Fréttablaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 6
Atvinnuveiðum á
hrefnu er lokið árið 2007. Félag
hrefnuveiðimanna fékk framleng-
ingu á kvóta til atvinnuveiða til 1.
nóvember næstkomandi og á eftir
af honum 23 dýr. Veður hefur
ekki boðið upp á veiðar að
undanförnu og bátar hrefnuveiði-
manna nýttir til annarra veiða.
Tímabilið hefur gengið vel að
mati hrefnuveiðimanna og sala á
hrefnukjöti ekki verið meiri síðan
hrefnuveiðar hófust aftur árið
2003. Allt það kjöt sem kom af
þeim 45 dýrum sem veidd voru
2007 er selt.
Hrefnuveiði-
vertíðinni lokið
Brotist var inn í
fataverslun við Laugaveg 29
snemma á föstudagsmorgun.
Stuttu síðar var karlmaður
handtekinn á Skólavörðustíg við
annað innbrot, þá inn á kaffihús.
Innbrotin eru talin tengjast.
Þegar maðurinn fannst var hann
blóðugur á höndum, líklega eftir
rúðurnar sem hann braut, að sögn
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Þjófurinn var í annarlegu
ástandi en reyndist ekki hafa
gripið mikið góss. Var hann
færður í fangageymslu þar sem
hann svaf úr sér vímuna áður en
hann var yfirheyrður.
Blóðugar hend-
ur eftir innbrot
Stjórn BSRB skorar á
borgaryfirvöld að ógilda samninga
um sameiningu Reykjavík Energy
Invest og Geysis Green Energy. Þá
er þess krafist að hætt verði við
áform um hlutafélagsvæðingu
Orkuveitu Reykjavíkur og kallað
eftir lagabreytingu sem komi í veg
fyrir að einkaaðilar eignist
náttúruauðlindir.
Stjórnin varar við að „sú
framvinda mála, sem orðið hefur
innan OR og þær hræringar sem af
henni hafa leitt á sviði stjórnmála,
verði til þess að skyndiákvörðun
verði tekin gegn útrásarmöguleik-
um dótturfyrirtækja í eigu OR. Er
bent á að Sameinuðu þjóðirnar
hvetja til samstarfs opinberra
veitufyrirtækja.“
Samruni ógiltur
Félag ungra frjáls-
lyndra vill setja árskvóta á fjölda
nýbúa sem flytjast til Íslands.
Árskvótinn skuli miðast við getu
og vilja þjóðarinnar til mannfjölg-
unar, segir í ályktun félagsins.
Viðar Helgi Guðjohnsen formað-
ur segir óhindrað flæði innflytj-
enda ekki gott fyrir jafn fámenna
þjóð og Ísland. „Það þýðir ekki að
reyna að slá á þenslu með því að
flytja inn vinnuafl, og meðan allt
er opið getur það endað með
ósköpum,“ segir hann. „Stórfyrir-
tækin virðast stýra þessu en ekki
stjórnmálamennirnir, og það er
leiðinlegt að sjá.“
Vilja setja kvóta
á fjölda nýbúa
Fyrsta síld haustsins kom til
Vestmannaeyja í gær með Sighvati Bjarnasyni VE-81.
Skipið kom með rúm níu hundruð tonn sem fengust í
þremur köstum á föstudaginn. Sighvatur fiskaði við
Grundarfjörð.
Jón Norðfjörð skipstjóri segir ferðina frá Grundar-
firði til Eyja yfirleitt vera um fjórtán tíma stím.
Sökum leiðindaveðurs hafi þeir hins vegar mátt sigla í
sólarhring.
„En ég held það sé nú allt í lagi með fiskinn og við
erum að taka hann upp núna.
Hann segir undarlegt að sjá fiskinn langt inni í
Grundarfirði, hann hafi veitt í mörg ár en ekki þarna.
„Þetta er ekkert venjulegt, ég hef aldrei séð hann áður
svona inni í firðinum. Ég veit ekki til þess að menn
hafi verið að veiða þarna fyrr en í fyrravetur. Þetta er
einhver alveg ný staða,“ segir hann.
Jón vill ekki giska á hverju sæti að síldin sé á
þessum slóðum, en dettur helst í hug að hitastig
sjávar hafi rekið hana þangað.
„En hún er svo skrýtin þessi síld, hún fer sínar eigin
leiðir og tekur alls kyns útúrdúra!“
Afli helgarinnar er, að mati Jóns, „prýðisgóð
millisíld. Hún er nú ekki stórsíld eins og sú norska, en
þetta er svona 250 til 300 gramma síld.“
Á Sighvati Bjarnasyni eru þrettán menn í áhöfn og
verða þeir í landi fram á mánudag, þegar búið verður
að landa.
„Já, við löndum og förum svo aftur að leita að síld.
Ég veit ekki hvort við förum aftur til Grundarfjarðar
en það er búið að spá góðu veðri þannig að við leitum
líklega eitthvað í kringum Vestmannaeyjar líka.“
Nokkur loðnu- og kolmunnaskip hafi verið að
veiðum í Grundarfirði í gær og þokkalegt veður þar.
Fyrsta síld haustsins
kom til Eyja í gær
Sighvatur Bjarnason VE-81 veiddi um 900 tonn af síld inni í Grundarfirði á
föstudaginn og byrjaði að landa henni í gær í Vestmannaeyjum. Skipstjórinn
segir óvenjulegt að sjá síldina á þessum slóðum. Aflinn sé „prýðisgóð millisíld“.
Nýr einkennisbún-
ingur lögreglunnar verður form-
lega tekinn í notkun 1. nóvember.
Embætti ríkislögreglustjóra hefur
unnið að breytingum á búningum
lögreglunnar í um tvö ár, með þátt-
töku og í samstarfi við fjölmarga
aðila. Markmiðið með breytingun-
um er öruggari og þægilegri vinnu-
fatnaður sem mætir þörfum lög-
reglunnar.
Upphaflega stóð til að nýr ein-
kennisfatnaður lögreglu yrði tek-
inn í notkun í upphafi árs 2007, en
vegna ýmissa ytri aðstæðna hefur
verið verulegur dráttur á afhend-
ingu frá birgjum, eins og Frétta-
blaðið hefur greint frá. Þær tafir
leiddu til þess að eldri búningur er
ófáanlegur og einhverjir lögreglu-
menn hafa því þurft að taka nýja
búninginn í notkun fyrir mánaða-
mót. Þeim er það heimilt þar sem
aðrir kostir eru ekki fyrir hendi,
samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra.
Öryggi lögreglumanna var haft
að leiðarljósi við efnisval búning-
anna. Sem dæmi má nefna að hluti
vinnufatnaðarins er úr eldtefjandi
NOMEX-efni. Þá eiga hanskar að
veita viðnám gagnvart stungum af
sprautunálum.
Búningur að breskri fyrirmynd
Finnst þér orðið negri neikvætt?
Átt þú hlutabréf?