Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 20
20 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
JÓN BALDVIN ÓDÆLL Ágúst: „Þetta var mjög óvenjulegt, og sérstaklega á þessum tíma, þegar allt var svona stilltara og fjölmiðlum haldið svolítið í skefjum af stjórnmálamönnum. Jón Baldvin var svo óþekkur, hann átti
svo erfitt með að haga sér eftir bókinni.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í hvaða hverfi eigið þið heima og
nefnið þrjá kosti og ókosti við
búsetuna.
Ágúst Borgþór: Ég bý í Vestur-
bænum og það eru auðvitað miklu
fleiri kostir en þrír. En ég segi
Ægisíðan, nálægðin við miðbæinn
og KR – þið viljið kannski ekki
heyra eitthvað svona karlalegt?
Unnur: Jú, jú.
Ágúst Borgþór: En þar er svo of
lítið úrval af góðu húsnæði. Átti ég
að segja þrjá ókosti? Það er svo
erfitt að nefna ókosti við Vestur-
bæinn. En jú, ég er hættur að geta
farið með strætó þaðan og það er
búið að leggja niður Vídeóljónið –
sjoppuna.
Unnur: Ég bý í Heiðmörk og kost-
irnir eru nálægðin við náttúruna,
fegurð umhverfisins og fjarlægð-
in frá miðbænum. Ókostirnir
myndu þá vera holóttur vegur sem
liggur hingað, fjarlægðin frá mið-
bænum – stundum – og það er
dágóður spölur í vídeóleiguna.
Róar niður æst fólk
Þið hafið sem fyrr segir ekki hist
áður. Ef þið eigið að ímynda ykkur
eitthvað þrennt um hvort annað –
sem þið vitið ekki núna hvort er
satt eður ei – hvað ætlið þið að
ímynda ykkur?
Ágúst Borgþór: Ég myndi halda að
við Unnur séum mjög lík og svo
mjög ólík. Ég get fyrst ímyndað
mér að Unnur sé friðlaus ef hún
kemst ekki á fjöll. Er eitthvað til í
því?
Unnur: Já.
Ágúst Borgþór: Og ég er eiginlega
viss um að hún hafi farið í jóga-
tíma.
Unnur: Heyrðu, ég var að kaupa
mér kort í jóga.
Ágúst Borgþór: Svo finnst mér
einhvern veginn eins og þú rífist
ekki. Og að þú róir niður æst fólk.
Unnur: Ertu skyggn?
Ágúst Borgþór: Nei, þetta er bara
tilfinning, bara tilfinning.
Unnur: En nei, þetta er alveg rétt.
Ég á mjög erfitt með að rífast og
það getur meira að segja háð mér.
Ég hef svolítið verið að reyna að
læra það á seinni árum og er svo
stolt þegar ég get svarað fyrir
mig.
Ágúst Borgþór: Vertu ánægð með
að rífast ekki.
Unnur: Nú, jæja, ókei. En ég var
búin að ímynda mér að Ágúst
Borgþór væri svolítill Mið-Evr-
ópumaður og kannski svolítill mið-
aldamaður.
Ágúst Borgþór: Já, Mið-Evrópu-
maður, en ég hef ekki mikla þolin-
mæði til að vera inni í kirkjum og
lesa um þær og svona. En, jú, það
er þetta borgarlandslag sem er
upprunnið frá miðöldum sem höfð-
ar til mín.
Unnur: Svo ímyndaði ég mér það
að þú myndir vilja getað skrifað
allan tímann, að ritstörfin eigi í
raun allan þinn hug.
Ágúst Borgþór: Það er rétt en það
er svo fjarlægt að ég hef algjör-
lega aðlagað mig því að svo er
ekki. En það þyrfti svo margt að
breytast.
Unnur: Ég ímyndaði mér nú alls
ekki að þú færir í gymmið eða eitt-
hvað þannig en ég ímyndaði mér
að þú færir í sund og gönguferðir.
Ágúst: Þú ert rosalega nálægt því
þarna því ég synti mjög mikið
árum saman og svo skipti ég yfir í
skokk. En ég gafst upp á að reyna
að fullkomna líkamann minn fyrir
um tuttugu árum. Ég er bara mjúk-
ur og þykkur og í góðu formi.
