Fréttablaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 16
Þ á verður líka sett upp úrval mynda úr gjöf fjölskyldu Markúsar Ívarssonar járn- smiðs sem myndaði á sínum tíma stofninn í Listasafninu, Úrvalið sýnir aðeins lítinn hlut af gjöf Markúsar. Hún deilir húsakynnum með stórri yfirlitssýningu á verkum Kristj- áns Davíðssonar frá síðustu sautján árum. Halldór Björn Runólfsson safnstjóri leið- ir okkur til kaffistofu starfsfólks og mun á næstu stundarfjórðungum ræða þessa sýn- ingu og Listasafnið almennt. Hann er búinn að vera í starfi í nokkra mánuði; tók við af Ólafi Kvaran. Sýningarstefna safnsins er nú undir honum komin og þeim fáu starfs- mönnum sem hann ræður yfir. Kristján varð níræður í sumar. Hann er enn að þrátt fyrir háan aldur og hefur átt lengstan feril þeirra sem brutust úr örbirgð til mennta á stríðsárunum og skópu Íslandi nýja mynd, nýja sjálfsmynd. Kristján er að vestan. Hann var í hópi þeirra sem sóttu menntun vestur til Bandaríkjanna á stríðs- árunum þegar forysta í myndsköpun var að hverfa frá Parísarskólanum yfir til New York. Hann fór ekki einn. Til Ameríku sótti vestur um haf fjöldi Íslendinga: tónskáld eins og Jón Þórarinsson, Jórunn Viðar og Magnús Blöndal, rithöfundar á borð við Jónas Árnason og Ólaf Jóhann Sigurðsson, tónlistarmenn, KK og Svavar Gests, aðrir listamenn eins og Guðmundur Jónsson söngvari, Sigríður Ármann dansari. Nýi heimurinn og sá gamli tókust um langan tíma á í íslensku listalífi og átök þessara tveggja heima hafa enn ekki verið könnuð til fulls í íslenskri listasögu. Nú er það nokkuð einstakt í íslenskri mynd- list að haldin sé yfirlitssýning málara sem kominn er yfir nírætt og einungis litið til síðasta tímabilsins á ferli hans: verka sem eru máluð eftir sjötugsaldurinn. En Kristj- án hefur alltaf verið einstaklega afkasta- mikill málari og í miklum metum meðal þeirra sem hófu afstraktið til vegs og virð- ingar hér á landi um miðja síðustu öld. Verk hans voru enda þegar eftir Septem-sýning- arnar, sem hann tók þátt í, eftirsótt og er leið að sjöunda áratug síðustu aldar, seldi hann einkar vel. Ný stétt menntafólks og verslunar- og viðskiptamanna tók honum fagnandi: heildsalamálarinn var hann kall- aður. Kraftur verka hans, uppbrot á strang- formastefnunni sem hafði þá ríkt um hríð í afstraktinu, ef frá er talinn Svavar Guðna- son, rímaði við list- og lífssýn þessa stóra hóps sem varð þungamiðjan í íslensku sam- félagi á viðreisnarárunum og þaðan í frá. Og þá er líka til þess að líta að ameríski afstrakt-expressjónisminn var orðinn heimsþekktur, daufara var yfir strangflat- armálverkinu í Evrópu og breytingar í aðsigi í myndlist gamla heimsins. „Við höldum okkur ekki stíft við þessi sautj- án ár,“ segir Halldór. „Inn í blandast eldri verk sem eru til hér í safninu sem gefa örlítið tóninn um það sem áður var komið, og þá sérstaklega þessar skemmtilegu karikatúr-mannamyndir hans. Sumar þeirra verða til fyrr en þó er hann að mála verk sem eru hér á sýningunni alveg frá 1979 til 1999. En þetta er að meginhluta sautján síðustu ár.