Fréttablaðið - 25.11.2007, Síða 106
34 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
Íbúfen®
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Höfuð, herðar…
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen er
notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID), með skerta
lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- og nýrnasjúkdóm ætti ekki að nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja ætti ekki að nota lyfið.
Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað
barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. meltingaróþægindum,
niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk. Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru
600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Ekki mælt með stærri skammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir
skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en
500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Júlí 2004.
WEST HAM
EVERTON
W W W. I C E L A N DA I R . I S
14.–16.
DESEMBER
Verð á mann í tvíbýli frá
52.800KR.
Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir
á alla heimaleiki liðsins í vetur. Fjölmargir leikir framundan,
s.s. á móti Man Utd, Fulham og Liverpool.
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
N1 deild-karla í handbolta:
Haukar-Akureyri 25-25
Mörk Hauka (skot): Kári Kristján Kristjánsson
5 (5), Arnar Jón Agnarsson 5 (10), Sigurbergur
Sveinsson 4 (6), Jón Karl Björnsson 4/2 (6/2),
Andri Stefan 3 (6), Freyr Brynjarsson 2 (5), Þrös-
tur Þráinsson 1 (1), Gunnar Berg Viktorsson 1 (4).
Varin skot: Magnús Sigmundsson 22 (45/2)
48%, Gísli Guðmundsson 1/1 (2/2) 50%
Hraðaupphlaup: 3 (Kári, Andri Stefan, Arnar Jón,
Jón Karl) Fiskuð víti: 2 (Kári, Gísli Jón)
Utan vallar: 2 mínútur
Mörk Akureyrar (skot): Andri Snær Stefánsson 4
(5), Goran Gusic 4/1 (7/1), Ásbjörn Friðriksson
4 (10), Jónatan Magnússon 3/2 (4/2), Nikolaj
Jankovic 3 (7), Björn Óli Guðmundsson 2 (4),
Einar Logi Friðjónsson 2 (9), Eiríkur Jónasson 1
(1), Rúnar Sigtryggsson 1 (4), Magnús Stefánsson
1 (5).
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 13 (35/2)
37%, Sveinbjörn Pétursson 0 (3) 0%
Hraðaupphlaup: 8 (Nikolaj 3, Andri Snær 2,
Einar Logi, Goran, Eiríkur)
Fiskuð víti: 4 (Magnús,
Jónatan, Goran, Ásbjörn)
Utan vallar: 6 mínútur
ÍBV-Afturelding 24-23
STAÐAN Í DEILDINNI:
Haukar 10 7 2 1 +46 16
HK 10 7 1 2 +31 15
Fram 10 6 1 3 +27 13
Stjarnan 9 6 1 2 +37 13
Valur 8 3 2 3 +9 8
Afturelding 9 2 2 5 -13 6
Akureyri 10 2 1 7 -20 5
ÍBV 10 0 0 10 -117 0
Meistaradeild Evrópu:
Gummersbach-Celje Lasko 27-28
Slóvneska liðið Celje hreppti því annað sæti í
F-riðlinum þar sem Íslandsmeistarar Vals léku
og fylgja Gummersbach í 16-liða úrslitin. Róbert
Gunnarsson lék ekki með þýska liðinu vegna
meiðsla.
STAÐAN:
Gummersbach 9 stig
Celje Lasko 7 stig
Veszprém 6 stig
Valur 2 stig
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson,
leikmaður Lottomatica Roma í
ítölsku deildinni í körfubolta,
hefur vakið athygli fyrir góðan
leik undanfarið og á dögunum
birtist viðtal við hann á heimasíðu
Alþjóða körfuboltasambandsins.
„Ég kann mjög vel við mig á Ítalíu
og ítalskur matur er í sérstöku
uppáhaldi hjá mér, en ég ætla mér
samt að búa á Íslandi þegar
körfuboltaferli mínum lýkur,“
sagði Jón Arnór í viðtalinu og hélt
áfram: „Mér hefur farið mikið
fram í körfubolta síðan ég kom til
Ítalíu en ég get enn bætt mig
mjög mikið,“ sagði Jón Arnór, sem
verður í eldlínunni þegar lið hans
mætir Tisettanta Cantú í ítölsku
deildinni í kvöld. - óþ
Jón Arnór Stefánsson:
Get enn bætt
mig mjög mikið
ATHYGLISVERÐUR Jón Arnór Stefánsson,
leikmaður Lotto matica Roma, hefur
vakið verðskuldaða athygli á þessari
leiktíð fyrir góða spilamennsku.
NORDICPHOTOS/GETTY
FORMÚLA 1 Enn eitt dómsmálið í
Formúlu 1 er nú í aðsigi þar sem
McLaren-liðið hefur gögn í
höndunum sem sýna fram á að
Renault-liðið hafi með iðnaðar-
njósnum komist yfir einkaskjöl
McLaren-liðsins sem höfðu að
geyma nákvæmar upplýsingar
um ýmislegt tengt undirbúningi
liðsins fyrir keppni í Formúlu 1.
