Fréttablaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 27
Fjórtán ára gamall eignaðist Halldór Rúnar Magnússon sitt fyrsta mótorhjól, Hondu SS50. Á henni brunaði hann um Laugarneshverfið þar til næsta hjól tók við og síðan hafa fleiri bæst í safnið. Í dag rekur Halldór, betur þekktur sem Dóri, versl- unina Motors ásamt félaga sínum Merði Ingólfs- syni, en hún stendur á horni Nóatúns og Laugavegs 168. Í Motors eru fyrst og fremst stór og kraftmikil mótorhjól frá Bandaríkjunum, flest af Harley Davidson-gerð, en þeir félagar stefna að innflutn- ingi á fleiri tegundum. „Við eigum til dæmis mjög glæsilegan Triumph, eitt Ducati og svo sérsmíðuð hjól eins og Big Dog Mastiff. Þá eigum við eitt stykki Ultra Cycle Groundpounder sem er líka „chopper“ eins og Big Dog Mastiff,“ segir Dóri og bætir því við að sjálfur myndi hann helst vilja eiga það síðarnefnda. „Big Dog Mastiff er alveg svaðaleg græja með 1.753 kúbiksentimetra vél, sex gíra Baker-gírkassa og „rake“ upp á 39 gráður. Flest hjólin sem við erum með eru í stærri kantinum og gríðarleg orka í þeim,“ segir hann. Spurður að því hvort hann kjósi mótorhjólið umfram bílinn segir Dóri svo vera. „Það er þessi ólýsanlega frelsistilfinning sem gerir það að verkum að ég vil fremur vera á hjóli og því keyri ég það allan ársins hring svo lengi sem aðstæður leyfa. Á mótorhjóli þarf maður samt alltaf að hafa varann á. Bílar eru morðingjar sem maður þarf að forðast og það er ekkert til sem heitir að eiga réttinn. Ef maður ætlar að nýta sér réttinn þá getur maður eins verið dauður,“ segir Halldór og bætir því við að lokum að best sé að fara á hjólinu út í íslenska sveit. „Það er ekkert sem toppar það að bruna um þjóð- vegi Íslands á góðu mótorhjóli,“ segir Dóri að lokum og ljóst er að hann meinar hvert orð. Þetta er toppurinn Efnalaugin Björg Gæðahreinsun Góð þjónusta Þekking Opið: mán-fim 8:00 - 18:00 föst 8:00 - 19:00 laugardaga 10:00 - 13:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.