Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 2
2 8. desember 2007 LAUGARDAGUR VERSLUN Tveimur tíu ára drengjum var gefið áfengi í verslun Blómavals í Skútuvogi á miðvikudagskvöld. Verið var að kynna drykkinn Breezer á konukvöldi sem haldið var í versluninni, og fengu drengirnir að dreypa á áfenginu ásamt öðrum gestum. Konukvöldin eru haldin reglulega í Blómavali í Skútuvogi, og eru þar kynntar ýmsar vörur eins og snyrtivörur, skreytingar og föt. Á meðal þeirra vara sem kynntar voru á miðvikudagskvöldið var nýr og sykurskertur Breezer, sem er áfengur drykkur með fjögurra prósenta styrkleika. Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðj- unnar sem á Blómaval, segist hafa frétt af atvikinu í gærmorgun og það hafi verið rætt innan fyrirtækisins í gær. Allir séu miður sín yfir þessum leiðu mistökum. „Við erum ekki að veita vín í versluninni, þetta var bara ein af mörgum vörum sem var verið að kynna á konukvöldinu. Heild- salinn var að kynna sinn drykk, og við komum eiginlega ekki að þessu máli að öðru leyti.“ Magnús segist ekki vita hvernig dreng- irnir komust í áfengið, en allt verði gert til að koma í veg fyrir að atvik sem þetta komi fyrir aftur. „Við lærum af þessum mistökum, og munum ekki kynna áfengi framar í versluninni.“ „Þegar við erum með kynningar á vörum er það eingöngu fyrir þá sem hafa náð aldri, en þarna hefur greini- lega orðið eitthvert slys,“ segir Sigurður Bjarkason, viðskiptastjóri Mekka Wines&Spirits sem flytja inn Breezer. „Ég veit ekki hvernig þetta hefur gerst en okkur þykir þetta mjög miður. Þetta átti aldrei að fara svona.“ Hann bætir við að engin vandamál hafi verið með vörukynningar á vegum fyrirtækis- ins hingað til. Ekki tókst að hafa uppi á foreldrum drengjanna tveggja. salvar@frettabladid.is Börnum veitt áfengi í verslun Blómavals Tíu ára drengir fengu Breezer að drekka á kynningu í Blómavali á miðvikudag. „Erum miður okkar yfir mistökunum,“ segir markaðsstjóri Húsasmiðjunnar. Talsmaður heildsalans segist ekki vita hvernig drengirnir komust í áfengið. BLÓMAVAL Konukvöld eru haldin reglulega í verslun- inni, þar sem ýmsar vörur eru kynntar gestum og gang- andi. Meðal þess sem kynnt var síðasta miðvikudag var nýr sykurskertur Breezer. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson loksins fáanleg á ný. Spennandi saga með gullfallegum myndum fyrir ævintýraleg börn. Skilaboðaskjóðan er líka leikrit og er sýnd í Þjóðleikhúsinu! Uppselt til jóla, ath. aukasýning 23.11 D Y N A M O R E Y K JA V ÍK ALÞJÓÐAMÁL „Bandarísk stjórnvöld hafa ekki brotið alþjóðalög,“ segir Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, um það hvort meintir ólöglegir fangaflutn- ingar bandarísku leyniþjónustunn- ar CIA hafi farið um íslenska flug- velli. „Það hefur nú þegar verið rannsakað hvort fangar hafi verið fluttir með ólöglegum hætti um íslenska flugvelli og engar sannan- ir hafa fundist fyrir því. Enda hefur það ekki verið gert.