Fréttablaðið - 28.10.2007, Page 22

Fréttablaðið - 28.10.2007, Page 22
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is VÍS leitar að starfsmanni í skoðanir og mat á eignatjónum Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini VÍS sem snýr að tjónaskoðun og mati á eigna- og ábyrgðartjónum ásamt því að svara fyrir um bótaskyldu. Um er að ræða mikil samskipti við viðskiptavini og verktaka. Leitað er eftir starfsmanni með iðnmenntun, tæknimenntun eða mikla reynslu sem nýtist í starfi. Viðkomandi þarf að vera frábær í samskiptum, skipulagður með góða tölvukunnáttu og geta tileinkað sér að vinna samkvæmt gildum VÍS sem eru umhyggja, áreiðanleiki og frumkvæði. Umsóknir berist á heimasíðu VÍS, www.vis.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Jóhannsson (johann@vis.is) í síma 560 5060. F í t o n / S Í A www.vis.is Hjá VÍS starfa um 240 manns á þjónustuskrifstofum félagsins um allt land. Það er stefna VÍS að hafa ávallt á að skipa vel menntuðu starfsfólki með framúrskarandi þekkingu á vátryggingamálum. Félagið leggur áherslu á að skapa starfsfólki gott starfsumhverfi og aðstöðu til að veita góða þjónustu. Félagið vill fela starfsfólki störf við hæfi þannig að hæfileikar þess og frumkvæði fái notið sín við áhugaverð og krefjandi verkefni. Þar sem tryggingar snúast um fólk BÓKARI ÓSKAST Eirberg Eirberg ehf. • Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • www.eirberg.is Bókhaldsfulltrúi óskast til starfa til að sjá um bókhald fyrirtækisins. Um er að ræða 60-80% hlutastarf. Helstu verkefni • Umsjón bókhalds • Launavinnsla • Virðisaukaskattur Hæfileikar • Reynsla af bókhaldi • Nákvæm vinnubrögð • Viðskiptamenntun Nánari upplýsingar er að finna á www.eirberg.is Umsóknarfrestur er til 6. nóvember og skal senda umsóknir á netfangið ahj@eirberg.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.