“ Hvernig gengur að skilja feril Kristjáns Davíðssonar þegar við nú í upphafi nýrrar aldar viljum skoða samhengið í ferli hans. Það er nöturleg staðreynd fyrir íslenskt menningarlíf að ef líta á til Kristjáns sér- staklega – þetta er maður sem hefur verið að í meira en fimmtíu ár – þá er ekkert sér- rit til um hann, sýningarskrár eru orðnar sjaldgæfar og gefa litla hugmynd um þróun, þó má nefna bók sem Aðalsteinn Ingólfsson og Gallerí Nýhöfn/Mál og menn- ing gáfu út árið 1992. Ef leita á heimilda um verk hans verður að leita í úrklippusöfn og þar er einungis að finna fáskrúðug viðtöl. „Okkur var brugðið þegar við komumst að þessu,“ segir Halldór, „ en það er ekkert til. Þetta eru blaðagreinar, smáspaltar. Ég reyndi að sannfæra bókaútgáfu á níunda áratugnum að ástæða væri að vinna bók um feril hans en talaði fyrir daufum eyrum. Hann hefur legið lengi óbættur hjá garði.“ „Kristján fer til Pennsylvaníu og lærir þar og var þá búinn að bíða í mörg ár eftir að komast þar að. Væntanlega út af stríðinu. Það var ekkert hægt að fara til Evrópu – hún var í báli. Hann segist sjálfur síðar ekki hafa orðið uppnuminn af amerískum málurum. Hann segir Pollock fyrir sér bara vera áframhald af evrópsku tradisjóninni. Hann sé í bund og grund evrópskur málari. Þaðan sé þetta allt sprottið. Hann segir að það hafi verið erfitt þegar hann er fyrir vestan að sjá verk þessara manna, eins og Pollock. Þeir voru dreifðir og verkin þeirra sáust ekki mikið. Það er seinna sem þessi hópur verður að þessum stóra straum ameríska expressjónismans. Hann er alltaf með hugann við Evrópu. Þegar hann fær sjens á að fara þangað vet- urinn 1949 og 1950 til London og Parísar þá hittir hann mann sem var mikill boðberi þess sem var að gerast í Evrópu, Michel Tapié. Hann hafði mikið dálæti á hrálist − Art Brut − sem er heiti kennt við franska málarann Jean Dubuffet sem hélt því fram að fullkominn primitífismi, sköpunarmátt- ur utangarðsmanna, geðfatlaðra og sérsinna fólks, væri miklu meira ekta en annar sköp- unarkraftur.“ „Michel var bara stuttan tíma boðberi Art Brut, síðan hélt hann fram tachisma, slettu- listinni, og óformlegri list − Art Informal. Þessi maður merkilegt nokk var mikill framtíðarspámaður því hann endaði uppi í Torino sem varð seinna hreiður Arte Pov- era-hreyfingarinnar, nokkurs konar nýlista- hreyfingar. Michel hittir Kristján 1949, kaupir af honum verk og býður honum að halda sýningu í galleríi sínu. Hvað olli því að Kristján þekktist ekki það boð má kenna aðstæðum hér á landi. Kristján segir svo frá að það hafi verið óskaplegt slys að hann skyldi ekki þekkjast það boð.“ Halldór hikar ekki við að setja verk Kristjáns á þessum tíma í alþjóðlegt sam- hengi. Íslensk myndlist hefur löngum verið talin menning eyjarskeggja af leikmönn- um. Líklegast vegna fyrirferðar sérís- lensks myndefnis. Enn í dag er verið að kaupa dýrum dómum landslagsmálverk svokallaðra eldri meistara hér á landi. Að vísu segja menn í myndabransanum að vel stæðir kaupendur hafi síðustu misserin sýnt vaxandi áhuga á fimmtíu ára gamalli myndlist. Íhaldssemi og varúð einkenna markaðinn. Hvernig þætti mönnum ef eng- inn keypti bíla eða föt nema þau væru helst fimmtíu ára. Sá kaupendahópur sem fagn- aði verkum Kristjáns fyrir mörgum ára- tugum var annars sinnis: hann kepptist við að kaupa það sem var nýjast – allt þar til SÚM kom til og viðfangefni myndlistar á Íslandi og víðar í vesturálfu hurfu frá óhlut- bundna málverkinu þótt Kristján héldi sínum hlut áfram á markaði. „Það er rétt að hann eignast snemma hóp af kaupendum, en það vill gleymast að hann er óhemju heimspekilega sinnaður. Af þess- um fátæklegu