Fréttablaðið - 20.09.2007, Side 72
Hvað er að þessu liði? Slagandi um helgi eftir helgi, mígandi
utan í veggi, slefandi fullt og
ógeðslegt í örvæntingarfullri leit
að einhverju til að dempa depurð-
ina og einhverjum til að fjölga sér
með. Getur þetta lið ekki hist í
iðnaðarhverfum svo Egill Helga-
son og Þráinn Bertelsson geti
hlaupið á náttbuxunum eftir
baguette kl. 8 á laugardagsmorgni
án þess að stíga í ælu eða fá einn
gúmoren hjá vitstola ofbeldis-
hnakka?
meðan áfengi er ekki bara leyft
heldur líka selt af ríkinu verður
einhvers staðar að vera hægt að
drekka það. Eða er kannski ein-
hver byrjaður að tala um áfengis-
bann í hinni miklu miðbæjarmóð-
ursýkisumræðu sem nú fer fram?
Reyndar væri mér alveg sama
þótt mér væri bannað að finna á
mér – áfengisvíma er eitthvað svo
aumingjalegt ástand og Pálmi
Gunnarsson hafði alveg rétt fyrir
sér þarna um árið – en verður
maður ekki að hugsa um heild-
ina? Fjölmörgum er fró í því að
hrynja íða, enda ekki furða þar
sem lífið á skerinu snýst um að
þræla myrkranna á milli til að
hafa efni á að láta öll gráðugu ein-
okunarfyrirtækin á landinu taka
sig í bakaríið. Er nema von að
Íslendingar séu drykkjusjúkir?
Grænlendingar hvað?
er ég sem betur fer
sloppinn, en þarna slarkaði ég
áratugum saman, mígandi í sund,
brjótandi flöskur, dettandi á svell-
bunkum, rífandi kjaft og verandi
sá fulli hálfviti sem áfengisfram-
leiðendur minnast aldrei á í aug-
lýsingunum sínum. Ég lagði
reyndar aldrei hendur á neinn,
enda ekki algjör hálfviti, og slapp
við að vera barinn, sem er heppni.
Ef borðalagður Stefán Eiríksson
hefði leitt mig niðrá stöð og sekt-
að um tíu þúsund kall fyrir að
míga á rúðuna í Dressmann hefði
ég orðið brjálaður, en sennilega
aldrei migið á rúðu aftur. Nóg að
láta skemma fyrir sér kvöldið
einu sinni.
miðbæjarvandinn er
sá að allir – og þá meina ég
nákvæmlega allir – sætta sig bara
ekki við að vera heima hjá sér að
horfa á fjölskyldumyndina á RÚV.
Það verður aldrei. Og áfengis-
víma mun lengi þykja eftirsókn-
arverð. Miðbæjarvandinn er því
kominn til að vera. Tja, nema
risastóru verslunarmiðstöðinni
sem nú er verið að reisa á leiðinni
til Mosfellsbæjar verði breytt í
stærsta skemmtistað í heimi.
Miðbæjar-
vandinn
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
0
2
9
Gríptu augnablikið og lifðu núna
ADSL án heimasíma
Hjá Vodafone getur þú fengið ADSL þjónustu án þess að
vera með heimasíma og sparað þér 1.445 kr. á mánuði
Hraði
6 Mb/s
8 Mb/s
12 Mb/s
Gagnamagn
2 GB
ótakmarkað
ótakmarkað
Verð
4.360 kr.
5.460 kr.
6.490 kr.
Hámark
6.860 kr.
5.460 kr.
6.490 kr.
ADSL plús án heimasíma – við förum hraðar á lægra verði
Hvað er innifalið?
• Allt að 5 pósthólf
• Vírusvörn á pósthólf
• Vefpóstur
• 50 MB heimasíðusvæði
• Gjaldfrjálst þjónustunúmer -1414
• Gjaldfrjáls niðurhal innanlands
• Verðþak á erlendu gagnamagni
Greitt er fyrir umframgagnamagn að verðþaki. Fylgstu með notkun þinni á www.vodafone.is.
Skilyrði er að gerður sé 6 mánaða samningur. Stofngjald 6000 kr.