Fréttablaðið - 29.09.2007, Síða 66
Magnús Tómasson opnar
í dag sýningu í Listasafni
ASÍ sem ber yfirskriftina
DRASL og undirtitilinn
Ferðalag um skissubækur
listamannsins.
„Það er kannski full hátíðlega til
orða tekið að kalla þetta ferðalag
um skissubækur. Hugmyndirnar að
verkunum á sýningunni eru sumar
hverjar komnar til ára sinna, en
þær voru líkast til bara hripaðar
niður á einhverja pappírssnepla
frekar en í virðulegar skissu-
bækur,“ segir Magnús og hlær.
Magnús er fæddur í Reykjavík
1943. Hann hélt sína fyrstu einka-
sýningu í Bogasal Þjóðminja-
safnsins árið 1962, þá aðeins 19
ára gamall. Ári síðar innritaðist
hann í Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist þaðan
frá málaradeild og deildinni fyrir
„Mur og Rumkunst“ árið 1970. Þó
Magnús væri við nám í Danmörku
var hann í góðum tengslum við
það sem var að gerast í myndlist
hér heima og var hann einn af
stofnendum Gallerís SÚM þegar
það var stofnað 1968.
Verkin sem sjá má á sýning-
unni DRASL eru af ýmsu tagi.
„Uppistaðan í sýningunni er ann-
ars vegar málverk og hins vegar
verk sem eru steypt í steypujárn.
Verkin eru kannski dálítið sundur-
leit enda hafa hugmyndirnar að
þeim kviknað á mismunandi tíma-
bilum. Heiti sýningarinnar ber
það líklega svolítið með sér að
hér er á ferðinni blanda af ólíkum
hlutum.“
Meðal þess sem sjá má á sýn-
ingunni er samansafn steyptra
verka sem kallast Harðstjórn
hlutanna. Verkin fjalla um draslið
og óreiðuna sem sankast að fólki
á lífsleiðinni. Einnig er á sýning-
unni málverkaröðin Samanburðar-
landafræði, en þar blandar
Magnús saman þekktum kenni-
leitum frá ólíkum heimshornum.
„Hugmyndin á bak við þá
myndaröð er að sýna að þekkt
kennileiti deila oft formum.
Þannig sýni ég til að mynda Baulu
í Borgarfirði innan um pýramíd-
ana í Egyptalandi og Sigurbogann
á Dyrhólaey. Það er önnur mynda-
röð á sýningunni sem ég kalla
Formrím og vinn út frá svipaðri
hugmynd. Sú myndaröð saman-
stendur af myndþrennum sem
sýna hluti sem eiga fátt annað
sameiginlegt en formið. Það má
því segja að þetta séu form sem
ríma hvort við annað.“
Að lokum langar Magnús til að
koma á framfæri þakklæti til
Járnsteypunnar, sem sá um að
steypa verkin á sýningunni, og til
Listasafns ASÍ. „ASÍ stendur
afskaplega vel að sínum sýningum
og því er ánægjulegt að fá að vera
þar með verkin mín.“
Safnið, sem er við Freyjugötu
41, er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13 til 17 og aðgangur
er ókeypis.
Kl. 13.30
Vísindafélag Íslendinga og Háskóli
Íslands gangast fyrir ráðstefnu um
vísindamanninn Jónas Hallgrímsson
laugardaginn 29. september 2007 kl.
13.30-16.30 í hátíðarsal Háskóla
Íslands. Jónas Hallgrímsson er eitt
ástsælasta skáld þjóðarinnar en
hann var einnig á sinni tíð einn
færasti náttúrufræðingur Íslendinga
og brautryðjandi á hinum ýmsu
sviðum vísinda.
Danski ljósmyndarinn Kim
Linnet sýnir um þessar mundir í
Gallerí Gel, Hverfisgötu 37. Sýn-
ingin nefnist „Dulin himintungl
álfanna“.
Á sýningunni eru níu stórar
ljósmyndir sem sýna hnattlaga
umhverfi. Þær eru teknar í
Reykjavík, á Snæfellsnesi og á
Reykjanesi. Eins og lögun mynd-
efnisins gefur til kynna tákna
þær níu plánetur sem alltaf hafa
verið til en eru dags daglega
huldar sjónum okkar.
Hver plánetumynd saman-
stendur af meira en fimmtíu
stafrænum myndum, sem eru
settar saman með því að nota
ákveðið tölvuforrit. Þessi tækni
gerir áhorfendum kleift að endur-
uppgötva fegurð og smáatriði
kunnuglegs umhverfis með því
að sýna það í nýju samhengi.
Huldar plánetur
Van Gogh skrifar
Handverkshefð í hönnun
34 hönnuðir, lista- og handverkskfólk sýna verk sín
Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa
Leiðsögn á skandivanísku kl.14 á laugardag
Leiðsögn á íslensku kl.14 á sunnudag
Ertu með eitthvað NÝTT á prjónunum?
Prjónanámskeið fyrir byrjendur
fjögur mánudagskvöld 1. - 22. okt kl. 19:30 - 22:30.
Kennari: Ásta Kristín Siggadóttir.
Skráning á www.heimilisidnadur.is,
s. 551 7800 og 895 0780
Komdu að kveða í Gerðubergi!
Kvæðamannafélagið Iðunn
Dagskrá haustsins er að hefjast
Kvæðalagaæfing mið. 3. október kl.20 og
félagsfundur fös 5. október kl.20. Sjá www.rimur.is
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir, alþýðulistakona,
sýnir málverk og myndverk úr rekaviði og steinum
Vissir þú...
að í Gerðubergi er góð aðstaða fyrir ráðstefnur,
námskeið, fundi og móttökur.
Sjá www.gerduberg.is
Sýningar eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is