Fréttablaðið - 11.09.2007, Side 26
11. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR6 fréttablaðið flutningar
Korkur er einstakt
náttúruefni og á auknum
vinsældum að fagna
sem gólfefni á heimilum
landsmanna.
Vissir þú að korkur er unn-
inn úr trjáberki korkeikar
sem aðeins vex á sólríkum
slóðum og er ein sinnar
tegundar í heiminum?
Þannig er hvert einasta
tré korkeikarinnar tær
hráefnisuppspretta því
kork má flysja aftur og
aftur af sama trénu þegar
nýr vex í staðinn á níu
árum, kynslóð eftir kyn-
slóð.
„Eiginleika korks er
ekki hægt að falsa þótt út-
liti megi ná í dúkum, því
korkur er algjörlega ein-
stakt náttúruefni,“ segir
Ólafur Traustason, sölu-
maður hjá Þ. Þorgríms-
syni sem selur Wicanders-
kork, en Wicanders hefur
unnið með kork frá árinu
1868.
„Einangrunargildi
korks er einstakt. Tveggja
sentimetra korkur ein-
angrar álíka og áttatíu
sentimetra náttúrusteinn
og sjö sentimetra viður;
bæði hvað varðar hita-
og kuldaeinangrun.
Mýkt og hlýja korks er
vel þekkt, enda hafa
Íslendingar valið kork á
eldhúsgólf sín í áranna
rás þar sem hvíld fæst við
stöðu á korki. Þetta vita
verslunareigendur, sem í
ríkari mæli velja kork á
verslanir sínar til að forða
starfsfólki frá vöðvabólgu
og særindum eftir langan
vinnudag á gólfinu,“ segir
Ólafur, en korkur nýtur
einnig sívaxandi vinsælda
sem gólfefni á heimilum
landsmanna.
„Korkur er enn mikið
valinn í eldhús en ekki
síður á stofur, herbergi og
önnur rými þar sem fólk
vill náttúrulegt yfirbragð.
Nú er kominn á markað
marmarakorkur í öllum
litum, svo fjölbreytnin
er orðin meiri en þegar
bara var hægt að kaupa
náttúrulega brúnan
kork, sem þó er einnig
vinsæll og fallegur enn,“
segir Ólafur um þetta
sérstaka náttúrefni sem
gefur herbergjum góðan
hljómburð, deyfir fótatak,
er gott fyrir bak og fætur
og ekki ofnæmisvaldandi.
„Korkur er sígildur og
fer aldrei úr tísku. Hann
hefur gríðarlegt þol gegn
hvers kyns ágangi, veit-
ir viðnám gegn blettum
og efnablöndum, nær sér
eftir dældir og er sjálfs-
lökkvandi ef eld ber að.
Viðhald er í algjöru lág-
marki og í dag bjóðum við
WRT-keramiklakk með
fimmtán ára slitábyrgð,“
segir Ólafur og bætir við
að nú sé algengt að leggja
kork með öðrum gólfefn-
um í sama herbergi.
Verð á Wicanders-korki
er frá 1.700 upp í 5.500
krónur með lími og lakki.
thordis@frettabladid.is
Suðrænn trjábörk-
ur á íslensk gólf
Ólafur Traustason, sölu-
maður hjá Þ. Þorgrímssyni,
segir einangrunargildi korks
einstakt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðalflutningar
Öryggi alla leið
OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 17.00 Föst. til kl. 16.00
Skútuvogi 8 S. 581 3030 Fax: 471 2564 adaleg@simnet.is
Nú geta enn fleiri nýtt sér frábæra
þjónustu Aðalflutninga
www.adalflutningar.is