Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 24
[Hlutabréf]
Græn ljós blikkuðu á fjármála-
mörkuðum um allan heim í gær
eftir að seðlabanki Bandaríkjanna
ákvað að lækka stýrivexti um
heila 50 punkta klukkan 18.15 að
íslenskum tíma á þriðjudag.
Gengi hlutabréfavísitalna tók
stökkið í kjölfarið og hækkaði á
bilinu frá tveimur til tæpra fjög-
urra prósenta. Tímamót felast í
ákvörðuninni en stýrivextir hafa
ekki lækkað í Bandaríkjunum
síðan undir lok árs 2003.
Flestir fjármálasérfræðingar
höfðu reiknað með 25 punkta
lækkun í besta falli vegna óróleika
á fjármálamörkuðum og vísbend-
inga um að erfiðara aðgengi að
lánsfé í kjölfar erfiðleika á banda-
rískum fasteignalánamarkaði
gæti komið niður á hagvexti. Þeir
útilokuðu þó ekki 50 punkta lækk-
un.
Eftir því sem nær dró vaxta-
ákvörðun gætti talsverðrar óvissu
á fjármálamarkaði enda óttuðust
margir að svo gæti farið að seðla-
bankastjórinn Ben Bernanke
myndi standa fast á sínu og
ákveða að halda vöxtum óbreytt-
um þar eð fátt benti til að draga
ætli úr verðbólgu vestanhafs.
Þessa stefnu bankans hefur Bern-
anke ítrekað lagt áherslu á en
stýrivöxtum hafði verið haldið
óbreyttum í 5,25 prósentum frá
því í júní í fyrra. Þeir standa frá
og með þriðjudeginum í 4,75 pró-
sentum.
Grænn dagur á mörkuðum
Peningaskápurinn …
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis verður form-
lega að hlutafélagi hinn 1.
apríl næstkomandi, en
Fjármálaeftirlitið sam-
þykkti í gær breytingu
SPRON í hlutafélag.
Guðmundur Hauksson,
sparisjóðsstjóri, segir
ákvörðun fjármálaeftir-
litsins vera lokahnykkinn
í lögformlegu ferli. Næsta
skref sé að sækja um aðild
að Kauphöllinni. „Við eigum eftir
að ganga frá skráningarlýsingu og
semja við Kauphöllina um allar
dagsetningar. Þannig að við eigum
talsverða undirbúningsvinnu fyrir
höndum.“ Guðmundur telur þó lík-
legt að skráning verði frágengin
fyrir áramót. Talsverður
órói hefur verið á hluta-
bréfamarkaði undanfarnar
vikur. Guðmundur segist
alls ekki smeykur, enda
byggist ákvörðunin um að
leita skráningar á lang-
tímasjónarmiðum. „Þó svo
einhverjir tímabundnir
örðugleikar séu á markaði
höfum við ekki í hyggju að
láta slíkt stöðva okkur. Við
höldum áfram með okkar
fyrirætlanir, en nákvæm tímasetn-
ing skráningar verður að ráðast af
stöðu á markaði.“ Markaðsverð-
mæti SPRON er um sextíu millj-
arðar króna samkvæmt mati
Capacent Gallup á verðmæti sjóðs-
ins.
SPRON orðið hlutafélag
Skrá á SPRON í Kauphöllina eins fljótt og auðið er.
Tímasetning skráningar ræðst af stöðu á markaði.
Kínverska ríkisflugfélagið China
Air hagnaðist um 1,57 milljarða
júana, jafnvirði 13,2 milljarða
króna, á fyrri hluta árs, þrátt fyrir
þrengingar á fjármálamörkuðum.
Hagnaðurinn er þrisvar sinnum
meiri en á sama tíma í fyrra.
Mikil fjölgun farþega í skjóli
betri efnahags og aukinna fjár-
ráða almennings í Kína skiptir
mestu um bætta afkomu flugfé-
lagsins. Sérstaklega fjölgaði far-
þegum á viðskiptafarrými. Í frétt
breska ríkisútvarpsins segir að
hagnaðurinn hefði orðið enn meiri,
ef ekki hefðu komið til verðhækk-
anir á eldsneyti. Þá munar miklu
um styrkingu kínverska júansins
gagnvart Bandaríkjadal en skuldir
félagsins eru að mestu í dölum.
Ólympíuleikarnir verða haldnir
í Peking að ári og er China Air
einn af styrktaraðilum leikanna.
Gert er ráð fyrir verulegri fjölgun
farþega í tengslum við þá.
