Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 8
MARKAÐURINN 17. OKTÓBER 2007 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
jö mínútur liðu á milli tilkynninga um
miklar breytingar hjá tveimur stærstu
upplýsingatæknisamstæðum landsins
síðasta fimmtudag. Sjö mínútur yfir níu
að morgni kom tilkynning frá Nýherja um
kaup á 77 prósenta hlut í TM Software af Straumi,
FL Group og Tryggingamiðstöðinni og tilboð ann-
arra til hluthafa um kaup á því sem eftir stendur.
Klukkan fjórtán mínútur gengin
í tíu kom svo tilkynning Teymis
um kaup á öllu hlutafé í Land-
steinum Streng og Hugi Ax, um
leið og félagið seldi ríflega 80
prósent af eignarhlut sínum í
Hands Holding hf.
Eftir stendur að Nýherji er
í sókn og bætir við starfsemi
sína um leið og Teymi skerpir
áherslur í rekstri sínum með
áherslu á innanlandsmarkað.
Félögin tvö eru stærst á upplýs-
ingatæknimarkaði hér. Í Hands
Holding situr svo eftir rekst-
ur utan landsteinanna Hands
ASA í Noregi, Kerfi A/S í Dan-
mörku, Kerfi AB í Svíþjóð, SCS
inc. í Bandaríkjunum, og Aston
Baltic í Lettlandi.
Tilviljun réð því að viðskipti
þessara félaga gengu í gegn
á svo til sama tíma og vakti
nokkra kátínu í geiranum. Í
tímasetningunni endurspeglast
hins vegar þær hræringar sem
eiga sér stað á þessum mark-
aði og ljóst að hér, líkt og gerst
hefur á meginlandi Evrópu síð-
ustu ár, á sér stað samþjöppun
í upplýsingatæknigeiranum. Í
hrókeringum Teymis fólst svo
líka sala á starfsemi Opinna kerfa hér á landi út
úr Opnum kerfum Group. Frosti Bergsson fjár-
festir, sem áður stýrði Opnum kerfum og seldi
tæplega fimmtungshlut hlut sinn í grúppunni árið
2004, festi kaup á Opnum kerfum ehf. fyrir 1,8
milljarða króna. Lokið var við áreiðanleikakönn-
un vegna kaupanna síðla dags á föstudag.
Salan á TM Software kom ekki á óvart í upp-
lýsingatæknigeiranum enda mat manna að fyrir-
tækið væri í nokkurri vörn í rekstri sínum. Í vor
gekk í gegn sala á Maritech, dótturfyrirtæki TM
Software, til AKVA Group í Noregi,
en nokkrum mánuðum fyrr hafði
verið skrifað undir viljayfirlýsingu
um kaup AKVA á sjávarútvegshluta
Maritech. Þá áttu sér stað rétt
fyrir síðustu áramót breytingar í
yfirstjórn TM Software og Friðrik
Sigurðsson, forstjóri félagsins til
tuttugu ára, lét af störfum.
Töluverð samlegðaráhrif þykja
hins vegar með Nýherja og TM
Software en það síðarnefnda verður
rekið sem dótturfélag Nýherja. TM
Software er svo móðurfélag fimm
félaga: Skyggnis, Origos, Vigors,
eMR og IPT.
Tvennt er hins vegar unnið með
viðskiptum Hands Holding og
Teymis. Hjá Teymi verður rekstur-
inn gegnsærri og skugginn af
ábyrgðum vegna Hands Holding
minnkar og þar með verður félagið
væntanlegra álitlegri fjárfestingar-
kostur á markaði. Þá verða áherslur
Teymis líka skarpari í því að félagið
einbeitir sér að heimamarkaði eftir
að hafa keypt út úr Hands Holding
allan íslenskan rekstur. Um leið eru
Opin kerfi hér heima seld frá sam-
stæðunni og losnar þar um núning
milli Opinna kerfa og EJS innan samstæðunnar,
en milli þessara tveggja fyrirtækja hefur ætíð
verið mikil samkeppni. Síðan á eftir að koma í ljós
hvaða stefnu Hands Holding tekur með erlendar
eignir sínar.
Upplýsingatæknifyrirtæki se
Samþjöppun á sér stað í upplýsingatæknigeiranum og víglínur skýrast. Fyrir helgi bar hér upp á sama dag stórbreyti
kaupum á TM Software og Teymi skerpir áherslur með sölu á bróðurparti í Hands Holding. Óli Kristján Ármanns
kerfum ehf. til Frosta Bergssonar.
T E Y M I
Dótturfélög:
Fjarskiptafyrirtækið Vodafone / Lág-
gjaldasímafyrirtækið SKO / Farsímafyrir-
tækið Kall í Færeyjum / Sölu- og þjón-
ustufyrirtækið Mamma / Ráðgjafar- og
hugbúnaðarfyrirtækið Kögun / Tölvu- og
upplýsingatæknifyrirtækið EJS / Hug-
búnaðar- og rekstrarþjónustufyrirtækið
Skýrr / Hugbúnaðar- og lausnafyrirtækið
Landsteinar Strengur / Hugbúnaðar-
lausnafyrirtækið Hugur/Ax.
