Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 2
Stefán, hvað eiga þá korter-í- þrjú gæjarnir að gera? Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 „Mér skilst að það sé búið að ráða einhvern annan og að það sé leyndarmál,“ segir Sigur- jón Þórðarson, fyrrverandi þing- maður Frjálslynda flokksins, um starf framkvæmdastjóra flokks- ins. Hann fullyrðir að Guðjón Arnar Kristjánsson flokksformaður hafi lofað sér starfinu í aðdraganda kosninganna í vor, næði hann ekki kjöri til þings. Sigurjón hefur tekið við sínu gamla starfi sem framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Norð- urlands vestra og segist því vera farinn að hugsa um aðra hluti. Hann kveðst þó ekki vera reiður Guðjóni Arnari. „Ég er bara hissa á honum,“ segir hann. Að sögn Sigurjóns var hann beðinn um að færa sig úr Norð- vesturkjördæmi í Suðurkjör- dæmi eftir að Kristinn H. Gunn- arsson gekk í flokkinn. Þar var fyrir á fleti Grétar Mar Jónsson og vildi Sigurjón ekki rugga bátn- um þar eftir „Margrétarmálin“ í flokknum. Síðar hafi verið rætt um fram- boð hans í Suðvesturkjördæmi og loks Norðausturkjödæmi. „Guð- jón óskaði eftir því við mig að ég færi fram þar,“ segir Sigurjón „og bauð mér að verða fram- kvæmdastjóri ef þannig færi.“ Svo fór að Sigurjón var ekki kjörinn á þing en engu að síður hefur honum ekki boðist að setj- ast í stól framkvæmdastjóra flokksins. „Lýðræðið getur verið þungt í vöfum,“ var það eina sem Guðjón Arnar vildi segja um málið. Hann bætti þó við að ráðning fram- kvæmdastjóra væri ekki frágeng- in en um hana yrði tilkynnt þegar þar að kæmi. Magnús Reynir Guðmundsson hefur verið framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins síðan Mar- gréti Sverrisdóttur var vikið úr starfinu síðastliðinn vetur. Sigurjón hissa á formanninum Miðborgin Húsafriðunarnefnd hefur lagt til að tólf hús í miðbæ Reykjavíkur verði friðuð, þar af tíu við Laugaveg. Verslunin Brynja og Kaffi Hljómalind eru meðal þeirra. Húsin eru öll byggð fyrir 1908 en fjögur þeirra má rífa, sam- kvæmt gildandi deiliskipulagi. Á Akureyri leggur nefndin til að húsin við Hafnarstræti 94, 96 og 98 verði friðuð. Eitt þeirra, Hótel Akureyri, hefur átt að rífa. Í tilkynningu frá nefndinni segir að húsin hafi öll mikið gildi fyrir umhverfi sitt, flest þeirra hafi einnig listrænt gildi eða menningarsögulegt. Menntamálaráðherra ákveður hvort af friðun verður. Hljómalind og Brynja friðuð Kristbjörg Stephen- sen borgarlögmaður segir ekki hægt að hagga við næturopnun 10- 11 á Hjarðarhaga. Nágrannar verslunarinnar og hverfisráð Vesturbæjar kröfðust þess í apríl að lokað yrði á Hjarðarhaga á nótt- unni. Nú hafa nágrannar 10-11 á Laugalæk sent borgaráði kröfu um að 10-11 þar verði lokað að nætur- lagi. Kristbjörg segir í umsögn til borgarráðs að sveitarfélög hafi ekki lagaheimild til að takmarka afgreiðslutíma verslana þar sem hann sé frjáls. Þó mætti setja þannig takmarkanir inn í skipu- lagskilmála hvers hverfis: „Slíkt verður þó tæpast gert gagnvart verslunum sem þegar eru starfandi á viðkomandi svæði, að minnsta kosti ekki án greiðslu bóta vegna þeirrar skerðingar,“ segir Kristbjörg sem telur að næt- uropnun 10-11 verði ekki haggað. „Enda geta engar aðrar reglur gilt um verslunina en almennt gilda um verslunarstarfsemi í þjóðfé- laginu,“ segir hún. Þá hefur Kristbjörg eftir fram- kvæmdastjóra 10-11 að gripið hafi verið til ráðstafana til að sporna við ónæði frá versluninni á Hjarð- arhaga. Öryggisvörður sé utan við búðina á nóttunni til að koma í veg fyrir mannsöfnuð og hvorki sé komið með vörur í verslunina né sorpgámar þar losaðir eftir klukk- an tíu á kvöldin. Nágrannar 10-11 á Laugalæk krefjast þess samt að verslunin þar sé lokuð að minnsta kosti frá miðnætti til klukkan átta að morgni. Næturopnuninni fylgi endurtekin truflun á svefni af völdum óláta þannig að ekki sé lengur um að ræða friðsælt íbúð- arhverfi, eins og segir í mótmæla- bréfi 50 íbúa til borgarráðs. Lára Magnea Jónsdóttir, sem býr gegnt 10-11 á Laugalæk, segir að þrátt fyrir niðurstöðu borgar- lögmanns verði borgin að taka á málinu. „Hér eru til dæmis mikil fylliríslæti um helgar í bílum fyrir utan