Fréttablaðið - 29.09.2007, Side 27
Fjórtán ára gamall eignaðist Halldór Rúnar
Magnússon sitt fyrsta mótorhjól, Hondu SS50.
Á henni brunaði hann um Laugarneshverfið þar
til næsta hjól tók við og síðan hafa fleiri bæst í
safnið.
Í dag rekur Halldór, betur þekktur sem Dóri, versl-
unina Motors ásamt félaga sínum Merði Ingólfs-
syni, en hún stendur á horni Nóatúns og Laugavegs
168.
Í Motors eru fyrst og fremst stór og kraftmikil
mótorhjól frá Bandaríkjunum, flest af Harley
Davidson-gerð, en þeir félagar stefna að innflutn-
ingi á fleiri tegundum.
„Við eigum til dæmis mjög glæsilegan Triumph,
eitt Ducati og svo sérsmíðuð hjól eins og Big Dog
Mastiff. Þá eigum við eitt stykki Ultra Cycle
Groundpounder sem er líka „chopper“ eins og Big
Dog Mastiff,“ segir Dóri og bætir því við að sjálfur
myndi hann helst vilja eiga það síðarnefnda.
„Big Dog Mastiff er alveg svaðaleg græja með
1.753 kúbiksentimetra vél, sex gíra Baker-gírkassa
og „rake“ upp á 39 gráður. Flest hjólin sem við erum
með eru í stærri kantinum og gríðarleg orka í
þeim,“ segir hann.
Spurður að því hvort hann kjósi mótorhjólið
umfram bílinn segir Dóri svo vera. „Það er þessi
ólýsanlega frelsistilfinning sem gerir það að
verkum að ég vil fremur vera á hjóli og því keyri ég
það allan ársins hring svo lengi sem aðstæður leyfa.
Á mótorhjóli þarf maður samt alltaf að hafa varann
á. Bílar eru morðingjar sem maður þarf að forðast
og það er ekkert til sem heitir að eiga réttinn. Ef
maður ætlar að nýta sér réttinn þá getur maður
eins verið dauður,“ segir Halldór og bætir því við að
lokum að best sé að fara á hjólinu út í íslenska
sveit.
„Það er ekkert sem toppar það að bruna um þjóð-
vegi Íslands á góðu mótorhjóli,“ segir Dóri að lokum
og ljóst er að hann meinar hvert orð.
Þetta er toppurinn
Efnalaugin Björg
Gæðahreinsun
Góð þjónusta
Þekking
Opið: mán-fim 8:00 - 18:00
föst 8:00 - 19:00
laugardaga 10:00 - 13:00