gögnum sem hefur tekist að grafa upp má ráða að hann er ekki á eftir Dubuffet að átta sig á mikilvægi frum- stæðrar listar. það gerist nokkurn veginn samtímis. Ýmsar yfirlýsingar hans sem eru í flökti við hrálistina gefur Kristján út áður en Dubuffet fer að halda Art Brut fram og er þá oftast vísað til fyrirlesturs sem Dubuffet hélt í Chicago 1951. Kristján segir snemma í viðtali að listamenn sýni fólk með sorgum sínum. Hann tekur sem dæmi konu með brunasár sem geti verið mjög falleg: Það er ekki lýti heldur gerir það fólk stærra og fallegra. Þetta er mjög merkilegt hjá manni í upphafi sjötta áratugarins.“ Kristján hefur verið afkastamikill málari. Engin heildarskrá er til yfir verk hans; hann tók ekki að skrá verk sín og hvar þau væru niðurkomin fyrr en seint á ferli sínum, ekki frekar en margir aðrir sinnar kynslóðar. Söfnun upplýsinga um verk í einkaeign eftir málara eins og hann er ekki aðeins mikilvæg til að hindra skipulagðar falsanir eins og brögð hafa verið að, heldur er slík skrá nauðsyn til að hægt sé að skanna feril manns á borð við Kristján. Hvað veldur því að íslensk söfn annast ekki slíka yfirlitsvinnu? „Söfnin eru svo fáliðuð. Listasafn Íslands hefur ekki bol- magn til að setja manneskju í svona vinnu. Við vitum af mörgum verkum. En þegar við fórum af stað fyrir þessa sýningu virtust verkin vera endalaus. Afköstin eru slík. Og það dregur ekkert úr.“ Halldór segir söfn- un gagna um verk Kristjáns standa nokkuð vel og þessi sýning sé innlegg í þá vinnu en það sé borin von að Listasafnið geti staðið að slíkri skráningu án sérstaks liðsinnis, hvað þá útgáfu á heildarskrám um verk málara á borð við Svavar og Kristján. Við erum komnir inn á nýtt svæði: hvað hefur Listasafnið úr miklum fjármunum að spila til listaverkakaupa? „Um sautján milljónum og hækkar upp í tuttugu milljón- ir á næsta ári. Við getum ekki annað en keypt bara innlend verk. Ef um verulega dýr verk er að ræða get ég leitað kostenda,“ segir Halldór. Listasafn Íslands er eina safnið í landinu sem má þiggja gjafir sem eru frádráttarbærar til skatts. Það sem Alþingi gat hugsað sér að gera fyrir það mátti ekki gera fyrir önnur söfn. Fáum end- urskoðendum eða stórfyrirtækjum virðist þetta ljóst. Safnið hefur notið tilstyrks Samson og er því opið án inngangseyris. Aðsókn að því hefur verið afbragðsgóð síð- ustu misseri. Að lokum spyrjum við Halldór hvort hann vilji flytja safnið af Fríkirkjuvegin- um og hann svarar neitandi: „ Það er svo að við eigum forkaupsrétt frá fornu fari að flestum húseignum hér í kring og ég vil að menn hugsi um að stækka safnið hér frekar en að huga því stað annars staðar. Það á heima hér í gömlu miðborginni.“ Á hann von á því að það hópist þúsundir að sjá sýn- ingu Kristjáns Davíðssonar sem verður opnuð í næstu viku? „Þetta verður blokk- böster.“ Vanmetinn meistari sýnir Í þröngu anddyri Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg eru kassar af ýmsum stærðum og gerðum úr ljósum viði, rammnegldir og merktir. Það er verið að pakka niður Ó-náttúrusýningunni sem kláraðist um síðustu helgi. Brátt víkur þessi frumlega innsetning úr anddyrinu og nýir hrauk- ar færast í átt að sölunum. Páll Baldvin Baldvinsson ræddi við Halldór Björn Runólfsson um yfirlitssýningu á verkum Kristjáns Davíðssonar sem verður opnuð í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.