Tíminn - 08.03.1981, Síða 8

Tíminn - 08.03.1981, Síða 8
L^iíiílm AUGLÝSING Frá Heilbrigðiseftirliti rikisins um eyðingu á rottum og músum Heilbrigðiseftirlit rikisins vill vekja at- hygli á lögum nr. 27/1945 um eyðingu á rottum og heilbrigðisreglugerð nr. 45/1972, þar sem bæjar- og sveitar- stjórnum er gert skylt, vor og haust, að gangast fyrir eyðingu á rottum. Heil- brigðisnefndir skulu mæla fyrir um að- geröir til upprætingar á rottum, músum og öðrum meindýrum. Sérstaklega skal þeim aðilum, sem framleiða, geyma, dreifa og selja matvæli og dýrafóður, bent ánauðsynþess, að viðkomandi húsnæði sé rottu- og músarhelt og varið öðrum mein- dýrum eftir föngum. Framleiðendur og innflytjendur matvæla og fóðurvöru skulu sérstaklega hafa i huga eftirfarandi: 1. Að dyrabúnaöur, gluggar, lofttúður og annar álika búnaður sé rottu- og músarheldur. 2. Að húsnæði og tækjabúnaði sé haldið vel hreinum, og ekki safnist fyrir matvæla- eða fóðurleifar. 3. Að niðurföll og vatnslásar séu i lagi. 4. Að greiður gangur sé milli vörustæða og gott bil og góð lýsing milli veggja og stæða til þess að auðvelda þrif. 5. Aðskilja ekki eítir opnar umbúðir (poka) og gera þegar i stað við þær, ef þær laskast. 6. Að gæta þess aö vörustæður standi ekki óhreyfðar i lengri tima. 7. Að mjög æskilegt er að pökkun og geymsla dýrafóðurs sé aðskilin. 8. Að stöðugar aðgerðir til eyðingar nefndum meindýrum eru árangursrikastar. Geymið Auglýsinguna! Heilbrigðiseftirlit rikisins. Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar, sem verða til sýnis þriðjudaginn 10. mars 1981, kl. 13—16 i porti bak við skrifstofu vora, að Borgartúni 7: Chevrolet Nova fólksbifreið...................árg. 1977 Mercury Comet fólksbifreið...................árg. 1976 FordEscortfólksbifreið.......................árg. 1976 Chevrolet Sport Van...........................árg. 1976 FordBronco ..................................árg. 1974 Ford Bronco .................................árg. 1974 FordBronco ..................................árg. 1973 VolvoP144fólksbifreið .......................árg. 1973 Land Rover bensin........................... árg. 1970 Land Rover diesel.............................árg. 1973 Land Rover bensin ...........................árg. 1973 Land Rover bensin.............................árg. 1973 LandRoverDiesel...............................árg. 1974 Land Rover diesel.............................árg. 1975 Land Rover diesel.............................árg. 1975 Chevrolet sendiferöabifreið ..................árg. 1973 Volkswagen 1200fólskbifreið...................árg. 1973 Ford 4X4pic-up................................árg. 1973 Volkswagen Combi fólksbifreið (skemmd)........árg. 1978 FordD 300 vörubifreið.........................árg. 1967 Ladastation...................................árg. 1977 Scania vörubifreiö............................árg. 1967 BMW mótorhjól.................................árg. 1965 Evenrude vélsleði ógangfær Johnson vélsleöi ógangfær Til sýnis hjá Véladeild Vegagerðar rikis- ins Akureyri: Volkswagen 1200fólksbifreið.......................árg. 1972 Volkswagen 1200 fólksbifreið .....................árg. 1972 Land Rover diesel.................................árg. 1974 Land Rover bensin..................................