Fréttablaðið - 25.11.2007, Side 96
24 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Tröllum, álfum og ýmsum
forynjum verða gerð skil í máli
og myndum í Ásmundarsafni
í dag kl. 14 en þá verður hinn
landskunni teiknari Halldór
Baldursson með leiðsögn um
sýningu sem kallast Þjóðsögur
– Íslenskar munnmælasögur.
Sýningin stendur yfir um þessar
mundir í píramídum Ásmundar-
safns. Hún hefur að geyma verk
íslenskra teiknara sem tókust á
við það verkefni að myndskreyta
ýmsar þjóðsögur sem varð-
veist hafa í munnlegri geymd.
Sögurnar eru valdar af Rósu
Þorsteinsdóttur úr hljóðritum í þjóðfræðasafni
Árnastofnunar. Sýningargestum býðst ýmist að
lesa sögurnar á staðnum eða að hlýða á upplest-
ur þeirra í gjaldfrjálsu símanúmeri. Þannig geta
gestir öðlast betri innsýn í myndaheiminn sem
birtist þeim á sýningunni og kæst
yfir túlkunum listamannanna á
sögupersónum sem standa þeim
skyndilega ljóslifandi fyrir sjónum.
Teiknararnir sem eiga verk á
sýningunni eru allir fyrir lengstu
þjóðþekktir fyrir myndskreyt-
ingar í íslenskum barnabókum.
Teiknararnir eru þau Anna Cynthia
Leplar, Áslaug Jónsdóttir, Brian
Pilkington, Freydís Kristjánsdóttir,
Gunnar Karlsson, Halla Sólveig
Þorgeirsdóttir, Halldór Baldurs-
son, Kristín Ragna Gunnarsdóttir,
Margrét E. Laxness, Ragnheiður
Gestsdóttir, Sigrún Eldjárn og
Þórarinn Böðvar Leifsson.
Aðgangur að sýningunni er 500 kr. en miðinn
gildir í þrjá daga á öll söfn Listasafns Reykjavíkur.
- vþ
Leiðsögn um þjóðsögur
Kl. 14
Harpa Þórsdóttir listfræðingur leiðir
safngesti um sýningu á verkum
listmálarans Kristjáns Davíðssonar í
dag kl. 14. Í leiðsögninni varpar
Harpa ljósi á þróunina sem átt hefur
sér stað í verkum Kristjáns út frá
listsögulegu samhengi.
> Ekki missa af …
listamannaspjalli Huldu Hákon
í Listasafni ASÍ, Freyjugötu
41, kl. 15 í dag. Hulda fjallar
um sýninguna Kvikar myndir,
en á henni má sjá myndlist
sem innblásin er af hafinu og
hafnarsvæðinu í Reykjavík.
Sýningin var sett upp í tilefni
af 90 ára afmæli Reykjavíkur-
hafnar. KOPARHURÐIN Mynd eftir
Þórarin Böðvar Leifsson.
UNGIR TÓNLISTARMENN Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins á
æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Háskólakórinn og Sinfón-
íuhljómsveit unga fólksins
flytja saman Messu í C-dúr
eftir Beethoven og Hersin-
fóníuna eftir Haydn á tvenn-
um tónleikum í Langholts-
kirkju. Tónleikarnir fara
fram í kvöld kl. 20 og verða
endurteknir á sama tíma á
þriðjudag.
Alls taka rúmlega hundrað ung-
menni þátt í flutningnum. Háskóla-
kórinn er skipaður sextíu nemend-
um úr Háskóla Íslands og í
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
leika fjörutíu nemendur úr tónlist-
arskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Einsöngvarar á tónleikunum verða
Rannveig Káradóttir sópran,
Sibylle Köll mezzósópran, Hlöð-
ver Sigurðsson tenór og Valdimar
Hilmarsson bassabaritón, en þau
eru öll um það bil að ljúka söng-
námi.
Gunnsteinn Ólafsson, stjórn-
andi tónleikanna, segist hafa verið
aðdáandi messu Beethovens allt
frá tólf ára aldri. „Ég tók við sem
stjórnandi Háskólakórsins nú í
haust. Ég var líka stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar unga fólksins
og þurfti að finna eitthvert verk-
efni fyrir hana.
Mér þótti því tilvalið að leiða
hópana tvo saman í flutningi þessa
verks sem ég hef lengi haft dálæti
á.“
Messa í C-dúr er meðal stærstu
verka Beethovens. Beethoven til-
einkaði sér tónverk klassísku
meistaranna í æsku og ruddi síðan
nýrri tónlist braut þegar hann
varð höfuðtónskáld rómantíska
tímabilsins. Hann víkkaði út hugs-
un manna á öllum sviðum tónsköp-
unar með því að taka þátt í þróun
nýrra hljóðfæra og auka hljóð-
færakost hljómsveita. Í Messu í C-
dúr fléttaði hann saman ein-
söngv urum og kór í eina samofna
heild svo úr varð eitt stórbrotn-
asta verk tónbókmenntanna.
„Þetta er ákaflega dramatískt
verk. Beethoven málar textann
með sterkum tónum svo úr verður
mögnuð tónlistarveisla. Þetta
verk er fjörutíu mínútna langt í
flutningi en á þessum tíma ferð-
ast það allan tilfinningaskalann
fram og til baka og hljóðfæraleik-
ararnir og söngvararnir þurfa að
geta gert þessum sveiflum skil í
flutningi sínum. Verkið gerir því
miklar kröfur til tónlistarmann-
anna,“ segir Gunnsteinn um tón-
smíð Beethovens.
Miðaverð á tónleikana er 1.500
kr. fyrir almenning og 1.000 kr.
fyrir námsmenn og eldri borgara.
Athygli skal þó vakin á því að
námsmönnum býðst að kaupa
miða á 500 kr. ef þeir senda tölvu-
póst þess efnis á kor@hi.is
vigdis@frettabladid.is
Unga fólkið, Beet-
hoven og Haydn
SNORRI SIGFÚS BIRGISSON Samdi
tónverk við ævintýrið Stúlkan í
turninum.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
heldur tónleika í Ketilhúsinu á
Akureyri í dag kl. 16 til þess að
kynna nýjan disk sinn.
Á disknum má heyra hljóm-
sveitina flytja tónverk eftir
Snorra Sigfús Birgisson við
ævintýrið Stúlkan í turninum
eftir Jónas Hallgrímsson. Í verk-
inu er sagan túlkuð í tónum með-
fram upplestri.
Upptaka á tónverkinu var gerð
í tónlistarhúsinu Laugarborg í
janúar árið 2006. Útgáfan er
mjög vönduð.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og hægt er að kaupa
geisladiskinn á staðnum. - vþ
Tónleikar og diskur
22. nóvember - uppselt
23. nóvember - uppselt
30. nóvember - uppselt
1. desember - uppselt
7. desember - uppselt
8. desember - uppselt
Regnboginn
Hverfisgötu 54
Sunnudagur 25. nóvember
Kl. 16:00
Frítt í bíó!
MOEBIUS
REDUX
Kvikmynd eftir Bart Simpson
Myndin fjallar um líf og störf teiknarans
Jean Giraud.
TO DUBLIN
WITH LOVE
Myndin fjallar um sterk menningarleg tengsl
Nýfundnalands og Labrador við Írland.
Kvikmynd eftir Barbara Doran