Tíminn - 08.03.1981, Síða 23
Sunnudagur 8. márs, 1981.
31
Höldum norður í Kaldbaksvík
á Húnaflóaströndum. Þar er
..stórhreinlega fallega ljótt”, er
haft eftir Þorvaldi Thoroddsen.
Á landnámsöld bjó
Norðmaðurinn önundur tréfót-
ur f Kaldbak, varð að flýja land
fyrir ríki Haraldar hárfagra.
Kuldalegtmun önundi hafa þótt
á Ströndum sbr. visu hans:
„Köld eru kjör ef kreppik
Kaldbak en ek læt akra”.
Vinalegt er þar þó i góðu
sunnanveðri og sjórinn var
gjöfull.
Þegar undirritaður leit þar á
gróður sumarið 1947, var verið
að binda Uthey og færa heim i
hlöðu. Klárarnir bera síða
útheysbaggana léttilega. Ungur
sveinn á reiðskjóta sinum rekur
lestina.
A Drangsnesi var mikið um
að vera þetta sumar, söltuð sfld
af kappi. ,,Góðu menn og
manneskjur, ég er að fara i
sild”, hrópaði sildarstúlka
fagnandi, þegar kallað var til
söltunar og hún ruddist út úr
bænum.
Og sannarlega var oft hama-
gangur í síldinni!
Li'tum næst á ungmenna-
félagsfund norður á Arskógs-
strönd við Eyjafjörð sumarið
1929. Tfð var góð og fundurinn
var haldinn undir beru lofti á
Krossagrundum, og eftir fund-
inn veittu nágrannakonur kaffi
úti í góða veðrinu. Þarna var
m.a. samþykkt, að félagar
skyldu heyja einn dag fyrir
bdnda, sem átti við vanheilsu að
stríða. Margir mættu á teignum
þegar þar að kom. A myndinni
má þekkja Helluhjónin,
Kristján og Sigurbjörgu, Astu á
Krossum, Jóhannes Ólaf
kennara, Konráð Þorsteinsson
og lengst til hægri Anton Jó-
hannsson á Selá, kempu-
legastan ungra manna i
sveitinni þá.
Um vorið höfðu ungmenna-
félagar sett niður kartöflur i
Fagurhöfðagerði, nálægt sjó i
landareign Hellu. Sá garður
varð aldrei „sifrær” fremur en
Vitaðsgjafi frammi i Eyjafirði á
söguöld. Fagurhöfðagarður
liggur í sendinni brekku móti
sól.
A vetrum gekkst
ungmennafélagið (Reynir) fyrir
samkomum, sem jafnan hófust
með fyrirlestrum manna úr
sveitinni eða gesta. Man ég t.d.
eftir Guðmundi Hjaltasyni er
ætíð talaði með lokuð augu og
hafði tvenns konar efni að
bjóða.
Á litlu-Hámundarstöðum,
næsta bæ utan við Krossá,
bjuggu Þorsteinn og Valgerður
með stóran barnahóp, allt
mesta dugnaðarfólk. Lands-
kunnur varð Valtýr, elsti sonur-
inn, Utgerðarmaður á Rauðuvfk
og víðar. Ég birti mynd af fjór-
um ættliðum á Litlu-Hámundar-
Ungmennafélagsfundur á Krossagrundum 1929.
Ingólfur Daviðsson:
Byggt og búið í gamla daga — 321
Víða leitað fanga
stöðum sumarið 1933. Lengst til
hægri er amman Svanhildur,
elju dugleg fram á elliár. Þá
húsfreyjan Valgerður með
fléttinga gilda niður i hnésbæt-
ur, búkona i besta lagi. Til
vinstri Anna með dóttur sina
unga, Rósu. Allar voru þær
mæðgur sérlega hárprúðar. Á
unglingsdögum ömmunnar
(Svanhildar) fóru sumar konur i
fjós að hárþvotti. Þótti
kúahland auka hárvöxt og gljáa
hársins. Konurnar á myndinni
standa við baðstofugaflinn.
Framan við baðstofuna var
eldhús og búrlengjan, en fremst
vandað langhús úr timbri.
Oft varð mér litið upp i loft i
baðstofu þessari, þvi að yfir
syðri endanum var fagurblá
hvelfing með stjörnum, "hand-
verk Kristjáns eldra á Heliu, en
hann bjó áður á Litlu-Há-
mundarstöðum. Tún Hámund-
arstaðabæjanna liggja saman
og oft voru börn aö leik af báð-
um bæjunum saman að leik,
sumar og vetur. Það var stór
hópur.
Enn hélst trú á álagabletti og
huldar vættir hjá sumu fólki.
Hér er mynd af Ljúflingshóli i
landareign Stóru-Hámundar-
staða. Steinn er á kolli hólsins
og situr þar kona. Fuglar eru
þaulsetnir þarna rétt hjá
steininum, einsog fuglaþúfan til
vinstri sýnir. Snjósæl
Látrastrandarf jöll sjást i
baksýn, handan Hriseyjar.
„Ljúflingshóll: álfastóll
stendur á kolli þinum.
Þar létéglíða úr lúnum
fótum minum.
Sofnaði brátt og dreymdi dátt,
góðvættur brosti i
glugga sinum.”
Árskógsströnd er opin fyrir
norðanátt og er þar oft
snjóþungt mjög.
„Heila viku hriðarkaflinn,
átta þrepin upp
á bæjarskaflinn.”
os
„Loks að kvöldi léttir til,
leggur um brjóstið feginsyl.
Ég rauk á skiði i rökkurfrið,
og renndi mér yfir sauðhúsið.”
En lftið kipptu menn sér upp
við snjó og hriðar.
„Búið er vel á vegi statt
þó vori seint er fólkið glatt.
A Drangsnesi 1947 — Síldarsöltun —
Fjórir ættliðir. — Við baðstofustafninn á Litlu-Hámundarstööum.
1 Kaidbaksvik 1947 A Ljúflingshól — Hámundarstöðum 1936.
VARA
HLUTIR
Höfum mikið úrval varahluta
Dodge Dart ’70
Mazda 323 ’78
Lancer ’75
Hornet ’75
Cortina ’71 -’74
Taunus 17m ’70
Skoda Pardus ’76
Bronco V8 ’66 -’72
Toyota M II ’72
Morris Marina ’74
Citroen GS ’74
Saab 99 ’71 og ’74
Willis ’55 *
Fiat 127 ’74
Fiat 128 ’74
Fiat 125 S ’74
Saab 99 ’74
Austin Allegro ’76
Mazda 616 ’74
Toyota Corolla ’72
Datsun 1200 ’72
Benz diesel ’69
Benz 250 ’70
Skodi Amigo ’79
WV 1300 ’71
Volga ’74
Ford Capri ’70
Sunbeam 1600 ’74
Mini ’75
Volvo 144 ’69
Chevrolet Vega ’73
Benz 220 D. ’69
o.fl. o.fl.
Kaupum
nýlega
bíla til
niðurrifs
Sendum
um land
allt
Opiö virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
Sími (91)7 75-51
(91)7-80 30
Reynið viðskiptin