Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 4
4 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
Í frétt um söfnun sem aðstandendur
standa að fyrir konuna sem missti
íbúð sína í bruna í Fannarfelli 6 láðist
að birta kennitölu reikningseiganda
svo hægt væri að leggja inn á reikn-
inginn í Landsbankanum. Kennitalan
er 270357-2029 og reikningsnúmerið
er 0135-05-071022.
ÁRÉTTING
ATVINNUMÁL „Við þurfum auðvitað að mæta
þessu fólki með virðingu og bjóða því upp á
sómasamlegar aðstæður,“ segir Gylfi Dal-
mann Aðalsteinsson, lektor við Háskóla
Íslands.
Lárus Blöndal, deildarstjóri atvinnu- og
félagsmáladeildar Hagstofunnar, benti á það í
erindi í Háskóla Íslands á föstudag að
útlendingum á vinnumarkaði hér á landi hefði
fjölgað gríðarlega, ekki síst undanfarin þrjú
ár. Langflestir þeirra kæmu frá Póllandi.
Gylfi Dalmann segir að húsnæðisvandinn sé
einn flötur á þessu máli. Stórir hópar komi
hingað til lands til að vinna tiltekin verkefni,
og séu settir niður í starfsmannabúðum. „Það
skapar ákveðna einangrun og ef til vill múra, í
staðinn fyrir að við blöndum þessu meira
saman.“
Yfir fjórtán þúsund erlendir ríkisborgarar
voru á íslenskum vinnumarkaði í fyrra.
Lárus telur að margir þeirra séu komnir til
að vera, enda virðist Íslendingar um margt
vera orðnir háðir erlendu vinnuafli. „Til
dæmis fiskvinnslan, Þarna er komin grein þar
sem mikil verkþekking og reynsla hefur orðið
til hjá útlendingum.“ - ikh
Gríðarleg fjölgun erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði undanfarin ár:
Viljum ekki útlendingagettó
VIÐ FÆRIBANDIÐ Hlutfallslega starfa mun fleiri útlend-
ingar við fiskvinnslu en innfæddir.
ÚTLENDINGAR Á
ÍSLENSKUM VINNUMARKAÐI
Útlendingar eru nú um 8 prósent vinnandi fólks
hér á landi. Í þessum tölum sést hversu hátt hlutfall
útlendinga innbyrðis starfar við hinar ýmsu atvinnu-
greinar. Til samanburðar er hlutfall innfæddra inn-
byrðis í sömu greinum. Þau prósent sem standa út
af starfa við annað.
Útlendir Innlendir
Fiskvinnsla 13,5% 3,3%
Mannvirkjagerð 21% 7,8%
Hótel og veitingahús 7% 3,5%
Verslun 6,8% 14,1%
Heilbrigðis- og félagsþjónusta 10,7% 15,4%
ORKA „Það er svoleiðis algjör
vit leysa að ég hafi gjörsnúist í
þessu máli. Össur ætti að skrifa
minna og fylgjast betur með. Þá
vissi hann að ég hef fyrir löngu
sagt þetta og að þetta er í sam-
ræmi við það sem allir sjálfstæð-
ismenn hafa sagt,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi.
Á heimasíðu sinni kveður iðnað-
arráðherra sjálfstæðismenn hafa
gjörsnúist í afstöðu sinni til REI.
Hann leggur út af ummælum Júlí-
usar, sem sagði í fréttum á föstu-
dag að hann væri opinn fyrir því
að REI gengi til samstarfs við
önnur félög og að REI gæti átt
eignaraðild að öðrum félögum í
svipuðum verkefnum.
„Við höfum aldrei sagt að REI
ætti ekki að vera í áhættusamri
útrás. Til þess var það stofnað,“
segir Júlíus.
„Það sem við gagnrýndum á
sínum tíma var meðal annars að
jafnræðisreglunni væri ekki fylgt
og að öðrum fyrirtækjum en
Geysi hefði ekki verið gefinn
kostur á samstarfi. Þarna var
verið að velja út eitt félag.“
Blogg Össurar og Björns Inga
Hrafnssonar, sem einnig vakti
athygli á ummælum Júlíusar, sýni
öðru fremur hversu mikil sundrung
sé innan meirihluta borgarstjórnar
um REI. Össur og Björn Ingi reyni
að draga athyglina frá því.
Á sinni heimasíðu veltir Björn
Ingi því upp að ef til vill hafi sex-
menningarnir „ekki kunnað að
meta eigendur Geysis Green
Energy og þess vegna verið á móti
samrunanum“.
Júlíus segir ummælin ómakleg.
„Afstaða okkar til REI hafði alls
ekki neitt að gera með hverjir áttu
Geysir Green Energy. Slíkar ásak-
anir eru fyrir neðan belti og lýsa
frekar þeim sem skrifar. Það er
Framsóknarstíll á því.“
Iðnaðarráðherra kveður „valda-
rán sexmenninganna“ hafa valdið
Orkuveitu og REI tugmilljarða
skaða.
