Fréttablaðið - 11.09.2007, Side 18

Fréttablaðið - 11.09.2007, Side 18
Ultratone er nýr og háþróaður rafbylgjuþjálfi sem kemur línun- um í lag á hraðvirkan máta og kemur grindarbotninum í fyrra form eftir fæðingu. Þetta vita stjörnurnar, því Madonna, Shak- ira og Gwyneth Paltrow þakka það reglulegri ástundun Ultrat- one í hve fínu formi þær eru. „Ultratone er háþróuð, bylting- arkennd raf- og hljóðbylgjutækni sem notar rafskilaboð til að örva ákveðin svæði líkamans. Stóri munurinn á Ultratone og eldri tækjum á markaðnum er sá að Ultratone notar 44 mismunandi rafmerki meðan þau eldri nota miklum mun færri,“ segir Sigríð- ur Olsen, rekstrarstjóri Ultratone Hafnarfirði á Reykjavíkurvegi 68 sem býður upp á hið magnaða Fut- ura Pro-tæki sem hjálpar fólki að ná árangri til betri heilsu og bættrar líðanar á skjótan og undraverðan hátt. „Í Ultratone-meðferð breytist rafstraumurinn á einnar og hálfrar mínútu fresti. Af þeim sökum verða bylgjurnar mun mýkri og þægilegri en áður þekk- ist í öðrum tækjum á markaðn- um,“ segir Sigríður um Ultratone, sem býður upp á 30 ólíkar líkams- meðferðir. „Vinsælust er grenning og styrking, enda næst sýnilegur árangur á þriðja til fimmta tíma. Við gerum ummálsmælingar á viðkomandi fyrir og eftir meðferð og þar má sjá sentimetrana fjúka. Með þeirri meðferð mælum við vitaskuld með hollu og skynsam- legu mataræði og mikilli vatns- drykkju. Rafskilaboð fara djúpt inn í vöðva líkamans og þegar upp er staðið næst þrisvar sinnum meiri árangur í Ultratone en venjulegri líkamsrækt,“ segir Sigríður og nefnir fleiri mögu- leika Ultratone. „Við bjóðum sérstaka meðferð fyrir konur eftir barnsburð sem styrkir grindarbotninn og kemur honum í fyrra form. Þá erum við með afar árangursríkt sogæð- anudd sem kemur jafnvægi á sog- æðakerfið, losar um appelsínuhúð og lagar húðslit, en Ultratone- meðferðin styrkir og sléttir húð- ina svo hún nær sínum fyrri styrk- leika,“ segir Sigríður og bætir við að Ultratone reyni ekkert á liða- mót. „Þetta er því tilvalin heilsurækt fyrir þá sem eiga við bakvandamál eða eymsli í hnjám að stríða og því bágt með að stunda hefðbundna líkamsrækt. Ultratone vinnur vel á vöðvabólgu og býður upp á margar tegundir nudds, sem er gott fyrir þá sem þjást af íþróttameiðslum, en tækið er mikið notað á sjúkrahúsum erlendis til endurhæfingar,“ segir Sigríður, en einnig er hægt að fara í detox-afeitrunarmeðferðir í Ultratone, sem og andlitsmeðferðir sem slétta úr hrukkum og fínum línum og yngja húðina án þess að til skurðaðgerðar komi. „Við ráðleggjum þeim sem vilja grennast og styrkja sig að koma þrisvar til fimm sinnum í viku, en vitaskuld má koma oftar. Hingað koma bæði konur og karlar, á öllum aldri, og eru himinlifandi með árangurinn. Þetta er gott fyrir sálina líka. Hér finnur fólk heimilislegt og rólegt athvarf þar sem það slakar á í hálftíma og les eða kíkir á sjónvarpið meðan það gerir líkamanum gott í Ultratone.“ Þess má geta að Ultratone Hafnarfirði er með ýmis tilboð nú á haustdögum. Sentimetrarnir fjúka af Borðaðu þig granna(n) Nánari upplýsingar Sími 865-8407 www.vigtarradgjafarnir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.