Kynlíf kvenna betra með aldrinum
Nú ert þú, Unnur, að gefa út bók
um Huldufólk og þú um miðaldra-
krísu karlmanna og gráa fiðring-
inn, Ágúst Borgþór. Hefur þú séð
huldufólk eða álfa, Ágúst, og trúir
þú á tilvist þeirra? Heldurðu að
það séu álfar í húsinu þínu, Unnur?
Og heldur þú að konur geti upplif-
að gráa fiðringinn eða er þetta
karllægt fyrirbæri? Hefur þú upp-
lifað gráa fiðringinn, Ágúst?
Ágúst: Ég hef ekki séð það og ég
ætla ekki að vera svo hrokafullur
að segja að það sé ekki til. En ég
trúi ekki sjálfur og finnst mjög
leiðinlegt að segja það. Mér finn-
ast mjög margir segjast trúa því
sem trúa því ekki – og setja upp
svona gervibros um leið. Svo ég
ætla bara að vera heiðarlegur.
Unnur: Ég hef ekki orðið vör við
álfa heima hjá mér en þar er góður
andi og það hefur komið til mín
miðill sem segir að það sé einhver
velviljaður þarna. Nú er ég
kannski enginn sérstakur talsmað-
ur álfa og huldufólks þótt ég hafi
gert þessa bók. En það kannski
vantar?
Ágúst Borgþór: Upplýsingafull-
trúa?
Unnur: Já, umboðsmann álfa? Ég
myndi gjarnan vilja fá það emb-
Gott að tala um gráa fiðringinn
Ágúst Borgþór Sverrisson hefur aldrei hitt Unni Jökulsdóttur en fann samt á sér að hún færi í jóga. Unnur var þá einmitt
nýbúin að kaupa sér jógakort og gat sér sömuleiðis rétt til um það að Ágúst færi ekki í ræktina heldur gengi frekar og synti. Júlía
Margrét Alexandersdóttir hitti rithöfundana tvo og ræddi við þá um innsog, þulur og gráa fiðringinn.
Á RÖKSTÓLUM Hvað gráa fiðringinn varðar þá átti ég mitt gráa fiðrings
ár þegar ég var 39 ára. Ég lenti nú ekki í neinum vondum
ástarmálum. En ég lenti í einhverjum rosalegum komp-
lexum.
Mig hefur alltaf
langað til að ... Unnur:
...sigla með strönd Chile.
Ágúst: ...að gera það sem
ég geri.
Mér líður best þegar...
Unnur: ...ég er í góðra
vina hópi. Gott kaffi hjálp-
ar. Ágúst: ...ég er að klára
nýja sögu/ég kem til nýrrar
borgar/ég kem heim til
mín/ég er alveg að sofna.
Ég fæ vatn í munninn
þegar ég sé... Unnur:
...sushi. Ágúst: ...dálítið
sem ég get ekki nefnt. Yrði
ritskoðað.
Ég fæ grænar bólur
þegar... Unnur: ...ég
borða súkkulaði. Ágúst:
... ég heyri „rannsóknir
hafa sýnt“ (Alveg eins og
Brynjar Nielsen).
Alþingi er fullt af...
Unnur: ...alþingismönn-
um, er það ekki? Ágúst:
...venjulegu fólki.
Ef ég ætti milljón
myndi ég kaupa...
Unnur: ...bækur. Ágúst:
... eh, ég á milljón. Ef ég
ætti nokkra tugi af þeim
myndi ég líklega kaupa
einbýlishús í Vesturbæn-
um.
Ég syng alltaf með...
Unnur: ...laginu Sum-
mertime. Ágúst: ...Who-
lögunum: Who are you,
who-who-who-who, Who
are you, who-who-who-
who.
Ég myndi aldrei...
Unnur: ...fara í geimferð.
Ágúst: ...láta húðflúra
mig.
Eftirlætis málshátt-
urinn er... Unnur: ...Því
verr gefast heimskra
manna ráð sem fleiri koma
saman. Ágúst: ...Vörn er
besta sóknin.
➜
OG BOTNIÐ NÚ!