Tíminn - 08.03.1981, Qupperneq 28
Sfmi: 3370«
A NÓTTU OG DEGI ER VAKA A VEGI
• 41 Caabriel <ó Mi. , WSIGNODÉ Sjálfvirkar bindivélar
HÖGGDEYFAR TT «5*5 Sjávarafurðadeild Sambandsins <f Sími 28200
W G$varahlutir sSesío y
r 8. mars 1981
íslensku sjómennirnir komnir
heiltl frá Vir^iníu Samningunum riftað
vegna ýmissa vankanta
Skipstjórar tveir og vél-
stjórar sem fóru héðan í vetur
til Virginíu í Bandaríkjunum,
eru komnir heim aftur, og
verður ekki af störfum þeirra
vestra.
Hingað til lands kom á sínum
tíma maður, sem gerður var út
að vestan, til þess að falast
eftir íslenskum sjómönnum á
fiskiskip vestra. Var talsvert
veður gert út af þessu f blöð-
um, og nokkur hópur manna
réð sig til starfa fyrir meðal-
göngu þessa manns.
Þegar til kastanna kom
reyndust margvíslegir van-
kantar, á störfum þeim, sem í
boði voru, og sumt með þeim
hætti að hinir íslensku sjómenn
riftuðu samningum er gerðir
höfðu verið. Er útgerð sú, sem
þarna er um að ræða, mjög á
eftir tímanum að ýmsu leyti.
Hörpudiskurinn á Breiða-
firði uppfyllir fyllstu
vonir sem við hann voru
bundnar
— Hörpudisksstofninn á
Breiðaf jaröarrpiðum hefur
reynsteins og viðgeröum okkur
vonir um, að hann gæti bestur
verið, sagði Hrafnkell Eiríksson
fiskifræðingur í samtali við
Timann. I öndverðu var áætlað,
að stofnstæröin þyldi 5500—8000
tonna ársveiöar, og nú erum við
að fikra okkur upp i hærri töl-
una. Á sfðasta ári var leyft að
veiða þar rúmlega sjö þúsund
tonn.
Syðsta svæðið, þar sem
hörpudiskur hefur fundist við
landið, er í Hvalfirði, og annars
staðar hefur hans ekki oröið
vart i Faxaflöa, svo að heitið
geti. Langmest er af honum á
Breiðafjarðarmiöunum, en
hann er einnig veiðanlegur á
Vestfjörðum öllum, þar með
taldir Jökulfirðir nema á ön-
undarfiröi og Súgandafirði. Á
Húnaflóa eru mið fram undan
Skagaströnd, allt innan frá
Sölvabakka og út fyrir Fossá á
Skaga, og einnig við Heggs-
staðanes, og á Bitrufirði og
Steingrimsfirði.
Alls hefur Vestfjarðaveiðin
numið rúmið þúsund tonnum og
afliá Húnaflóa um niu hundruð-
um.
A Skagafirði fannst i fyrra
góð, veiðanleg skel meðfram
landi beggja megin fjarðarins.
Hún var sérstaklega væn, en
þéttleiki öllu minni. Blettir með
hörpudiski hafa fundist á
Bakkaflóa og Gunnólfsvlk, út af
Fuglanesi i Vopnafirði og á
Reyðarfirði og Berufirði. Sagöi
Hrafnkell, að lögö yrði áhersla á
aö kanna sem best i ár svæöi
norðan lands og austan, þar sem
hörpudisks er að vænta.
Miklar sveiflur geta verið á
hörpudisksstofninum eftir ár-
feröi. Þaö er aldrei að vita,
nema komi ár, þegar við verð-
um að draga úr veiðunum, sagði
Hrafnkell. A mesta aflasvæð-
inu, Breiðafjarðarmiðunum,
virðast veiöarnar þó hvila á
traustum grunni, þvi að þar
hefur meöalafli á sóknareiningu
aukist.
Að sjálfsögðu er það háð
markaðsverði, hvaða mið
borgar sig að nýta. Að undan-
förnu hafa fengist um fjórir
dollarar að jafnaði fyrir pundið
af hörpudiskinum unnum, og
jafnvel öllubetur. A hinn bóginn
kvarta þeir, sem þessar veiðar
stunda , sárlega yfir miklum
greiðslum i sameiginlega sjóði
sjávarútvegsins, sem eru þess-
ari atvinnugrein þungar i
skauti.
Meö þvf verði , er verið hefur
á hörpudiskinum um skeið, er
samt unnt að nýta mið, er ekki
gefa nóg af sér til þess, að við
verði komið fullkominni vél-
vinnslu i landi. En þau ár, er
verð var lægst siðasta áratug,
hefðu litlar vinnslustöðvar, þar
sem verulegu leyti væri byggt á
handvinnslu, ekki getað staðist.
Vinnslan ber sig meö öðrum
orðum ekki, þegar verðið fellur
til muna, nema vélum veröi
komið við til fullnustu, en i
vinnslustöövum, þar sem ekki
er að vænta nema svo sem eitt
hundrað og fimmtiu lesta afla á
ári, verður ekki komið við fullri
vélvinnslu.
Hörpudisksveiöi á Breiðafirði.
TILBOÐSVERÐ
Heyþyría
Aðeins kr. 15.200.-
Aðeins örfáum vélum óráðstafað
á þessu hagstæða verði,
og stendur tilboð þetta meðan
birgðir endast,
éða fram til 20. mars n.k.
Talið við sölumenn okkar strax
Gtobusn
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
4