Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.09.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 11.09.2007, Qupperneq 4
 Forsvarsmenn stærstu lífeyrissjóða landsins ætla ekki að bregðast á róttækan hátt við þeirri niðursveiflu sem verið hefur á fjármálamörkuðum. Hluta- bréf í Kauphöll Íslands og á mörk- uðum víða um heim lækkuðu nokk- uð í verði í gær og úrvalsvísitalan um tæp þrjú prósent. Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir að nið- ursveiflan muni ekki hafa neinar grundvallarbreytingar í för með sér á fjárfestingarstefnu sjóðsins. „Lífeyrissjóðurinn er lang- tímafjárfestir og við metum þau tækifæri sem skapast á markaði hverju sinni,“ segir Haukur. Hann segir að erlendir stýringaraðilar sjóðsins meti það sem svo að ekki sé um langtímaniðursveiflu að ræða. Kristján Örn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sameinaða lífeyris- sjóðsins, segir að forsvarsmenn sjóðsins ætli að sitja þá niður- sveiflu sem verið hefur á mörkuð- um af sér. „Við erum innan okkar fjárfestingarstefnu og ætlum að halda okkur við hana.“ Kristján segir það stefnu sjóðsins að vera með um þrjátíu til fimmtíu pró- sent af eignum sjóðsins á erlend- um mörkuðum og að því verði ekki breytt. „Það þurfa að vera sterk- ari vísbendingar um að eitthvað slæmt sé yfirvofandi á mörkuð- um. Við getum ekki séð að svo sé. Okkar erlendu stýringaraðilar eru tiltölulega rólegir yfir þessum hræringum og hafa ekki stórar áhyggjur af þeim til lengri tíma litið,“ segir Kristján. Árni Guðmundsson, framkvæmd- astjóri Gildis-lífeyrissjóðs, segir að sjóðurinn ætli ekki að bregðast sér- staklega við niðursveiflunni. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem markaðir fara niður. Við högum okkur ekkert öðruvísi en við gerum venjulega,“ segir Árni. Aðspurður segir Árni að niðursveiflan muni ekki verða til þess að sjóðurinn breyti fjárfest- ingarstefnu sinni. „Við getum stað- ið svona niðursveiflur af okkur og höfum meiri þolinmæði en aðrir fjárfestar. Við þurfum ekki að selja bréfin okkar þrátt fyrir þennan óróleika,“ segir Árni. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir sjóðinn ekki hafa í hyggju að bregðast sérstaklega við niður- sveiflunni. Sjóðurinn sé langtíma- fjárfestir og muni ekki þurfa að nýta fjármuni bundna í hluta- bréfum til lífeyrisgreiðslna fyrr en eftir áratugi. „Sjóðurinn fór í gegnum niðursveiflu fyrr í sumar og hafa áhrif niðursveiflunnar á ávöxtun sjóðsins enn sem komið er ekki verið umtalsverð.“ Aðspurður segir Þorgeir að ekki standi til að breyta fjárfestingar- stefnu sjóðsins vegna niðursveifl- unnar að svo stöddu. Sjóðirnir boða ekki róttækar aðgerðir Stærstu lífeyrissjóðir landsins ætla ekki að bregðast á róttækan hátt við þeirri niðursveiflu sem verið hefur á mörkuðum. Hlutabréf og úrvalsvísitala lækkuðu umtalsvert í gær. Talið er að niðursveiflan á mörkuðum verði ekki langvinn. