Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 26
6 FERÐALÖG D omaine de Verchant er nafn- ið á vínekru í eigu frönsku Ver- chant-ættarinnar sem á sér mikilfenglega tvö þúsund ára gamla sögu. Þessi glæsilega villa og „terroir“ sem er rétt hjá Montpellier í Suður-Frakklandi hefur nú feng- ið mjög svo skemmtilega andlitslyftingu því nýir eig- endur hafa breytt henni í nýtískulegt hótel sem skart- ar fagurri hönnun. „Okkur langaði að gera eitthvað öðru- vísi í þessu dásamlega umhverfi,“ segja hjónin Chantal og Pierre Mestre sem opnuðu hótelið í lok september. „Hótelið er lítið og því getum við veitt afar persónulega þjónustu. Við völdum það sem okkur fannst fallegast í bæði alþjóðlegri og ítalskri hönnun til að skapa afslapp- að en nútímalegt andrúmsloft.“ Boðið er upp á níu her- bergi, tvær séríbúðir innan jarðareigninnar, eitt lítið hús og fjögur herbergi í húsnæði sem var áður notað fyrir verkamenn á vínekrunni, og öll eru með plasmaskjá, þráðlausu neti og míníbar. Enginn veitingastaður hefur verið opnaður sem stendur, en boðið er upp á morgun- verð og létta rétti í stofu sem snýr út að ilmandi jurta- garðinum. Í apríl verður opnuð heilsulind á jarðareign- inni, þar sem verður sundlaug, tyrkneskt bað, golfvöllur og tennisvöllur. Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað vínin sem eru framleidd á Verchant-vínekrunni en hún gefur af sér þrjú afbragðsgóð rauðvín, eitt rósavín og hvítvín sem var bruggað í fyrsta sinn fyrra. - amb NÚTÍMALEG HÖNNUN Á GAMALLI VÍNEKRU ... NÝJASTA ILMINN FRÁ PRADA sem nefnist Infusion d‘Iris og er dásamlegur blómailmur. Náðu þér í hann á undan Reykjavíkurdömun- um. Fæst í helstu erlendu stórverslunum og Sephora. Í ferðinni ætlum við að næla okkur í... ... SMÖRTUSTU FERÐAHANDBÓK Í HEIMI en hún er frá tískuhúsinu Louis Vuitton. Leiðarvísir að London og New York er kominn út fyrir 2008. Fæst aðeins í Louis Vuitton- búðum. www.louisvuitton.com ... GRÆJU FRAMTÍÐARINN- AR, iPod Touch frá Apple sem er iPod og lófatölva allt í senn. Myndir, tónlist, inter- net, hvað meira getur maður beðið um? Fæst meðal annars í Elko í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. ... LOMO FISHEYE myndavél sem er afbrigði af hinni sögufrægu rúss- nesku Lomo-vél. Fisheye-vélin brengl- ar viðfangsefni sín, sem ætti að gefa þér skemmtilegustu partímyndir í heimi! Fæst í ýmsum erlendum safnabúðum og á www. lomography.com NÝTT Franskri villu í Languedoc breytt í hótel þar sem þú getur dreypt á eðalvínum héraðsins BESTI STAÐURINN TIL AÐ GERA JÓLA- INNKAUPIN: Allar litlu sniðugu göturnar fyrir ofan Strikið og fyrir ofan D‘Angleterre hótelið. (Grønnegade/Kron- prinsessegade/Pilestr- æde/Ostargade/Pist- olstræde/ Adelgade) FALLEGASTA KAFFI- HÚSIÐ TIL AÐ FARA Á: Flottasta kaffihúsið í miðbænum er Café Victor og Bang og Jensen á Istedgade er góður „lókal“ bar, kaffi og internetstaður. BESTI MORGUNVERÐ- URINN: Laundromat á Østerbro. SMARTASTI BARINN: Boutique Lize á Isted- gade, ég fer aldrei niður í bæ á kvöldin og þeir gera toppklassa Mojito. FALLEGASTA JÓLA- SKRAUTIÐ ER Á... Magasin, Kongens Nytorv og í Tívólíinu. Á HVAÐA VEITINGA- STAÐ MYNDIR ÞÚ FÁ ÞÉR TRADITIONAL DANSKAN MAT? Sankt Anne í miðbænum og Sans Souci í Frederiks- berg, hann er af gamla skólanum og hefur verið opinn síðan 1902. NÝJASTA UPPGÖTVUN- IN ÞÍN Í KÖBEN: Brunch a Sult - dálítið dýr ( 200 DK) en þar er buffet með frábæru úrvali. Og svo getur maður dottið í Cinemateket í bíó eða skoðað kvikmyndabæk- ur, enda allt í sama húsi og danska kvikmynda- stofnunin (www.dfi.dk) BESTI STAÐURINN TIL AÐ FARA MEÐ BÖRNIN: Laundromat á Østerbro, fullt af leikföngum fyrir krakkana og góður leik- völlur rétt hjá, á Arhus- gade. Svo er dýragarð- urinn náttúrlega frábær strax á eftir. - amb ÞÓRIR SNÆR SIGURJÓNSSON, KVIKMYNDAFRAM- LEIÐANDI HJÁ ZIKZAK PRODUCTIONS ÞAÐ HEITASTA Í … HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR kaupmannahöfn HEIMAMAÐURINN [ FERÐAST Í HUGANUM ] Í fjársjóðsbúðinni Kisunni er ótrúlega gott úrval af hvers kyns ferðabókum sem ættu að veita öllum innblástur að frábærum ferðalögum. Allt um stórborgir, fjarlæg lönd, falleg hótel og hvar eigi að snæða. Kisan, Laugavegi HVAÐ? DOMAINE DE VERCHANT Castelnau le Lez HVERNIG? 00 33 4 67 07 26 00 / www.verchant.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.