búðina með tilheyrandi háreysti. Svona gengur þetta alls ekki,“ segir Lára. Guðjón Reynisson, fram- kvæmdastjóri 10-11, segist ekki hafa heyrt af athugasemdum íbú- anna á Laugalæk. „Ég tek þetta mjög alvarlega. Það er mjög skilj- anlegt að fólk sé pirrað ef nætur- svefn þess er truflaður. Ég mun ekki sitja aðgerðarlaus heldur skrá það sem þarf að gera – og standa svo við það,“ segir Guðjón. Næturopnun 10-11 verður ekki haggað Nágrannar krefjast þess að borgin afturkalli leyfi 10-11 til að hafa opið á Lauga- læk að næturlagi. Það er ekki hægt nema með því að breyta skipulagi og greiða bætur segir borgarlögmaður um sams konar mál varðandi 10-11 á Hjarðarhaga. Ungi karlmaðurinn sem lenti í bílslysinu í Reykhólasveit er látinn. Hann hét Marius Polenski og var tvítugur að aldri. Hann bjó í foreldrahúsum á Tálknafirði. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar alvarlega slasaður eftir útafakstur við bæinn Klukkufell á mánudagskvöldið. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var hann meðvitundar- laus þegar björgunarmenn komu á vettvang og komst aldrei til meðvitundar. Honum hafði verið haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi með alvarlega áverka, meðal annars á höfði. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar tildrög slyssins. Lést í bílslysi í Reykhólasveit Mikil yfirvinna með tilheyrandi álagi og þreytu stefnir flugöryggi í hættu, auk þess að hafa áhrif á heilsu flugumferðarstjóra. Fundur Samtaka flugumferðarstjóra á Norðurlöndunum hvatti til þess að þörf fyrir yfirvinnu við stjórnun flugumferðar yrði útrýmt. Aukið álag var meðal þess sem rætt var á fundi norrænna flugumferðarstjóra sem fram fór í Reykjavík nýverið. Segja yfirvinnu valda hættu Hjörleifur Jakobsson, for- stjóri Kjalars sest á morgun í stjórn HB-Granda í stað Þórhalls Helga- sonar. Eggert B. Guðmundsson, for- stjóri HB-Granda segir breyting- arnar eðlilegar þar sem Kjalar sé orðinn næst- stærsti hluthaf- inn í fyrirtæk- inu. Nýverið tilkynnti HB- Grandi um brottflutning starfsemi sinnar frá Reykjavík og uppbyggingu fiskiðjuvers á Akranesi en hætti svo við. Spurður hvort undirrót breytinga á stjórn væri óánægja Kjalarsmanna með málsmeðferðina vildi Eggert engu svara. Stjórn HB-Granda, frá og með morgundeginum, skipa Árni Vilhjálmsson formaður, Kristján Loftsson varaformaður, Bragi Hannesson, Halldór Teitsson og Hjörleifur Jakobsson. Nýr í stjórnina Til skoðunar er að gefa fíkniefnaneytendum spraut- ur og sprautunálar til að bregðast við hópsýkingu á HIV sem virðist í uppsiglingu meðal þessa hóps, segir Haraldur Briem sóttvarna- læknir. Það sem af er þessu ári hafa fjórir fíkniefnaneytendur greinst með HIV-sýkingu, sem er sami fjöldi og greindist samanlagt á árunum 2002-2006. Haraldur segir ljóst að um innbyrðis smit hafi verið að ræða hjá fólki sem sprautar sig með eiturlyfjum. Slíkt er óvenjulegt hér á landi, undanfarin ár hefur frekar verið um einstök tilvik að ræða. HIV- faraldur meðal fíkniefnaneyt- enda hefur þó verið áhyggjuefni heilbrigðisstarfsmanna hérlendis frá því alnæmisfaraldurinn barst til landsins í byrjun níunda ára- tugarins. „Við höfum auðvitað miklar áhyggjur af því að þetta geti farið að breiðast snarlega út í þessum hópi,“ segir Haraldur. Hann segir að eftir sé að ræða útfærslu á slíkri dreifingu, en niðurstöður séu væntanlegar nú í haust. Til greina komi að apótek eða heilsugæslustöðvar dreifi sprautum og nálum. Einnig sé þekkt erlendis að sérstakir staðir þjóni fíkniefnaneytendum og þar geti þeir fengið hreinar nálar og sprautur. Vill gefa sprautur og nálar Í Garðabæ er unnið að því að fjölga félagslegum íbúðum um tvær á næstunni, að sögn Gunnars Einarssonar bæjarstjóra. Í Garðabæ er lægst hlutfall félagslegra íbúða hjá þeim sveitarfélögum á höfuðborgar- svæðinu sem á annað borð eru með slíkar íbúðir. Þær eru 14 talsins, eins og fram kom hér í blaðinu í gær. Spurður segir hann ástæðu þessa vera þá að bærinn hafi ekki viljað vera með íbúðir „á lager“. „Við höfum bara horft á þörfina og mætum henni eins vel og við getum,“ segir hann. Fjölgað um tvær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.