„Það er algjörlega úr lausu
lofti gripið að við höfum valdið
einhverju tapi. Hagnað af
áhættufjárfestingum geta menn
ekki reiknað sér fyrir fram. Við
skulum ekki gleyma því að það
var Svandís Svavarsdóttir sem
stefndi borginni til að fá samrun-
anum hnekkt.“
klemens@frettabladid.is
Vitleysa að ég hafi
gjörsnúist í málinu
Júlíus Vífill segir að iðnaðarráðherra ætti að blogga minna og fylgjast betur
með. Sjálfstæðismenn hafi aldrei sagt að REI ætti ekki að vera í áhættusamri
útrás. Björn Ingi segir að málið kunni að snúast um hverjir eigi Geysi Green.
FORNMINJAR Alcoa Fjarðaál
afhendir í dag Þjóðminjasafni
Íslands styrk úr samfélagssjóði
Alcoa til endurbyggingar
Sómastaða við Reyðarfjörð.
Sómastaðahúsið er merkilegt
hús enda eina portbyggða
steinhúsið sem varðveist hefur á
Íslandi. Útvegsbóndinn Hans
Jakob Beck byggði húsið árið
1875. Það er hlaðið úr grjóti úr
nágrenninu og bundið með
jökulleir.
Húsið stendur steinsnar frá
álveri Alcoa og stendur til að
færa það í upprunalegt horf.
Styrkur Alcoa nemur um sextán
milljónum króna. - þo
Alcoa styrkir Þjóðminjasafnið:
Sómastaðir
endurbyggðir
SÓMASTAÐIR Húsið var byggt árið 1875.
MYND/HELGI GARÐARSSON
Fjórir teknir fyrir lyfjaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði tíu ökumenn aðfaranótt
laugardags sem grunaðir eru um
ölvun við akstur. Fjórir til viðbót-
ar eru grunaðir um að aka undir
áhrifum fíkniefna. Þá voru tólf manns
handteknir í miðborginni fyrir brot á
lögreglusamþykkt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
! #
$
%
% &
'(
)&
*
#
$
+,- +,- .,- /
0,- 1,- 23,- 23,- +,- 4,- 1,- 5,-6 78
+,-6 78
20,- 2+,- ..,-6 78
!
"
#
!
$%$& '
"
(
((
(
)*+,-..)/0-1
!$2$3
'!"(
42567
9(
:2;<2=(
(
0<=>
# *8(9" "
:
: :
ALMANNAVARNIR Landhelgisgæslan
hefur flutt Fokker flugvél sína TF-
SYN og þyrluna TF-GNA til
Keflavíkurflugvallar.
Að því er fram kemur á vef
Víkurfrétta kann flutningurinn að
marka fyrstu skrefin í flutningi
flugdeildar Landhelgisgæslunnar
frá Reykjavíkurflugvelli til
Keflavíkurflugvallar. Georg Kr.
Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar, sagði í samtali við
Víkurfréttir fyrr á árinu að það
væri vænlegur kostur að flytja
alla starfsemi Landhelgisgæslunn-
ar á Suðurnesin.
Á vef Landhelgisgæslunnar
segir að húsnæðið á Keflavíkur-
flugvelli sé tímabundið en þrengt
hafi að flugflota gæslunnar í
flugskýlinu á Reykjavíkurflug-
velli. - þo
Floti Landhelgisgæslunnar:
Sýn og Gná á
Keflavíkurvöll
FLUTNINGAR Þyrlan TF-GNÁ er nú í
tímabundnu húsnæði á Keflavíkurflug-
velli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Leyfislaus skytta gómuð
Rjúpnaskytta þurfti að afhenda
lögreglunni í Borgarnesi byssuna sína
og nýveiddan jólamatinn þegar upp
komst að hún hafði ekki veiðileyfi.
Skyttan var á ferð í uppsveitum Borg-
arfjarðar og hafði veitt fjórar rjúpur
þegar lögregla kom á vettvang.
Eldur kviknaði í ruslatunnu
Eldur kom upp í húsnæði Bústólpa
á Akureyri á föstudag. Slökkviliðinu
gekk greiðlega að slökkva eldinn
sem kviknaði í ruslafötu í starfs-
mannarými. Tjónið er ekki mikið en
reykræsta þurfti húsið.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ORKUVEITAN
Er nú óðum
að verða eitt
umdeildasta
fyrirtæki landsins.
Iðnaðarráðherra
heldur því fram
að sjálfstæðis-
menn hafi skaðað
hagsmuni þess
svo tugmilljörðum
skipti.
GENGIÐ 23.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
122,4064
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
62,58 62,88
128,83 129,45
92,60 93,12
12,418 12,490
11,511 11,579
9,926 9,984
0,5786 0,5820
99,76 100,36
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld