Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 29
París lifir og hrærist í kringum ruðningsíþróttina þessa dagana og verður svo líklega áfram í nokkrar vikur. Það er ekki aðeins íþróttaheimurinn sem er undir- lagður af heimsmeistarakeppn- inni í ruðningi sem hófst hér 9. september og stendur til 20. okt- óber. Barir sýna beint frá leikj- um keppninnar og við Ráðhús Parísar er nú risaskjár þar sem fólk kemur saman til að fylgjast með leikjunum. Meira að segja tískan snýst í kringum þessa íþróttagrein en milljónir evra skipta um eigendur í kringum keppnina og þúsundir erlendra gesta koma til landsins til að fylgjast með. Það sem best selst eru treyjur liðanna, þeirra sem frægust eru eins og hinna nýsjá- lensku All blacks, skoska liðsins, þess ástralska og svo auðvitað þess franska, enda á heimavelli. Treyj- urnar eru bókstaflega rifnar út og svo mikil sala er í þeim að búðirn- ar tæmast. Hjá Nike, svo dæmi séu tekin, eru derhúfur og bolir í litum franska landsliðsins en Adidas veðjar á All blacks með Haka- bol. Hjá Puma er það bleikur „rugby-kjóll“ í póló-stíl sem öllu breytir. Gucci hefur hannað ruðningspeysu og Eden Park hugsar um hvað eigi að nota eftir leikinn en þá er ómissandi að vera í ruðnings-blazer líkt og liðin nota við opinber tækifæri. En það er ekki aðeins á fatnaðinn sem heimsmeistarakeppnin hefur áhrif. Lífsstílsbúðirnar eins og Chez Colette blanda sér sömuleiðis í slag- inn. Hjá Colette er hægt að fá sérhannaðan Colette-bolta frá Ralph Laur- en í takmörkuðu upplagi. Það er einnig hægt að nota ruðnings-fylgihluti eins og armband úr leðri með demantsskreyttum ílöngum silfurbolta eða þá hálsmen. Þeir sem hugsa um keppnina daga og nætur geta setið í Roche Bobois sófa með „boltapúðum“. Tuttugu og einn tískuhönnuður hefur sömuleiðis hannað hver sína útgáfu af ruðningsboltum með eðal- steinum og úr ýmsum efnum sem eru sýndir í París en verða svo seldir á uppboði á næsta ári og rennur ágóðinn til líknarmála. Nokkur ár eru síðan franska lansliðið í ruðningi gaf út fyrsta almanakið þar sem liðsmennirnir sitja fyrir á adamsklæðum. Þetta er nú orðinn árviss viðburður og sífellt djarfari stíll á myndunum og hugmyndaflug- ið látið leika lausum hala við tökurnar. Og hvað er rökréttara en að setja í framhaldi af þessu á markaðinn snyrtivörur undir sama heiti svo allir geti líkst „les Dieux du Stade“, (guðum leikvangsins). Síðasta afrek guð- anna er svo tískuþáttur í sérstakri glansútgáfu l´Équipe sem er stærsta íþróttadagblað landsins með því flottasta í herratískunni því guðirnir eru nú tákn nútíma karlímyndar, hárlausir, olíubornir, með magavöðva eins og Síríus-súkkulaðistykki. Um nokkurt skeið þótti óhefð- bundið og flott að karlmenn væru með skyrtuna utan yfir buxurnar en nú er það alveg búið. Allir karlmenn ættu nú að gyrða skyrtuna ofan í buxurnar og verða snyrtilegri og huggulegri fyrir vikið því það er ekki lengur fínt að sjá fullorðna menn með skyrtuna upp úr buxunum og þá allra síst ef hún er sérstaklega ætluð ofan í buxurnar. Það sleppur alveg að vera með skyrturnar utan yfir hversdagsfatnað eins og gallabux- ur en þegar jakkaföt og annar fínni fatnaður er annars vegar verður þetta hálfkjánalegt og engan veginn til þess fallið að fela ístruna eins og sumir telja. Vel gyrtir gaurar Lengir, greiðir og brettir upp á augnhárin. Virtuôse, kallast maskari frá Lancôme sem nýlega kom á markað. Áferðin er létt, hann þekur augnhárin vel og aðskil- ur þannig að þau verða fallega sveigð, löng og þétt. Sam- kvæmt upplýsingum frá heild- sölu kemur fram að konur noti um sjötíu strokur við að setja maskara á augnhárin, aðallega til að lengja þau og að þetta hafi verið haft að leiðarljósi við framleiðslu á Virtuôse. Hár burstans eru öll mislöng og grípa vel í hvert og eitt augn- hár og burstinn er sveigður sem gerir auðvelt að ná vel að rótum augnháranna. Sem sagt, ágætis vara frá snyrtivörurisanum Lancôme. Sveigð, löng og þétt Auglýsingasími – Mest lesið Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.