Fréttablaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 24
„Stjórn Samtakanna ‘78 ákvað að opna
hús sitt fyrir gestum og gangandi til
að kynna þá fjölbreyttu starfsemi sem
þar á sér stað,“ segir Katrín Jónsdóttir,
fræðslufulltrúi Samtakanna ‘78. Boðið
verður upp á skemmtilega dagskrá frá
klukkan hálfellefu til fimm síðdegis í
dag.
„Margt verður til skemmtunar en með
þessu heimboði langar okkur að sækja
gesti út fyrir okkar venjulega hóp, þótt
vitaskuld sé hvert einasta mannsbarn
hjartanlega velkomið,“ segir Katrín þar
sem hún gerir fínt fyrir boðið og tekur
til dýrindis veitingar.
„Við byrjum daginn með fræðslu Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur, formanns Fé-
lags aðstandenda samkynhneigðra, sem
segir frá starfi þeirra. Þetta er ákaflega
þarft félag sökum þess hve margir for-
eldrar verða miður sín þegar barn þeirra
opnar sig með samkynhneigð sína, en fé-
lagið opnar dyr sínar fyrir þeim sem
þurfa á stuðningi að halda,“ segir Katrín,
sem verður sjálf með fræðslu um starf
Samtakanna ‘78 í dag.
„Félagið verður þrítugt á nýja árinu
og eru virkir félagar um 500 talsins.
Mun fleiri mæta á opið hús á mánudög-
um og fimmtudögum, dansleiki og aðra
viðburði. Sumir hringja til að tala um sín
mál, en margir nota dansleiki til að fikra
sig áfram og komast í samband við aðra.
Samtökin haga seglum eftir vindi og
hafa undanfarin ár varið kröftum sínum
í að hafa áhrif á löggjafarvaldið varðandi
giftingar og almenna réttarstöðu, en nú
er það að sigla í höfn og þá tökum við
önnur mál í brennidepil,“ segir Katrín
og heldur áfram að telja upp viðburði á
Opna Samtakadeginum.
„Klukkan 11 kynnir Sigurður Her-
mannsson fótboltafélagið St. Styrmi, sögu
hommaboltans og hugmyndafræði. Eftir
það kynnir Þorvaldur Kristinsson bóka-
safnið og les upp úr nokkrum gullmolum
sem þar leynast. Anna Jonna Ármanns-
dóttir talar um Trans-Ísland, ungliða-
hópur Samtakanna ‘78 og Félag hinsegin
stúdenta segja frá starfi hópanna, verð-
launastuttmyndirnar Góðir gestir eftir
Ísold Uggadóttur og Bræðrabylta eftir
Grím Hákonarson verða sýndar, Hilmar
Magnússon segir frá Verndarvættunum
sem er samstarfsverkefni Samtakanna
‘78 og Íslandsdeildar Amnesty Inter-
national, og Fríða Agnarsdóttir segir frá
blakliði KMK,“ segir Katrín, en undirrit-
aðir verða tveir mikilvægir samstarfs-
samningar í tilefni dagsins.
„Annar er við Flugfélag Íslands um
styrk handa fræðslustarfi á landsbyggð-
inni og hinn við félagsmálaráðuneytið
um samstarf okkar um útgáfu nýs bæk-
lings sem tengist Ári jafnra tækifæra.
Bæklingurinn kemur út á ensku, tæl-
ensku, litháísku, pólsku og íslensku, og
inniheldur ýmsan fróðleik fyrir samkyn-
hneigða.
Samkynhneigð er hvorki viðurkennd í
Póllandi né Litháen og eilíf slagsmál og
barátta fyrir þá sem eru hinsegin þar.
Því flýja margir samkynhneigðir flótta-
menn til Íslands í von um betra líf,“ segir
Katrín um þessa þjáðu minnihlutahópa í
sínu föðurlandi.
Á opna húsinu segir Heimir Már
Pétursson einnig frá Gay Pride í máli og
myndum.
