Fréttablaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 25
FJ Á R F E ST I NGARBANK I
Umsjónarmaður viðskiptaviðmóts
sér um þróun á vef bankans og stýrir innleiðingu á viðskiptamannakerfi og skjalakerfi.
Við leitum að bókasafns- og upplýsingafræðingi með mikla reynslu af tölvukerfum eða
tölvunarfræðingi með mikla samskiptahæfni og áhuga á skipulagi og verkferlum.
Viðkomandi einstaklingur þarf að hafa mikla þjónustulund en einnig góða
forystuhæfileika.
Starfsmaður í móttöku
sér um að viðskiptavinir fái hlýjar móttökur þegar þeir koma til okkar, greiðir leið
þeirra þannig að þeir fái úrlausn sinna erinda, undirbýr fundi, aðstoðar starfsmenn og
sinnir símsvörun. Við leitum að einstaklingi með ríka þjónustulund og jákvætt viðhorf,
góða enskukunnáttu, góða tölvukunnáttu, samskiptahæfni og frumkvæði.
Sérfræðingur á lánasviði
sér um fjárhagsgreiningu fyrirtækja og verkefna, undirbúning lánaumsókna, vinnslu
og frágang lánaskjala ásamt eftirliti og utanumhaldi lánamála. Við leitum að
viðskiptafræðingi með reynslu af útlánum í fjármálastofnun eða fjármálastjórnun
fyrirtækja. Starfsreynsla í fjármálastjórnun verslunarreksturs eða þjónustufyrirtækis er
kostur. Viðkomandi einstaklingur þarf að búa yfir frumkvæði, samskiptahæfni og
mikilli þjónustulund.
Starfsmaður á vörslu- og uppgjörssviði
hefur umsjón með uppgjöri eigin viðskipta og einnig með sjóðum rekstrarfélaga VBS.
Við leitum að viðskiptafræðingi, helst með reynslu af sambærilegum störfum. Þekking
á rekstri verðbréfasjóða er skilyrði, ásamt samskiptahæfni og þjónustulund.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 5. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veita Kristín Guðmundsdóttir og Elísabet Sverrisdóttir
hjá Hagvangi. Netföng: kristin@hagvangur.is og elisabet@hagvangur.is
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
Sími: 570 1200
Fax: 570 1209
www.vbs.is
vbs@vbs.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VBS fjárfestingarbanki er vaxandi fjármálafyrirtæki
sem sinnir verðbréfamiðlun, eignastýringu,
framkvæmdafjármögnun og fyrirtækjaráðgjöf, auk
lánveitinga til margvíslegra verkefna. VBS er
hlutafélag með yfir 100 hluthafa og eiga flestir
starfsmenn hlut í bankanum. Lögð er áhersla á
hollustu og heilbrigði starfsmanna og er aðstaða í
nýjum húsakynnum okkar í samræmi við ítrustu
kröfur um vinnuvernd. Starfsmenn bankans eru nú
nálægt 40. Við erum kraftmikill og samhentur hópur
með mikið frumkvæði, þekkingu á fjölbreyttu sviði
og keppum sífellt að góðum árangri bankans og
viðskiptavina hans.