Fréttablaðið - 29.09.2007, Side 34
hús&heimili
„Afi minn átti heima í Hörgárdal
sem er í um þrjátíu kílómetra fjar-
lægð frá Akureyri,“ segir Bergþór.
„Sextán ára gamall festi hann
kaup á þessu orgeli og dró það svo
með sér á sleða heim til sín, en slíkur
var áhugi hans og ástríða fyrir tón-
list,“ segir Bergþór og bætir við að
afi hans hafi, líkt og margir tónlist-
armenn á þessum tíma, verið að
mestu sjálfmenntaður.
„Hann spilaði þó heilmikið í kirkj-
unni á Möðruvöllum og á Bakka og
Bægisá í Öxnadal.“
Bergþór segist slarkfær á org-
elið og kveðst stundum spila á það
þótt hann líti aðallega á það sem
nokkurs konar safngrip. „Enda er
það ákaflega fallegt með þessu út-
skorna hilluverki og öllu sem því
tilheyrir,“ segir hann. Um þessar
mundir æfir Bergþór fyrir óperuna
Ariadne eftir Richard Strauss sem
hann segir skemmtilegt verk.
„Það fjallar um samruna ólíkra
stíla,“ útskýrir Bergþór, en sagan
segir af manni sem býður til veislu
og vill gera vel við gesti sína með
fjölbreyttum skemmtiatriðum, þó
að sjálfum bregði honum aldrei
fyrir í verkinu.
„Það vill svo til að þetta er auð-
maður, sem á vel við því þeim fjölg-
ar jú hratt hér á landi,“ segir hann.
„Auðmaðurinn ákveður að hafa
óperu í veislunni, en svo finnst
honum allt í einu eins og það verði
svolítið þungt svo hann pantar líka
gamanleikara. Málið flækist og til
að þetta verði ekki of langdregið,
slær hann saman gamanleiknum
og óperunni á síðustu stundu og
úr verður heilmikið kaos,“ segir
Bergþór sem túlkar tónlistarkenn-
ara í verkinu.
„Svo skemmtilega vill til að sonur
minn, Bragi er með í sýningunni og
þetta er í fyrsta sinn sem við feðgar
mætumst á leiksviði,“ segir Berg-
þór að lokum en rétt er að geta þess
að verkið verður frumsýnt næsta
fimmtudag í Íslensku óperunni.
margret@frettabladid.is
Orgelið hans afa míns
Bergþór Pálsson á einstaklega fallega útskorið harmóníum sem hann erfði eftir afa sinn.
Fyrir hundrað árum fór afinn í langt ferðalag með gripinn.
SÉRSTÆÐUR KRANI
OG VASKUR frá tyrk-
neska hönnuðinum Inci
Mutlu. Þetta verk hennar
var til sýnis á húsgagna- og
hönnunarsýningunni í Mílanó
í vor. Mutlu býr nú á Ítalíu og
starfar ásamt Luca Milano í
fyrirtæki þeirra Mutlu+Milano.
hönnun
RAMMAR MEÐ STÍL Til þess
að fallegar myndir njóti sín sem allra
best er um að gera að velja skemmti-
legan ramma. Hér er dæmi um einn
slíkan eftir Craig Varterian. Innan
stóra rammans eru tveir smærri sem
eru festir á tein þannig að hægt er að
snúa þeim allan hringinn. Ramminn
þarf því ekki að standa upp við vegg
heldur getur verið hvar sem er þar
sem hann nýtur sín líkt og skúlptúr.
HAUSTLAUF FRÁ
HEY-SIGN Í versluninni Kokku
fást ýmsar vörur frá Hey-sign, en
það fyrirtæki sérhæfir sig í hlutum
úr ull. Margir kannast við glasa-
motturnar sem fást í ýmsum
litum og mörgum formum. Nú
má fá haustlauf úr hreinni ull í
nokkrum grænum, brúnum, fjólu-
bláum og rauðleitum litum sem
skapa skemmtilega hauststemn-
ingu á heimilinu.
ENGINN EÐA NOBODY CHAIR er nafnið á þessum
sérstöku stólum frá danska hönnunar-fyrirtækinu Komplot. Notuð
var tækni sem tekin var að láni frá bílaframleiðendum þar sem
endurunnar plastflöskur eru mótaðar í ný form eins og þessa stóla
sem má hlaða hverjum ofan á annan.
Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók myndina á
heimili hönnuðarins Marý. Útgáfufélag: 365 - miðlar ehf,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig
Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir
emilia@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason
og Ásta Bjartmarsdóttir s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
stólar
Bergþór Pálsson tekur hér lagið á íðilfagurt
harmóníum sem hann erfði eftir afa sinn, en sá
hafði líkt og Bergþór, mikla ást á tónlist.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Upplýsinga- og tölvusvið
Stafræn ljósmyndun
Kennari: Hrönn Axelsdóttir
Tímasetning: 18 kennslust. námskeið,
18. og 25. okt. og 1. og 8. nóv., kl. 18-21.
Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, tölvuhús,
stofa 621.
Lýsing: Farið verður yfir grunnatriði
stafrænna myndavéla, samspil ljósops, hraða
og ISO og áhrif þess á myndir. Áhrif linsa á
rýmið. Æfingar verða gerðar í tíma, einnig
verða heimaverkefni gerð sem eru tengd
yfirferð. Helstu leiðréttingar í Photoshop.
Nemendur þurfa að eiga eða hafa aðgang að
stafrænni myndavél sem hefur manual fókus.
Námsefni: Hefti frá kennara með helstu
upplýsingum um ljósop, hraða, ISO.
Photoshop, lagfæringar á myndum.
Verð: 19.000 kr.
Python forritun
Kennari: Andri Mar Jónsson, forritari hjá CCP.
Tímasetning: 30 kennslust. námskeið
kennt lau. 20. okt., 27 okt. og 3. nóv.
kl. 9–16 alla dagana.
Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík,
tölvuhús, stofa 633.
Lýsing: Grunnatriði Python forritunarmálsins
kynnt og æfð með fjölda verkefna.
Forkröfur: Grunnþekking á einhverju
forritunarmáli
Námsefni: Frá kennara.
Verð: 30.000 kr.
SKRÁNING Á WWW.IR.IS/NÁMSKEIÐ
UPPLÝSINGAR Í SÍMA 522 6500.
29. SEPTEMBER 2007 LAUGARDAGUR2