Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 38
20. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið nýir bílar
Toyota Prius Hybrid er þró-
aður í samræmi við bylting-
arkennda tækni sem kallast
Hybrid Synergy Drive og segir
Kristinn J. Einarsson, sölustjóri
Toyota í Kópavogi, bílinn með
þeim umhverfisvænni á mark-
aðnum í dag.
„Hybrid Synergy Drive er sam-
setning rafmótors og bensínvél-
ar sem skilar miklu afli, framúr-
skarandi eldsneytiseyðslu sem
er um 4,3 lítrar á hverja hundr-
að kílómetra og lágri mengun í út-
blæstri sem er á við litla borgar-
bíla,“ segir Kristinn J. Einarsson,
sölustjóri Toyota, og bætir því við
að Prius sé með umhverfisvæn-
ustu bílum á markaðinum í dag.
„Það þarf aldrei að hlaða raf-
geyminn því hemlakerfið fangar
hreyfiorkuna sem verður til þegar
hemlað er og breytir henni í raf-
orku sem er geymd í háspennu-
rafgeyminum. Þetta er nýjung
sem er hugsuð fyrir þá sem hafa
ánægju af akstri en vilja um leið
hafa sem minnst áhrif á umhverf-
ið,“ segir Kristinn og tekur fram
að bíllinn sé mjög samkeppnis-
hæfur í verði miðað við þennan
flokk af bílum og kosti 2.699.000
krónur í dag.
Kristinn segir viðbrögð neyt-
enda við þessari tækni víðs vegar
um heiminn ekki hafa látið á sér
standa. „Nú þegar hefur yfir ein
milljón Prius-bíla verið seld í
heiminum enda er Toyota í farar-
broddi í heiminum í þróun á þessu
Hybrid-kerfi.“
Þá segir Kristinn að ökumaður-
inn finni ekkert fyrir því að Prius
Hybrid sé rafmagnsbíll fyrir utan
það að hann drepi á bensínmót-
ornum þegar bíllinn stoppar til
dæmis á ljósum til þess að spara
eldsneyti og sé þar með umhverf-
isvænni.
„Svo er hann fyllilega sam-
keppnishæfur í öryggi því hann
er með ABS-bremsukerfi, EBD-
hemlajöfnunarkerfi, stöðugleika-
stýringu og fleira þannig að bíll-
inn er vel búinn auk þess sem hann
lítur mjög vel út,“ segir Kristinn
og bætir því við að þrátt fyrir að
menga eins og lítill borgarbíll þá
sé hann samt á stærð við Avensis.
„Hann rúmar vel fimm farþega og
farangur.“ sigridurh@frettabladid.is
Öruggur og umhverfisvænn
RAFKNÚIN
SPORTKERRA
Tesla-sportbíllinn
er aðeins fimm sek-
úndur að ná 100
km hraða á klukku-
stund. Þetta væri
kannski ekki í frá-
sögur færandi ef
ekki væri fyrir þær
sakir að bíllinn er
rafdrifinn.
Flestir tengja
rafmagnsbíla við
frekar máttlitla, smáa og oft á tíðum furðulega lagaða bíla. Eigendur
Tesla Motors eru ekki sammála því og smíðuðu því sportbíl sem
byggður er á breska sportbílnum Lotus.
Vélin er 248 hestafla rafmótor, liþíum-jóna rafgeymar bílsins eru
um 500 kíló að þyngd og bíllinn kemst um 375 km á hleðslunni.
Hámarkshraði bílsins er 220 km á klukkustund.
Tesla-bílinn er ekki hægt að kaupa úti í búð enda er hver bíll
smíðaður eftir pöntun eins og oft er með dýrari bíla. Bíllinn virðist
vinsæll hjá fræga fólkinu en meðal þeirra sem fá fyrstu sportbílana
afhenta eru þeir Arnold Schwarzenegger og George Clooney. Þeir
þurfa að punga út um 100 þúsund dollurum fyrir glæsikerruna.
Tesla roadster rafmagnsbíll
Grænt og umhverfisvænt er
yfirskrift bílasýningarinnar sem
fram fer í Frankfurt þessa dag-
ana. Þetta er í 62. skipti sem sýn-
ingin er haldin og því orðin fast-
ur liður í kynningarstarfsemi bíla-
framleiðenda.
Hugmyndabílarnir vekja ávallt
verðskuldaða athygli á slíkum sýn-
ingum og svo er einnig nú. Tvinn-
bílar og rafmagnsbílar eru áber-
andi meðal hugmyndabílanna og
greinilegt að stefnan í bílabrans-
anum er að huga að umhverfinu í
framtíðinni.
Bensínhákar og glæsibílar eru
þó einnig meðal þeirra bíla sem
sýndir eru svo af nógu er að taka
fyrir alla.
Umhverfið í hávegum á
bílasýningu í Frankfurt
Mercedes-Benz F 700 hugmyndabíllinn:
Meðal hugmyndabíla í Frankfurt er
BMW X6 ActiveHybrid tvinnbíllinn.
Prius Hybrid er að sögn Toyota-umboðsins með þeim umhverfisvænni á markaðinum
í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA