Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 105
SUNNUDAGUR 25. nóvember 2007 33
B&L
KÖRFUBOLTI Stórveldið Boston Celt-
ics vann LA Lakers, 107-94, á
heimavelli sínum í fyrrinótt í
NBA-deildinni, en liðin hafa
saman lagt unnið 30 meistaratitla í
deildinni og eru þekktustu erki-
fjendur í sögu NBA.
Kobe Bryant og félagar í LA
Lakers máttu sín lítils gegn Kevin
Garnett, Paul Pierce og Ray Allen
hjá Boston Celtics sem voru sjóð-
andi heitir að vanda. Boston-menn
fundu sig greinilega vel á heima-
velli sínum og leiddu 25-16 eftir
fyrsta leikhlutann. Celtics jók enn
forskot sitt í öðrum leikhluta og
staðan var orðin 53-35 þegar flaut-
að var til hálfleiks.
Þriðji leikhluti var aftur á móti
jafn þar sem liðin skoruðu hvort
um sig 31 stig. Lakers-liðið náði
svo að klóra enn frekar í bakkann
í fjórða leikhluta, en þá voru úrslit
leiksins þegar ráðin. Lokatölur
voru því eins og segir 107-94 og
þægilegur sigur Boston Celtics
því staðreynd, en liðið hefur byrj-
að frábærlega í deildinni og unnið
tíu af fyrstu ellefu leikjum sínum.
„Það er sérstök upplifun að spila
þessa leiki á milli Boston Celtics
og LA Lakers út af þeirri miklu
sögu sem er á milli liðanna. Ég sá
líka á eftirvæntingunni í andlitum
stuðningsmanna Boston í stúkunni
að sigur á móti LA Lakers hefur
greinilega afar sérstaka þýðingu,“
sagði Ray Allen í viðtali eftir leik-
inn.
Kevin Garnett var stigahæstur
hjá Boston með 21 stig auk þess að
taka ellefu fráköst, Kendrick
Perkins skoraði einnig 21 stig,
Paul Pierce skoraði 20 stig og átti
níu stoðsendingar og Ray Allen
skoraði 18 stig. Hjá LA Lakers var
Kobe Bryant að vanda stiga hæstur
með 28 stig og Serbinn Vladimir
Radmanovic kom næstur með 18
stig, en LA Lakers hefur tapað
fimm af fyrstu tólf leikjum sínum
í deildinni. - óþ
Boston Celtics vann LA Lakers 107-94 í fyrranótt:
Boston hafði betur
í einvígi erkifjenda
TÁKNRÆNT Kevin Garnett og Paul Pierce, leikmenn Boston Celtics, fagna hér í leikn-
um í fyrrakvöld, en Kobe Bryant, skærasta stjarna LA Lakers, horfir öfundaraugum á.
NORDICPHOTOS/GETTY
TENNIS Bandaríkjamaðurinn Pete
Sampras, 36 ára margfaldur
stórmótsmeistari í tennis, gerði
sér lítið fyrir og lagði besta
tenniskappa heims, Roger
Federer, í sýningarleik í Macau í
gær.
„Ég er ánægður með að ég sé
enn samkeppnishæfur,“ sagði
Sampras, sem lagði spaðann á
hilluna árið 2002. Sampras
hrósaði Federer fyrir frammi-
stöðu sína undanfarin ár, en
kvaðst aftur á móti hafa þurft að
glíma við miklu erfiðari andstæð-
inga en Federer nú, þegar hann
sjálfur var upp á sitt besta á
tíunda áratug síðustu aldar og
byrjun þessarar aldar.
„Federer þurfti ekki að mæta
mönnum eins og Pat Rafter,
Andre Agassi, Stefan Edberg,
Boris Becker og Jim Courier
þegar þeir voru á toppi ferilsins
eins og ég,“ sagði Sampras. - óþ
Tenniskappinn Pete Sampras:
Vann Federer í
sýningarleik
GOÐSÖGN Pete Sampras, sem hefur
unnið fjórtán stórmót á ferli sínum,
vann Roger Federer í sýningarleik í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Framtíðarplön íslenska
knattspyrnulandsliðsins skýrast
að stórum hluta í dag þegar dregið
verður í riðla í undankeppni HM
2010. Drátturinn fer fram í Durban
í Suður-Afríku en þar í landi fer
einmitt úrslitakeppnin fram eftir
tvö og hálft ár. Það er að sjálf-
sögðu mikil spenna í áhugamönn-
um um íslenska landsliðið og
einnig verður fróðlegt að sjá hvaða
stórþjóðir heimsækja Laugardals-
völlinn á næstu tveimur árum.
