Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 25

Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 25
FJ Á R F E ST I NGARBANK I Umsjónarmaður viðskiptaviðmóts sér um þróun á vef bankans og stýrir innleiðingu á viðskiptamannakerfi og skjalakerfi. Við leitum að bókasafns- og upplýsingafræðingi með mikla reynslu af tölvukerfum eða tölvunarfræðingi með mikla samskiptahæfni og áhuga á skipulagi og verkferlum. Viðkomandi einstaklingur þarf að hafa mikla þjónustulund en einnig góða forystuhæfileika. Starfsmaður í móttöku sér um að viðskiptavinir fái hlýjar móttökur þegar þeir koma til okkar, greiðir leið þeirra þannig að þeir fái úrlausn sinna erinda, undirbýr fundi, aðstoðar starfsmenn og sinnir símsvörun. Við leitum að einstaklingi með ríka þjónustulund og jákvætt viðhorf, góða enskukunnáttu, góða tölvukunnáttu, samskiptahæfni og frumkvæði. Sérfræðingur á lánasviði sér um fjárhagsgreiningu fyrirtækja og verkefna, undirbúning lánaumsókna, vinnslu og frágang lánaskjala ásamt eftirliti og utanumhaldi lánamála. Við leitum að viðskiptafræðingi með reynslu af útlánum í fjármálastofnun eða fjármálastjórnun fyrirtækja. Starfsreynsla í fjármálastjórnun verslunarreksturs eða þjónustufyrirtækis er kostur. Viðkomandi einstaklingur þarf að búa yfir frumkvæði, samskiptahæfni og mikilli þjónustulund. Starfsmaður á vörslu- og uppgjörssviði hefur umsjón með uppgjöri eigin viðskipta og einnig með sjóðum rekstrarfélaga VBS. Við leitum að viðskiptafræðingi, helst með reynslu af sambærilegum störfum. Þekking á rekstri verðbréfasjóða er skilyrði, ásamt samskiptahæfni og þjónustulund. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 5. nóvember nk. Nánari upplýsingar veita Kristín Guðmundsdóttir og Elísabet Sverrisdóttir hjá Hagvangi. Netföng: kristin@hagvangur.is og elisabet@hagvangur.is Suðurlandsbraut 18 108 Reykjavík Sími: 570 1200 Fax: 570 1209 www.vbs.is vbs@vbs.is F í t o n / S Í A VBS fjárfestingarbanki er vaxandi fjármálafyrirtæki sem sinnir verðbréfamiðlun, eignastýringu, framkvæmdafjármögnun og fyrirtækjaráðgjöf, auk lánveitinga til margvíslegra verkefna. VBS er hlutafélag með yfir 100 hluthafa og eiga flestir starfsmenn hlut í bankanum. Lögð er áhersla á hollustu og heilbrigði starfsmanna og er aðstaða í nýjum húsakynnum okkar í samræmi við ítrustu kröfur um vinnuvernd. Starfsmenn bankans eru nú nálægt 40. Við erum kraftmikill og samhentur hópur með mikið frumkvæði, þekkingu á fjölbreyttu sviði og keppum sífellt að góðum árangri bankans og viðskiptavina hans.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.