Tíminn - 08.03.1981, Blaðsíða 9
Sunnudagur 8. mars, 1981.
9
Fimmtán ára málaferli í Sviþjóð lokið:
Sænskir Samar líkja sér við hernuminn þjóðflokk
„Svíar hafa farið d mis við
nauðsynlega reynslu. Það er
slæmt fyrir þá að hafa ekki
kynnzt hernámi i margar aldir
samfleytt. Enginn Svii hefur
nokkurn skilning á þvi, hvernig
er að lifa við hernám.”
Þetta sagði Lars-Anders
Baer, forseti æskulýðssam-
bands sænskra Sama, er fréttist
um dómsniðurstöðu hæstaréttar
i máli, sem Samar hafa átt i við
sænska rikið i fimmtán ár
samfleytt.
„Dómur hæstaréttar endur-
spegla,r fyrst og fremst þá fyrir-
litningu á Sömum, sem alls
staðar skýtur upp kollinum”,
sagði Tómas Cramer, umboðs-
maður Sama.
Málaferlin snérust um það,
hver ætti fjalllendi á
Jamtalandi og Herjadal, þar
sem svonefndir Suður-Samar
hafa stundað hreindýrarækt.
Dómur hæstaréttar hljóðaði upp
á það, að sænska rikið eigi land-
iö, en Samar afnotaréttinn.
Þetta þýðir ekki neinar
breytingar fyrst um sinn, en
gefur sænska rikinu færi á að
fara sinu fram á þessum slóðum
seinna meir, án þess aö Samar
fái nokkrum vörnum við komið.
Hið umdeilda fjalllendi var
hluti af Noregi fram til ársins
1645, er Danir létu af hendi við
Svia stóra landshluta, er þeir
höfðu lagt undir sig.
„Við erum eins og réttlaust
fólk i hernumdu landi ”, segir
Lars-Adners Baer. „Við erum
umkringdir, og það eru aðeins
dreifð svæði, þar sem Samar
hjara. Ef sænskum
stjórnvöldum svo sýnist, geta
þau látið umsátursliðið sækja
fram og taka það, sem þau hafa
ágirnd á, og komi til þess, að
hagsmunir séu vegnir og
metnir, þá verða fimmtiu eða
hundraö Samar léttir á vogar-
skálunum á móti öllum sænsku
milíjónunum.”
Samarnir segja, aö eitt hafi þó
unnizt með þessu fimmtán ára
striði um eignarréttinn. Þeir
viti nil, hvers er aö vænta af
sænskum stjórnarvöldum. „Þau
hafa afhjUpað sig, og allt þrugl
þeirra um að þau beri menningu
Sama fyrir brjósti, er hræsni og
yfirdrepsskapur”.
„Við verðum nú að hef ja nýja
sókn”, segir Tómas Cramer,
umboðsmaður Sama, „og láta
ekki deigan siga fyrr en Samar
hafa hlotið fulla viðurkenningu
og vernd sem þjóðflokkur með
sérstaka tungu og menningu”.
Hæstiréttur geröi Sömum aö
greiöa 1,2 milljónir sænskra
króna i málkostnað.
„Það gerir okkur ekki
uppnæma”, segir Lars-Anders
Baer — „til þess erum við of
vaniraö borga brúsann. Viölfka
og það, sem þeir heimta af
okkur I málskostnað, höfum við
margsinnis áöur orðið að láta af
hendi við sænska rikiö. Það hef-
ur verið tekið af okkur þegjandi
og hljóðalaust og enginn látið á
sér heyra, að það væri annað en
sjálfsagt”.
SÁ HÁFLEYGASTI FRÁ JAPAN
DATSUN BLUEBIRD
Bensín
eða dísel
Hefur flest
er menn helst
vilja hafa
í bílnum sínum
DATSUN
DATSUN BLUEBiRD
BÍLL SEM VEKUR ATHYGLI
Datsun €- umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi vid Sogaveg • Simi 33560