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Unnið er að því að skapa Iceland Express aðstöðu til að sinna innanlandsflugi frá Reykjavíkurflugvelli frá og með næsta vori, að sögn Þorgeirs Pálssonar, forstjóra Flugstoða ohf. „Þetta er erfitt því það er mjög takmarkað rými hér á flugvallar- svæðinu, en við erum að reyna að finna á þessu lausn,“ segir hann. Þorgeir vill ekki segja hvort þetta verði gert í samstarfi við Flugfélag Íslands, sem er með aðstöðu á flugvellinum fyrir. Nýlega var auglýst eftir fyrir- tækjum sem hefðu áhuga á því að veita þjónustu í nýrri samgöngu- miðstöð, sem á að taka í notkun vorið 2009. Iceland Express hefur farið fram á minnst 6.500 fermetra húsnæði undir sinn rekstur á Reykjavíkur- flugvelli. Spurður hvort þessar yfirlýstu þarfir félagsins hefðu ekki kollvarpað fyrri áætlunum um samgöngumiðstöð, sem ráðgert var að yrði einnig 6.500 fermetrar, segir Þorgeir að svo sé ekki. „Það er búið að fara yfir þarfir félagsins og það er ekkert sem kollvarpar áætlunum um sam- göngumiðstöð. Hins vegar getur verið að eitthvað þurfi að auka rýmið til að koma til móts við félagið.“ Þorgeir bendir á að enn eigi eftir að hanna sjálfa miðstöðina. Upphaflegur fermetrafjöldi hafi verið hluti af frumáætlunum. Miðað við flug vorið 2008 Á fundi með Mahmoud Abbas, forseta Palest- ínumanna, lagði ísraelski forsætis- ráðherrann Ehud Olmert í gær til að viss fjöldi fanga yrði látinn laus, nokkrir vegatálmar á Vestur- bakkanum yrðu fjarlægðir og að komið yrði á fót sameiginlegum undirbúningshóp fyrir áformaða friðarráðstefnu, sem á að halda með stuðningi Bandaríkjastjórnar í nóvember. Á fundi leiðtoganna í Jerúsalem urðu þeir ásáttir um að setja á fót hóp háttsettra fulltrúa sem fengi það hlutverk að „ræða leiðir til að koma áleiðis friðarumleitunum og markmiðinu um tveggja ríkja lausn,“ að því er David Baker, talsmaður Olmerts, greindi frá. Undirbúa ráð- stefnu um frið Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum MDMA-töflur og fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Lögreglan hafði afskipti af manninum 5. apríl síðastliðinn fyrir utan skemmtistaðinn Broadway í Reykjavík og fundust MDMA- töflur í fórum mannsins. Rúmlega tveimur vikum síðar var maðurinn handtekinn í bíl sínum í Grímsnesi þar sem hann var grunaður um að keyra undir áhrifum áfengis. Maðurinn var sviptur ökuréttindum ævilangt auk þess sem honum var gert að greiða fimmtíu þúsund krónur í sekt. Með fíkniefni og fullur á bíl Hámarksflutningsgeta gatnakerfisins á höfuðborgar- svæðinu næst þegar umferðar- hraðinn er 50-60 kílómetrar á klukkustund, að því er fram kemur í grein Ólafs Bjarnasonar, aðstoðarsviðsstjóra framkvæmda- sviðs Reykjavíkurborgar, sem birtist á vef borgarinnar. Í greininni kemur fram að til að viðhalda góðu umferðarflæði í gatnakerfinu er mikilvægt að fyrirbyggja stíflur. Stíflur verði til þess að flutningsgeta minnki, ástandið versni og langan tíma geti tekið að leysa úr umferðar- hnútum. Þá bendir Ólafur á að í sumum stórborgum, þar sem umferðar- ástand sé hvað erfiðast, hafi verið farið þá leið að innheimta sérstakt gjald af þeim sem aka á mesta annatímanum eða jafnvel tak- marka bílaumferð enn frekar. Mesta streymið á fimmtíu Rannsókn í DC++ málinu svokallaða er lokið. Næst er ákveðið hvort ákært verður í málinu. Niðurstöðu er að vænta innan nokkurra vikna, að sögn Björns Þorvaldssonar, setts saksóknara efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra. Málið hófst í september árið 2004 þegar húsleit var gerð hjá tólf mönnum sem grunaðir voru um að dreifa og sækja höfundar- réttarvarið efni með DC++ skráaskiptihugbúnaðinum. Nú, þremur árum síðar, hillir loks undir endalok málsins, sem er prófmál hérlendis. Rannsókn lokið, kannski ákært

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.