China Air þre-
faldar hagnað
Nýr forstjóri
yfir Apple
Seðlabankinn segist ekki
hafa fengið formlegt erindi
um evruskráningu Straums
í Kauphöllina. Fyrirhuguð
uppgjörsleið var þó kynnt
og færð til bókar í Samráðs-
nefnd í forystu bankans í
byrjun maí. Fjármálaeft-
irlitið skoðar nú túlkun á
15. grein laga um rafræna
eignaskráningu verðbréfa.
en um hana snýst athuga-
semd Seðlabankans sem tef-
ur evruskráningu Straums.
Seðlabankinn segist ekki hafa
fengið formlegt erindi um þá
fyrirætlan að hefja viðskipti með
hlutabréf Straums í evrum í dag.
Á þriðjudag var frá því greint að
fresta hafi þurft evruskráning-
unni vegna athugasemda sem
Seðlabankinn sendi Verðbréfa-
skráningu síðasta föstudag.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er það orðað svo í bréfinu að
„bankastjórnin hafi haft spurnir
af“ fyrirhugaðri breytingu. Stóðu
þó bæði Straumur og Verðbréfa-
skráning í þeirri trú að bankanum
væri fulljóst um allar fyrirætlan-
ir, enda hefðu þær verið
bókaðar á fundi lögboðinnar sam-
ráðsnefndar hlutaðeigandi undir
forystu Seðlabankans strax sjö-
unda maí á þessu ári. Þá hefur
blaðið heimildir fyrir því að Fjár-
málaeftirlitið hafi í lok síðasta
mánaðar fallist á fyrirkomulag
evruskráningarinnar, að því
gefnu að rétt leið yrði farin í að
tilkynna hluthöfum Straums um
breytinguna.
Guðmundur Kr. Tómasson, stað-
gengill framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs Seðlabankans og for-
maður Samráðsnefndar um
samskipti verðbréfamiðstöðva,
kauphalla og Seðlabanka Íslands,
segir rétt sem fram hafi komið að
athugasemd sem bankinn gerði
við fyrirhugaða skráningu hluta-
bréfa Straums í evrur snúi að laga-
tæknilegu atriði. „Vandinn snýst
um að löggjafinn hefur heimilað
skráningu hlutabréfa í
erlendri mynt, án þess að
tekið hafi verið á hvernig
ljúka eigi peningalegu
uppgjöri þeirra viðskipta.
Lögin gera ráð fyrir að
Seðlabanka
Íslands sé falið
þetta peninga-
lega uppgjör,“
segir Guðmund-
ur og vísar þar
til 15. greinar laga um rafræna
eignaskráningu verðbréfa frá
árinu 1997. Hann segir ekki loku
fyrir það skotið að breyta þurfi,
eða skerpa á lögunum. „En málið
verður leyst, það er ekki spurn-
ing,“ segir hann og vonast til að
lausn liggi fyrir innan skamms
tíma. Seðlabankinn sendi Verð-
bréfaskráningu Íslands í gær
annað bréf þar sem afstaða bank-
ans er skýrð nánar.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru skiptar skoðanir um túlkun
lagagreinarinnar sem Seðlabank-
inn vísar í. Samkvæmt túlkun
Seðlabankans á hann einn að sinna
fjárhagslegu uppgjöri viðskipta
með rafbréf sem skráð eru hjá
verðbréfamiðstöð, óháð því í
hvaða mynt viðskiptin eru. Önnur
túlkun er hins vegar að bankanum
sé skylt að sinna verkinu sé fram á
það farið, en ekkert útiloki að
aðrir geri það líka. Í því sambandi
er bent á að ekki hafi tíðkast að
Seðlabankinn annaðist „efndalok
allra viðskipta með rafrænt skráð
verðbréf“ heldur komi Seðlabank-
inn til dæmis ekki nálægt utan-
kauphallarviðskiptum í mörgum
tilvikum. Fjármálaeftirlitið fer nú
yfir málið með tilliti til áherslu-
munar á túlkun lagagreinarinnar.
Evruskráning gæti
þýtt lagabreytingu
Sigríður Olgeirsdóttir hefur verið
ráðin í starf forstjóra Humac, sem
er söluaðili Apple á Norðurlönd-
um. Hún tekur við af Bjarna Áka-
syni sem hefur selt hlut sinn í
félaginu og snúið sér að öðrum
verkefnum.
Sigríður hefur lengi verið
viðriðin upplýsingatæknigeirann.
Humac er með starfsemi á
Íslandi Danmörku, Noregi,
Svíþjóð og Finnlandi.