„Þátttaka almennings í Gay Pride á Ís-
landi er einstök í heiminum og sönnun
þess að hátíðin er ekki bara hátíð sam-
kynhneigðra heldur líka vina þeirra og
fjölskyldna. Okkur finnst þessi mikla
þátttaka þjóðarinnar yndisleg og merki
þess að Íslendingum er annt um sína,“
segir Katrín, sem kýs að kalla homma og
lesbíur hinsegin fólk.
„Hinsegin er langbesta orðið. Þetta
er gamalt skammaryrði sem við tókum
upp á arma okkar og snerum við, eins
og gjarnt er um kúgaða félagshópa. Hin
orðin móðga svosem engan, en okkur
líkar langbest við hinsegin.“
Auður Eir fyrsti kvenpresturinn
„Annað fólk – það æfir sig og
æfir... en fingurnir mínir eru
með sitt eigið heilabú. Maður
segir þeim ekki hvað þeir eiga
að gera – þeir gera það sjálfir.
Sannkölluð Guðs gjöf.“
Í dag gangast Vísindfélag
Íslendinga og Háskóli Ís-
lands fyrir ráðstefnu um
vísindamanninn Jónas
Hallgrímsson í há-
tíðarsal Háskóla
Íslands, aðal-
byggingu.
Jónas Hall-
grímsson var
eitt ástsæl-
asta skáld ís-
lensku þjóðar-
innar. Í seinni
tíð varð hann
einn af fær-
ustu náttúru-
fræðingum
Íslendinga og
brautryðjandi á
ýmsum sviðum vísinda.
Til að minnast þess, og
að nú eru liðin 200 ár frá
fæðingu Jónasar, verður
fjallað um vísindastarf
hans frá ýmsum sjónar-
hornum á ráðstefnunni
í dag, sem stendur
frá klukkan 13.30
til 16.30. Flutt-
ir verða fimm
fyrirlestrar, en
úrdrættir þeirra
munu liggja
frammi við
upphaf ráð-
stefnunnar.
Aðgangur
er ókeyp-
is og öllum
heimill. Að
ráðstefnu lok-
inni verða born-
ar fram léttar veitingar í
boði rektors Háskóla Ís-
lands.
Í minningu Jónasar
AFMÆLI
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Anna Albertsdóttir
Sóltúni 2, áður til heimilis að Teigagerði 15,
lést laugardaginn 22. september á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 1. október kl. 13.00.
Haraldur Sighvatsson Elfa Hafdal
Jón Albert Sighvatsson Kristjana Markúsdóttir
Emilía Sighvatsdóttir Halldór Jón Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Sigurður Jónsson
Hjallabraut 33, Hafnarfirði, áður
Flókagötu 16a, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn
25. september. Útförin auglýst síðar.
Helga S. Ólafsdóttir
Jón Ólafur Sigurðsson Ragnheiður Þórðardóttir
Guðný Sjöfn Sigurðardóttir
Þórarinn Sigurðsson
sonarsynir, langafabörn og langalangafabarn.
Ástkær sonur okkar, faðir, bróðir, mágur,
barnabarn og frændi,
Finnbogi Már Ólafsson
Nottingham, Englandi,
lést á heimili sínu 19. september síðastliðinn.
Minningarathöfn verður haldin mánudaginn 1. októ-
ber í Lágafellskirkju, Mosfellsbæ, kl. 13.00.
Ólafur Ísleifsson
Sigríður Rósa Finnbogadóttir Völundur Þorgilsson
Alma Hrund Hafrúnardóttir
Sigvaldi Búi Þórarinsson Sylvía Erna Ó. Waage
Ollý Björk Ólafsdóttir
Eydís Björk Ólafsdóttir
Rósa Signý Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
Edda Ásgerður Baldursdóttir
til heimilis að Rjúpufelli 46,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju mánudag-
inn 1. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Ljósið í Neskirkju.
Garðar Árnason
Guðný Svana Harðardóttir
Þóra Björk Harðardóttir Ómar Bjarni Þorsteinsson
Árný Lilja Garðarsdóttir
Sigrún Jóna Baldursdóttir
Helgi Gunnar Baldursson
barnabörn og barnabarnabörn.