Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 22
nám, fróðleikur og vísindi Kannar tengsl menningar og umburðarlyndis Yfir hundrað manns mættu á stofnfund Samtaka áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia (SARE) síð- astliðinn fimmtudag. Um er að ræða leikskólastarf sem leggur áherslu á lýðræði, gagnrýna hugsun og sköpun barnanna. Kristín Dýrfjörð, lektor við Háskólann á Ak- ureyri og formaður samtak- anna, ræddi við blaðamann um leikskólalýðræði. Hugmyndafræði Reggio Emilia er nefnd eftir samnefndri borg á Ítalíu og varð til skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Kristín Dýrfjörð, formaður Sam- taka áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia, segir foreldra á þessum tíma, einkum mæður, hafa viljað læra af reynslu fyrri ára og forðast að ala upp börn sem gengju beint inn í fasisma þegar þau eltust. „Mæðurnar spurðu sig: Hvers konar leikskólauppeldi styður við skapandi einstaklinga sem verða að þenkjandi fólki? Hvað getum við gert til að þannig verði fram- tíðin? Út frá því varð hugmynda- fræðin til,“ segir Kristín. Nokkrir íslenskir leikskólar vinna í anda Reggio Emilia-hug- myndafræðinnar, meðal annars Iðavöllur á Akureyri, Regnbog- inn í Reykjavík og Marbakki í Kópavogi. Marbakki var fyrstur, tók til starfa 1986, og því eru fyrstu íslensku Reggio-börnin að skríða yfir tvítugsaldurinn í dag. Kristín segir að þótt hugmynda- fræðin sé ekki fastmótuð stefna – hún hefur til dæmis enga sér- staka námskrá – þá sé höfuðá- hersla lögð á lýðræði. „Með lýð- ræði er ekki endilega verið að meina að börnin hafi bein áhrif á starfið með kosningum, þótt það sé vissulega hægt, heldur að það sé hlustað á barnið. Lýðræðið felst í því að viðurkenna rétt barnanna til að hafa áhrif á það sem er verið að gera, beint eða óbeint.“ Sem dæmi nefnir hún verkefni um maríuhænur sem var unnið í dönskum leikskóla fyrir nokkrum árum. Þegar verkefnið hófst kom í ljós að börnin, sérstaklega eitt þeirra, höfðu mun meiri áhuga á könguló sem þau höfðu fundið en maríuhænunum. „Í staðinn fyrir að segja börn- unum að hætta að skoða köng- ulóna því verkefnið fjallaði um maríuhænur þá mátu leikskóla- kennararnir það svo að þetta væri það sem börnin hefðu áhuga á, og breyttu verkefninu í köngulóar- verkefni. Það er reynt að hlusta á hvar áhugi barnanna liggur og út frá því vinna leikskólakennararn- ir með börnunum.“ Áhersla lögð á lýðræði og gagnrýna hugsun Fr um Glæsileg 121,1 fm. 3-4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi á 4. hæð. Íbúðin skipt- ist í hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús með borð- krók,stofu og boðrstofu (herbergi). Góðar suður svalir, frábært útsýni. Byggt árið 2001. Stæði í bílgeymslu og sérgeymsla fylgir. V. 32,6 millj. Opið hús í dag milli kl. 18:00 og 18:30, íbúð 401 Glósalir 7 – Opið hús Laugavegur 182 4. hæð • 105 Rvk Sími 533 4800 Björn Þorri, hdl., lögg. fast.sali. – Karl Georg, hrl., lögg. fast.sali. Borgartún 29 SÍMI 510 3800 FAX 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson Elías Haraldsson Lögg. fasteignasalar Opið hús í dag milli kl. 18 og 19 Þinghólsbraut 41 - Sérhæð Fr um Mikið endurnýjuð og frábærlega staðsett ca 140 fm neðri hæð með sér inn- gangi. Eignin er með glæsilegu eldhúsi sem er hannað af Rut Káradóttur arkitekt. Þá eru stofur bjartar og fallegar. Frá borðstofu er útgangur út á svalir til suðurs með fallegu útsýni. 4 herb., geymsla og baðherbergi inn af herbergisgang. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár og má þar nefna eldhús, bað, þakjárn, ofnar og ofnalagnir. Verð 34,8 millj. Arnar og Kristjana taka vel á móti gestum milli kl. 18 og 19 i dag. Teikningar á staðnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.