Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 50
Runólfur Gunnlaugsson lögg. fast.sali – Kristín Pétursdóttir, lögg. fast.sali Opið hús í dag frá kl. 17:30 til 19:00 Trönuhjalli 5 – íbúð 302 Fr u m Til sýnis í dag mjög falleg 4ra her- bergja endaíbúð á efstu hæð með einstöku útsýni til suðurs og vesturs. Parket og flísar á gólfum. Nýleg eikar- innrétting í eldhúsi. Þvottahús í íbúð. Þrjú svefnherb., skápar í tveimur. Góð aðkoma og frágengin lóð með leiktækjum. Í heildina er um að ræða mjög fallega íbúð sem búið er að innrétta á smekklegan hátt og halda vel við. Verð 28,9 millj. Benedikt og Elísabet sýna íbúðina í dag frá kl. 17:30 til 19:00. Sjón er sögu ríkari! Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 HRINGDU NÚNA 699 6165 Bóas Sölufulltrúi 699 6165 boas@remax.is Gunnar Sölufulltrúi 899 0800 go@remax.is Stefán Páll Löggiltur Fasteignasali ATHVIÐ SELJUM ALLA DAGA ! Þjónusta ofar öllu Um daginn heyrði ég af matarboði úti í bæ þar sem húsráðanda brá heldur í brún við að sjá einn gestinn slá til heimiliskattarins. Eng- inn annar virtist taka eftir þessu svo húsráð- andi taldi sér í fyrstu hafa missýnst. En svo sá hann gestinn endurtaka leikinn og kom ekki upp orði fyrir undrun og reiði. Í lok kvöldsins héldu gestirnir heim á leið og umræddur aðili, sem var yfirlýstur dýravinur, hafði orð á því að húsráðandi væri einstak- lega lánsamur að eiga jafn gæfan kött. Það réði hann af viðbrögðum dýrsins sem sýndi engin mótmæli þótt í það væri slegið og hlyti því að vera sauðameinlaust grey. Til allr- ar hamingju heyrir maður ekki oft sögur sem lýsa jafn vel þeirri grimmd sem mannskepnan getur í skeytingarleysi sínu sýnt öðrum dýrategundum. Þó hef ég marg- sinnis heyrt foreldra hreykja sér af einstöku umburðarlyndi dýra, sem hreyfa ekki við mótmælum þótt börnin á heimilinu lemji, rífi í eða poti í augun á þeim. Á hinn bóginn hef ég ekki heyrt marga hrósa fólki, sem verður fyrir barðinu á ofbeldismönnum og ber sorg sína í hljóði. „Hún Gunna er umburðarlyndasta manneskja sem ég þekki og það þótt víðar væri leit- að. Það er alveg sama hversu oft Jón gengur í skrokkinn á henni, alltaf heldur þessi elska ró sinni.“ Við skulum þó muna að það er líka fullt af konum eins og Gunnu sem dag einn fá sig fullsaddar af ofbeldinu og ákveða að svara í sömu mynt. Eins eiga rólegustu gæludýr til að tryllast að því er virðist fyrirvaralaust og svara fyrir sig. Sjálfur lenti ég í því aðeins fjög- urra ára að fjölskylduhundur reif stykki úr efri vörinni á mér, eftir að ég hafði hamast í honum. Til allrar hamingju greri sárið og hvutta var fyrirgefið. Í dag láta margir lóga dýrunum sínum fyrir sömu og jafnvel miklu minni sakir. Komum því fram við dýrin af virðingu og kennum börn- unum okkar að umgangast þau með sams konar hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.