Íslenska landsliðið hefur aldrei
dregist í riðli með Ítalíu eða Eng-
landi en þar sem Englendingar
duttu niður í annan styrkleika-
flokk eftir tapið á móti Króötum
gæti farið svo að bæði heims-
meistarar Ítalíu og Englendingar
væru væntanlegir til landsins á
næstu misserum.
Fréttablaðið hefur raðað niður í
tvo riðla, annars vegar drauma-
riðilinn og hins vegar í matraðar-
riðilinn. Í draumariðlinum
myndum við fá fyrrnefndar þjóðir,
Ítali og Englendinga, í okkar riðli
en myndum síðan fá að glíma við
Norður-Íra, Litháa og Færeyinga,
allt þjóðir sem okkur hefur gengið
mjög vel með í undanförnum
undan keppnum. Ísland vann báða
leiki sína gegn Norður-Írlandi í
nýlokinni undankeppni EM 2008
og síðan alla fjóra leiki sína gegn
Litháen og Færeyjum þegar liðið
var með þeim í riðli í undankeppni
EM 2004.
Martraðarriðillinn er valinn út
frá erfiðleika, löngum ferðalögum
og óspennandi mótherjum. Þann
riðil myndu skipa Króatía, Tyrk-
land, Úkraína, Moldavía og Svart-
fjallaland en síðastnefnda landið
er að taka þátt í sinni fyrstu undan-
keppni og það er aðaláherslan
fyrir því að landslið Svartfjalla-
lands er í sjötta og síðasta styrk-
leikaflokki.
Ísland hefur oftast lent í riðli
með Þýskalandi og Rússlandi í
undankeppnum fyrri tíma; fimm
sinnum með hvorri þjóð. Ísland
var fjórum sinnum í riðli með
Austur-Þýskalandi og einu sinni
með sameiginlegu Þýskalandi.
Ísland var síðan þrisvar sinnum
með Sovétríkjunum í riðli og hefur
tvisvar verið með Rússlandi í riðli
eftir sundurliðun Sovétríkjanna.
Íslenska landsliðið hefur síðan
fjórum sinnum lent í riðli með
Hollendingum, Frökkum og Spán-
verjum en allar þessar fimm
þjóðir geta kallast góðkunningjar
íslenska landsliðsins.
Auk Ítala og Englendinga hefur
íslenska landsliðið hins vegar
aldrei verið í riðli með Portúgölum,
Finnum, Serbum, Slóvenum,
Bosníu mönnum og Eistlendingum
svo einhverjir séu nefndir.
53 Evrópuþjóðir taka þátt í
undan keppninni að þessu sinni og
þeim er skipt niður í níu riðla, átta
riðlar innihalda sex lið en fimm lið
verða í einum riðli. Efsta liðið í
hverjum riðli kemst í úrslita-
keppnina en þau átta lið sem ná
bestum árangri í öðru sæti riðl-
anna taka þátt í fjórum umspils-
viðureignum, þar sem leikið er
heima og að heiman, um laust sæti
á HM. Það verða því þrettán Evr-
ópuþjóðir sem spila á HM í Suður-
Afríku 2010.
Drátturinn hefst klukkan 16.00 í
dag og verður í beinni útsendingu
í Sjónvarpinu. Byrjað verður að
draga í riðla í Asíu, þá Norður- og
Mið-Ameríku, svo er komið að
Evrópu og loks er endað á Afríku.
Ekki er dregið í riðla í Suður-
Ameríku og Eyjaálfu þar sem
undan keppnin er þegar hafin.
ooj@frettabladid.is
Gætum lent með Ítalíu og Englandi
Ísland er í fimmta styrkleikaflokki af sex þegar dregið verður í undankeppni HM 2010 í Suður-Afríku í dag.
Fréttablaðið hefur fundið út bæði drauma- og martraðarriðlinn, sem og hvaða þjóðum við höfum ítrekað
lent með í riðli í undankeppnum HM og EM til þessa.
KOMA ÞEIR? Ef til vill fáum við að sjá þá Steven Gerrard, Wayne Rooney, Shaun
Wright-Phillips og Rio Ferdinand leika á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2010.
NORDICPHOTOS/GETTY
DRAUMARIÐILLINN:
Ítalía
England
Norður-Írland
Litháen
Ísland
Færeyjar
MARTRAÐARRIÐILLINN
Króatía
Tyrkland
Úkraína
Moldavía
Ísland
Svartfjallaland