árg. 1973 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16:30, að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilin að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Sunnudagur 8. mars, 1981. Kúrdneski ritliöfundurinn Mehmet Emin Bozarslan með stafrófskveriö, sem kostaði hann fang- elsisdóm. Tugthússök að semja stafrófskver á kúrdnesku Stafrófskver cru að jafnaði ekki talin til svo stórhættulegra bóka, að þung refsing liggi við að semja þau og nota. Ekki verður þaö þó að saklausu gert i öllum löndum. t Tyrklandi er þaö tukthússök aö fá börnum Kúrda i hendur stafrófskver á kúrdnesku. (Æ, eru Tyrkir annars ekki i bandalagi, sem sérstaklega var til þess stofnaö aö standa vörö um frelsi og mannréttindi i veröldinni?). Mehmet Emin Bozarslan heitir rithöfundur af þeim kyn- þætti Kúrda, er býr innan landamæra Tyrklands. Arið 1967 tók hann að semja stafrófs- kver á kúrdnesku, þótt hann vissi raunar fyrirfram að þvilik bók yrði forboðin. — Landar minir lifa við mik- inn háska, og margir þeirra vita ekki hvar og hvenær leiðarlok verða, segir Bozarslan. Þá vantaði sárlega stafrófskver, svo að börnin gæti lært að lesa móðurmálið, og mér fannst mér skyldara að bæta úr þeirri þörf en mörgum öðrum, þótt ég gengi ekki að þvi gruflandi, hvað það gat kostað mig. Bozarslan var eitt ár að semja stafrófskverið, og það var þrautin þyngri að finna for- ráöamenn prentsmiðju, sem þyrði að prenta það. Loks tókst að finna slikan mann i Istanbúl. Viö prentunina var unniö á laun að næturþeli, og öllu upplaginu, tiu þúsund eintökum, tókst að koma út úr prentsmiðjunni, án þess að lögreglan kæmist á snoöir um þaö. 1 októbermánuði 1968, tveimur dögum eftir að byrjað var að dreifa kverinu, var Bozarslan handtekinn. Tveir dómstólar, annar i heimahéraði hans, Diyarbekir, og hinn i Istanbul, lýstu bókina ólöglega og útgáfu hennar afbrot. Eftir fjóra mánuði var þó Bozarslan sleppt úr fangelsi. Bozarslan hefur skrifað átján bækur, á kúrdnesku og tyrk- nesku. Hann var fangelsaður á ný árið 1970 en látinn fljótlega laus, en eftir herforingjabylt- inguna i marzmánuði 1971 var hann einn fjölmargra, lýðræðis- sinnaðra menntamanna af tyrk- nesku og kúrdnesku bergi, er leiddir voru fyrir herdómstól og dæmdir til fangavistar til lang- frama. Honum var ekki sleppt fyrr en árið 1974, þegar heita átti, að horfið væri afttur að lýð- ræðisháttum. En Sú dýrð varð skammvinn. Aftur syrti i álinn, og árið 1978 flúði Bozarslan land með fjölskyldu sina. Hann komst til Sviþjóðar. I Sviþjóð hefur hann kennt börnum kúrdneskra flótta- manna móðurmál sitt, og þar hefur hann látið prenta litla stafrófskverið sitt á ný. Þetta er ósköp hversdagslegt stafrófskver með myndum af börnum, blómum, dýrum og flugum. En það er lykill að tungu Kúrda og hún hefur verið bönnuð i Tyrklandi siðan á þriðja tug aldarinnar. Fyrir heimsstyrjöldina fyrri lutu fjölmargar þjóðir Tyrkjasoldáni, og þá voru mörg tungumál leyfð, þar á meðal kúrdneska, sem er mál af indógermönskum stofni og harla ólikt tyrknesku. Þá var talsvert til af kúrdneskum bók- um, sem prentaðar voru með arabisku letri, er þá var enn notað. Eftir heimsstyrjöldina fyrri var löndum Kúrda skipt á milli nokkurra rikja, þótt stór hluti þeirra lenti innan landamæra Tyrklands. Nú eru um tiu milljónir Kúrda i Tyrklandi sex milljónir i lran, þrjár milljónir i Irak og tæp milljón i Sýrlandi. Auk þess eru kúrdnesk þjóðar- brot i Sovétrikjunum og Libanon. Kemal Ataturk var skapari tyrkneska lýðveldisins, hann blés Tyrkjum lika i brjóst þeim þjóðernisanda, sem tekið hefur á sig mynd kynþáttahaturs, sem Kúrdar hafa óspart fengið að kenna á. Kúrdar skulu hverfa sem sér- stakur þjóðflokkur, mál þeirra og menningu á að þurrka út. Þess vegna má ekki prenta neitt á kúrdnesku, ekki nota málið i skólum og samkomuhúsum. Þannig eru að staðaldri birtar stjórnarvaldatilkynningar þess efnis, að bannað sé að flytja inn blöð og bækur^ grammófón- plötur og snældur á kúrdnesku. Og þetta þýðir, að stafrófs- kveriö, sem Bozarslan hefur látið prenta i Sviþjóð, kemst ekki til barnanna i Kúrdistan i Tyrklandi, þvi að fyrir augu þeirra má ekki bera kúrdneskt orð. Það verða aðeins börn Kúrda, sem landflótta eru i Vestur-Evrópu, er munu hafa gagn af þvi. En i þeim heims hluta eru kúrdneskir flóttamenn nú eitthvaö um fjögur hundruð þúsund. Eflum Tímann

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.