Fréttablaðið - 11.09.2007, Síða 41
Rokkhátíðin Sköllfest verður
haldin í annað sinn í Hellinum í
kvöld. Fram koma bandaríska
þungarokksveitin Blacklisted og
íslensku sveitirnar Celestine,
Diabolus, Drep, Dys, I Adapt,
Kimono, Skítur, South-Coast Kill-
ing Company og Retron.
Skipuleggjandinn Birkir Viðars-
son, söngvari I Adapt, segir að
hátíðin hafi gengið svo vel í fyrra
að ákveðið var að endurtaka leik-
inn í ár. „Það gekk betur í fyrra
en ég átti von á. Þarna er ofur-
áhersla lögð á músíkina frekar en
að þetta sé partídjamm. Þetta er
algjör tónlistarfögnuður,“ segir
Birkir, sem er afar spenntur fyrir
tónleikum Blacklisted. „Þetta eru
rosalegir listamenn sem sprengja
öll form utan af sér. Þeir eru eins
og sjóarar með veðurbarin
andlitin.“
Sköllfest hefst klukkan 18 og er
aðgangseyrir 1.000 krónur.
Uppselt var á hátíðina í fyrra og
því þurfa rokkaðdáendur að hafa
hraðar hendur ætli þeir að tryggja
sér miða.
Rokkað á Sköllfest í kvöld
Nýjasta mynd Russell Crowe,
vestrinn 3:10 to Yuma, fór beint á
toppinn á norður-ameríska
aðsóknarlistanum en hann sýnir
aðsóknartölur í Bandaríkjunum
og Kanada. Myndin er endurgerð
samnefnds vestra frá árinu 1957
með Glenn Ford í aðalhlutverki.
Þann 21. september verður
vestrinn The Assassination of
Jesse James, með Brad Pitt í
aðalhlutverki, frumsýndur og mun
hann væntanlega eiga í harðri
keppni við 3:10 to Yuma. Pitt var
óvænt kjörinn besti leikarinn á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
fyrir hlutverk sitt í myndinni.
Í öðru sæti á norður-ameríska
aðsóknarlistanum var endurgerð
hryllingsmyndarinnar Halloween,
sem hafði áður setið í toppsætinu.
Crowe á toppinn
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opið virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16