McLaren-menn voru sektaðir
um 47,5 milljón pund og reknir
úr keppni bílasmiða á síðasta
keppnistímabili í Formúlu 1,
eftir að hafa verið fundnir sekir
um iðnaðarnjósnir hjá Ferrari-
liðinu, og nú virðist liðið vera að
lenda sjálft í þessu. BBC-
fréttastofan fékk að líta á
sönnunargögn McLaren-liðsins
og þar er að finna vitnisburð í
það minnsta átján starfsmanna
Renault sem viðurkenna að hafa
séð einkaskjöl McLaren-liðsins.
Málið fer fyrir dómstóla 6.
desember næstkomandi. - óþ
Formúla 1:
Annað hneyksli
nú komið í ljós
HANDBOLTI Akureyringar bitu
heldur betur frá sér á Ásvöllum í
gærkvöldi þegar þeir náðu góðu
25-25 jafntefli við topplið Hauka.
Akureyringar hefðu getað stolið
báðum stigunum undir lokin.
Þeir voru án hins hávaxna Magn-
úsar Stefánssonar næstum allan
leikin en hann var borinn út af
snemma leiks.
Slæm skotnýting Akureyrar
hefði alla jafna átt að leyfa
Haukum að ná góðri forystu í
fyrri hálfleik. Haukavörnin
varði ófá skot Akureyringanna
og Magnús Sigmundsson var í
fantaformi og hafði varið tólf
skot í fyrri hálfleik. Gestirnir
neituðu hins vegar að hverfa frá
og skoruðu mikilvægt mark á
lokasekúndu fyrri hálfleiks og
minnkuðu þar muninn í eitt
mark, 13-12.
Forystan var áfram Haukanna
í seinni hálfleik en eins og áður
voru Akureyringar aldrei langt
frá. Varnarleikur Hauka var til
fyrirmyndar og markvarslan
áfram góð hjá Magnúsi en þrátt
fyrir það náðu heimamenn aldrei
að nýta sér það í hraðaupphlaup-
um og fengu því aldrei tækifæri
til að keyra yfir Akureyringa.
Þeir náðu samt um miðbik
hálfleiksins, þriggja marka for-
ystu, 20-17. Eftir það nánast
slökknaði á sóknarleik þeirra og
það færðu Akureyringar sér í
nyt. Þeir unnu boltann hvað eftir
annað í vörninni og hrúguðu inn
mörkum úr hraðaupphlaupum. Á
þessum tímapunkti skoruðu
Akureyringar fjögur mörk í röð
og komust yfir í fyrsta skiptið í
leiknum, 20-21.
Þeir héldu frumkvæðinu eftir
það og leiddu, 24-25, þegar 30
sekúndur voru eftir og voru með
boltann. Þeim tókst þó ekki að
halda forskotinu heldur misstu
þeir boltann og Jón Karl Björns-
son skoraði úr afar hægu hraða-
upphlaupi og jafnaði leikinn, 25-
25, og þar við sat.
Á síðustu sekúndunni braust
Jónatan Magnússon, leikstjórn-
andi Akureyrar, í gegnum vörn
Hauka og skoraði það sem hann
vildi meina að ætti að vera sig-
urmark leiksins.
„Þetta er voðalega einfalt. Ég
fer þarna í gegn og skora. Hann
hefði getað dæmt víti eða mark
en dæmir aukakast í staðinn,
sem er út úr kortinu,“ sagði Jón-
atan, en leikmenn Akureyrar
hópuðust í kringum dómara
leiksins eftir leikinn og vönduðu
þeim ekki kveðjurnar. Jónatan
var passlega sáttur við stigið.
„Stig er meira en við höfum
verið að fá í undanförnum leikj-
um en í dag hefði ég viljað fá
bæði stigin,“ sagði Jónatan og
Rúnar Sigtryggsson, spilandi
þjálfari Akureyrar, var stuttorð-
ur þegar hann var spurður út í
atvikið sem átti sér stað í lok
leiks.
„Þetta er svona þegar topplið
mætir botnliði, meira má ég ekki
segja,“ sagði Rúnar ósáttur.
Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, var aftur á móti ekki
sáttur við aðeins eitt stig.
„Ég er engan veginn sáttur við
þetta stig í dag. Ég vildi þau
bæði,“ sagði Aron eftir leik.
„Eins og varnarleikur okkar
var góður og markvarsla er dap-
urt af okkar hálfu að fá ekki
fleiri hraðaupphlaup og ná að
keyra yfir þá,“ sagði Aron.
- tom
Óvænt jafntefli á Ásvöllum
Haukar og Akureyri gerðu jafntefli, 25-25, í N1-deild karla á Ásvöllum í gær.
Flestir höfðu búist við sigri toppliðs Hauka, en Akureyri var hins vegar nær því
að taka bæði stigin.
FASTUR FYRIR Rúnar Sigtryggsson, spilandi þjálfari Akureyrar, stendur hér vörnina
gegn leikmanni Hauka í mjög svo óvæntum jafnteflisleik á Ásvöllum í gær, sem
Akureyri var nálægt því búið að vinna. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR