekki að ég horfi
framhjá voðaverkum sem unnin
hafa verið í fortíð eða nútíð af
Vesturlandabúum eða í nafni
frelsis og lýðræðis, en þegar ég
ber saman vestræna menningu
við annars staðar, þá íslömsku,
kínversku, rússnesku, þá er sú
vestræna þegar allt kemur til alls
sú besta.“
„Menning sem leyfir að börn
séu limlest er ekki jöfn menningu
þar sem kvenleikinn og fæðing
stúlkubarns er hyllt. Menning
sem beitir nýjustu tækni til að
kyngreina fóstur í því skyni að
gera kleift að eyða fóstrum
stúlkubarna er ekki jöfn menningu
sem gefur stúlkum öll hugsanleg
tækifæri; menning sem innrætir
börnum sínum gildi „heilags
stríðs“ er ekki jöfn menningu sem
leitast við að ala börn sín upp í
nýsköpun, þekkingarleit og
skilningi á heiminum,“ segir hún.
Ali segir sofandahátt og
skilningsleysi gagnvart þeim
ógnum sem vestræn menning
standi frammi fyrir hafa auð-
veldað hnignun hennar innan frá.
Ein þessara ógna sé tvímælalaust
herská útlegging íslams. Hún sé
öflug hnattræn hreyfing, sem
hvorki beri að of- né vanmeta.
Hættulegast sé að umbera það að
slík kúgunarhugmyndafræði fái
þrifist á Vesturlöndum í skjóli
„fjölmenningar“.
Afstæðishyggja ógnar
vestrænni menningu
Ayaan Hirsi Ali, sem ólst upp í strangtrúaðri austur-afrískri múslimafjölskyldu en
öðlaðist síðar frægð fyrir baráttu gegn kúgun múslimakvenna, segir skilningsleysi
gagnvart ógnum sem vestræn menning standi frammi fyrir ógna henni innan frá.
Sú trú, að öll menning sé
jafngild, er á villigötum.
Alvöru námskeið í vefsíðugerð þar sem farið er í alla
mikilvægustu þætti vefhönnunar s.s. útlitshönnun,
myndvinnslu, HTML-kóðun, gagnagrunnsfræði, Java-
script, uppsetningu og viðhald bæði minni og stærri
tölvukerfa.
210 stundir - Verð: 199.000.-
Kvöld- og helgarnámskeið
byrjar 18. september
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
ALVÖRU
VEFSÍÐUGERÐ
Upplýsingar og skráning:544 4500 / www.ntv.is
Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar og í lok námskeiðs ætti
nemandi að hafa lokið við eigin vef frá hugmynd að fullunnu
vefsvæði.
Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta:
1. Myndvinnsla fyrir vefinn með Fireworks
2. Almenn vefsíðugerð með Dreamweaver
3. Gagnagrunnstengd vefsíðugerð með Dreamweaver
Fyrsta árlega selataln-
ingin fór fram við Vatnsnes í lok
ágúst þegar rúmlega þrjátíu
sjálfboðaliðar lögðu hönd á plóg
við að telja þá 727 seli sem sáust
við Vatnsnesið þennan dag.
Selasetur Íslands á
Hvammstanga sá um skipulagn-
ingu og framkvæmd talningar-
innar.Yngsti sjálfboðaliðinn var
fjögurra ára og sá elsti á
áttræðisaldri og gengu þeir
samtals meira en sjötíu
kílómetra leið. Einnig sá björg-
unarsveitin á staðnum um að
ferja fólk á milli.
Markmið talningarinnar var að
fá hugmynd um stærð landsela-
stofnsins við Vatnsnes á þessum
árstíma að sögn Hrafnhildar
Víglundsdóttur, framkvæmda-
stjóra Selaseturs Íslands.
„Einnig vildum við gefa heima-
fólki sem og öðrum áhugasömum
kost á að taka þátt í rannsóknar-
starfi Selasetursins.“
Hrafnhildur segist finna
aukinn áhuga ferðamanna á
selnum. Það sem af er ári hafa
4.000 komið á Selasetrið meðan
heildarfjöldinn í fyrra var 2.500.
„Íslendingar virðast í auknum
mæli vera meðvitaðir um Húna-
þing vestra sem áfangastað og
margir koma gagngert til þess
að heimsækja Selasetrið og
skoða selina á Vatnsnesi í sínu
náttúrulega umhverfi.“
Töldu sjö hundruð seli
George W. Bush Bandaríkjaforseti var
ekki alveg í sínu besta formi á fundi með leið-
togum úr viðskiptalífinu, sem haldinn var í
óperuhúsinu í Sydney í tengslum við leiðtogafund
APEC.
„Þakka ykkur fyrir að vera svona góðir
gestgjafar OPEC-fundarins,“ sagði Bush í byrjun
ræðu sinnar á fundinum, og beindi orðum sínum að
John Howard, forsætisráðherra Ástralíu. Þarna
átti hann við APEC, sem er efnahagsbandalag
Asíu- og Kyrrahafsríkja, en ekki OPEC, sem eru
samtök olíuframleiðsluríkja.
Forsetinn var þó snöggur að leiðrétta sig:
„APEC-fundarins,“ sagði hann með mikilli áherslu,
og grínaðist í framhaldinu með það að Howard
hefði boðið sér á leiðtogafund OPEC á næsta ári,
þótt hvorki Ástralía né Bandaríkin eigi reyndar
aðild að OPEC.
Næst mismælti hann sig þegar hann hugðist
þakka áströlskum hermönnum fyrir þátttöku sína í
Íraksstríðinu, en talaði þá um „austurrísku
hermennina“ – nefnilega „Austrian troops“ í
staðinn fyrir „Australian troops“. Í þetta sinn
leiðrétti hann sig ekki.
Að ræðu lokinni gekk Bush ákveðinn út af
sviðinu, en óvart í ranga átt – beint í áttina að
djúpri gryfju, svo Howard forsætisráðherra þurfti
að bregðast snöggt við til að bjarga forsetanum frá
falli.
Bush mismælir sig hrapallega
Upplýstur
næturhiminn sést frá fjölmörg-
um stöðum í höfuðborginni
vegna friðarsúlunnar í Viðey.
Kveikt hefur verið tímabundið
á súlunni í tilraunaskyni. Súlan
er hugmynd Yoko Uno, ekkju
Bítilsins John Lennon.
Kveikt verður formlega á
súlunni 9. október, á afmæli
Lennons.
Ráðgert er að kveikja á
súlunni á hverju ári á afmælis-
degi Lennons og verður hún látin
lýsa til 8. desember, sem er
dagurinn sem hann var myrtur í
New York árið 1980.
Súlan lýsir upp
næturhimininn
Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, opnar
vistvænustu skrifstofubyggingu
Bretlands í dag.
Byggingin er í
eigu dóttur-
félags Eimskips,
Innovate, og
hefur hún hlotið
hæstu einkunn
svonefndra
BREEM-staðla
sem leggja mat á
hve vistvænar
byggingar eru.
Byggingin aflar að mestu leyti
sinnar eigin orku og er hluti
steypunnar úr endurunnum efnum.
Opnunin er hluti af dagskrá
forsetans í heimsókn hans til
Leeds. Þar fundar hann meðal
annars með áhrifamönnum úr
viðskiptalífi borgarinnar og ræðir
við rektor Leeds-háskóla.
Opnar vistvæna
byggingu