Stærstu hluthafar:
1 Baugur Group hf. 24,5%
2 LI-Hedge 10,5%
3 Runnur ehf. 9,6%
4 FL GROUP hf. 6,2%
5 Teymi hf. 5,8%
6 Milestone ehf. 5,6%
7 Fons hf. 5,5%
8 Arion safnreikningur 3,8%
9 Atorka Group hf. 3,3%
10 Þórdís Jóna Sigurðardóttir 3,0%
N Ý H E R J I
Dótturfélög:
Hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtækið
AppliCon / Viðskiptaráðgjafarfyrirtækið
ParX / Klak nýsköpunarmiðstöð / Hug-
búnaðar- og greiðslukerfafyrirtækið
SimDex / Framleiðsluhugbúnaðar-
fyrirtækið AGR með dótturfélög í
Danmörku og í Bretlandi / Hugbúnaðar-
lausnafyrirtækið Hópvinnukerfi / Upp-
lýsingatæknisamstæðan TM Software
með Skyggni, Origo, Vigor, eMR og IPT
innanborðs / Þjónustulausnir í stafrænu
umhverfi í verslun Sense.
Stærstu hluthafar:
1 Vogun hf. 28,8%
2 Áning-fjárfestingar ehf. 13,9%
3 Benedikt Jóhannesson 9,3%
4 Gildruklettar ehf. 8,9%
5 Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. 5,2%
6 Nýherji hf. 4,8%
7 Benedikt Sveinsson 3,9%
8 Den Danske Bank A/S 3,6%
9 Audur Invest Holding SA 2,3%
10 Þórður Sverrisson 2,3%
Létt var yfir Frosta Bergssyni
eftir að hafa fengið aftur í faðm
sinn afkvæmið Opin kerfi, en
rétt fyrir síðustu helgi var end-
anlega gengið frá kaupum hans
á félaginu fyrir 1,8 milljarða
króna.
Félagið var áður í sameig-
inlegri eigu Teymis og Hands
Holding og hluti af Opnum kerf-
um Group. Frosti segir engrar
byltingar að vænta hjá félaginu
í kjölfar kaupanna. „En við horf-
um náttúrlega til þess að bæta
reksturinn enn frekar og skapa
okkur sérstöðu með því að veita
afburðaþjónustu,“ segir hann.
Þá segir Frosti engin vandamál
tengd því að skilja Opin kerfi
frá útrásarverkefnum sem
frá félaginu uxu á sínum tíma
undir heitinu Kerfi, bæði í Dan-
mörku og Svíþjóð. „Þetta voru
allt sjálfstæðar einingar. Opin
kerfi ehf. er hins vegar grunnur-
inn sem gerði möguleg á sínum
tí
út
ti
O
va
la
sí
sv
20
í
sa
D
lo
þó
sé
fj
se
en
le
fj
er
fy
ce
í
fi
Endurkom
Frosti Bergsson hefur key
Eins og sakir standa horfir Teymi
fyrst og fremst til upplýsinga-
tæknimarkaðar hér heima, að sögn
Ólafs Þórs Jóhannessonar, fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs fé-
lagsins. Hann segir horfur góðar
í starfseminni og ánægju með við-
skipti síðustu viku.
Áherslur voru skerptar í starf-
semi félagsins með kaupum á öllu
hlutafé Landsteina Strengs og
Hugar Ax síðasta fimmtudag og
með sölu á 80 prósenta hlut í hlut-
deildarfélaginu Hands Holding.
Eftir þau viðskipti á Teymi 14,5
prósent í Hands Holding og nemur
bókfært verð 101 milljón króna.
Ábyrgð Teymis á skuldbindingum
Hands Holding lækkaði hins vegar
úr 7,5 milljörðum króna og nemur
nú um 2,7 milljörðum.
Ólafur segir Teymi allar götur
hafa haft mjög mikinn áhuga á
þeim einingum sem keyptar voru
út úr Hands Holding. „Við höfum
ekki verið að sinna þeirri þjónustu
sem þessi fyrirtæki bjóða nema
að mjög takmörkuðu leyti innan
Teymis fram til þessa. Í sjálfu sér
fyllum við með þessu upp í þjón-
ustuframboð.“
Hina hliðina á skildingnum segir
Ólafur snúa að skuldbindingum
og eignarhaldi á Hands Holding.
„Við höfum þar verið með tæp-
lega 49 prósenta eignarhluta og
verið í ábyrgðum fyrir skuldbind-
ingum Hands Holding út af skipt-
ingunni sem átti sér stað í fyrra,“
segir hann og vísar til þess þegar
félaginu Dagsbrún var skipt upp
í upplýsinga- og fjarskiptahlut-
ann Teymi og fjölmiðlafyrirtæk-
ið 365, sem meðal annars gefur út
Fréttablaðið og Markaðinn. „Núna
minnkuðu þær ábyrgðir verulega,
bæði samhliða þessum viðskiptum
og öðrum sem áttu sér stað innan
Hands Holding, svo sem með söl-
unni á Opnum kerfum.“
Ljóst er hins vegar orðið að
Teymi og Nýherji eru stóru leik-
endurnir á sviði upplýsingatækn-
innar hér. „Þess vegna var náttúr-
lega mjög sérstakt að tilkynning-
ar um viðskipti félaganna skyldu
lenda á sama deginum. En þetta
segir okkur kannski að enn meiri
vakning sé að verða fyrir upplýs-
ingatækni og hún að ná sér á strik
aftur. Það er ekki langt síðan þessi
geiri fór ansi illa í netbólutalinu
öllu.“
Ólafur segir að innan Teymis
horfi menn bjartsýnir fram á veg-
inn enda standi að félaginu fyrir-
tæki sem eigi sér bæði langa og
farsæla sögu. „Innan upplýsinga-
tæknigeirans eru engin vandamál
og félögin okkar að gera góða hluti.
Kögun hefur unnið upp tekjutapið
sem varð við brotthvarf hersins og
hefur verið að vaxa töluvert með
veflausnum Eskils og Innn. Í EJS
höldum við náttúrlega utan um
gríðarlega öflugt vörumerki Dell
og Skýrr er á mjög góðri leið með
sína þjónustu og að skila sínu besta
ári frá upphafi.“
Teymi horfir til heimamarkaðar