“ Í skýrslu starfsfólks Evrópu- þingsins frá því í sumar, sem stýrt var af svissneska þingmanninum Dick Marty, kemur fram að leyni- leg starfsemi bandarískra stjórn- valda kunni að hafa farið gróflega gegn alþjóðalögum er varðar rétt- láta meðferð á föngum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð- herra skipaði í kjölfarið starfshóp sem aflaði upplýsinga um ferðir flugvéla CIA um íslenska lofthelgi. Í úttekt í Fréttablaðinu í dag kemur fram að lendingar flugvéla á Keflavíkurflugvelli á vegum CIA voru eftirlitslausar innan svæðis á vegum varnarliðsins árum saman. Meðal annars voru það flug frá Kaíró í Egyptalandi og Búkarest í Rúmeníu en sérstaklega er minnst á þessa tvo staði í skýrslu Evrópu- þingsins sem mögulegan vettvang leynilegra og ólöglegra aðgerða CIA í „stríðinu gegn hryðkjuverkum“. Carol van Voorst harðneitar ásök- unum um að bandarísk stjórnvöld hafi staðið ólöglega að handtökum og flutningi á föngum og notað til þess flugvelli víða um Evrópu, eins og fram kemur í skýrslu Evrópu- þingsins. „Eins og utanríkisráð- herrann Condoleezza Rice hefur ítrekað sagt; bandarísk stjórnvöld flytja ekki, og hafa ekki flutt, fanga frá einu landi til annars til yfir- heyrslna þar sem ólöglegum aðferð- um hefur verið beitt. Markmiðið hefur verið að ná hryðjuverka- mönnum af götunum og afla eins mikilla upplýsinga eins og hægt er um þá sem enn stafar hætta af.“ - mh / sjá síðu 42 Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi tjáir sig um ásakanir um fangaflug: Neitar ásökunum um lögbrot CAROL VAN VOORST Sendiherrann segir bandarísk stjórnvöld ekki hafa staðið ólöglega að flutningi á föngum. UMHVERFISMÁL Umhverfisráð- herra mun geta skorið úr deilum, líkum þeim sem nú eru uppi vegna Bitruvirkjunar, verði frumvarp hennar um breytingar á skipulagslögum samþykkt. Þórunn Sveinbjarnardóttir ráðherra segir þetta mikilvægt mál. Frumvarpið fjallar meðal annars um að gerð verði bindandi landskipulagsáætlun, sem taki mið af almannahagsmunum. Þórunn tekur ekki undir að ríkið sé að heimta allt skipulags- vald úr höndum sveitarfélaganna. Landskipulag verði gert í náinni samvinnu við alla hlutaðeigandi. - kóþ / sjá síðu 58 Frumvarp umhverfisráðherra: Getur skorið úr deilumálum DÓMSMÁL Tomas Arlauskas, betur þekktur undir eftirnafninu Malakauskas, hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi. Hann var sakfelldur fyrir brot á endurkomubanni hingað til lands, svo og fíkniefna- lögum. Malakauskas kom hingað í byrj- un september og var handtekinn 20. nóvember með 26 grömm af amfetamíni. Í skýrslu sinni fyrir dómi kvaðst Malakauskas hafa tekið upp eftir- nafn eiginkonu sinnar, Arlauskas, og fengið skilríki útgefin með því nafni í Litháen. Eiginkona Mala- kauskas sagði að áður hefði hann dvalið á Íslandi frá janúar 2007 og fram í ágúst. - jss TOMAS MALAKAUSKAS Héraðsdómur Reykjaness: Dæmdur í 16 mánaða fangelsi ÚTIVIST „Við erum bara bjartsýn og vonum að veðurguðirnir standi með okkur,“ segir Magnús Árna- son, forstöðumaður skíðasvæðis- ins í Bláfjöllum, en stefnt er að því að opna svæðið í dag. Ef veður leyfir verða tvær lyftur opnar frá klukkan 13 til 18 um helgina og verður frítt í lyfturnar. Skíðasvæði Akureyringa í Hlíð- arfjalli var opnað almenningi á fimmtudag og þar á bæ búast menn við góðri skíðahelgi. Sömu sögu er að segja frá Dalvík en skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli var opnað á miðvikudag og þar verður frítt í lyftur um helgina. Skíðasvæðið í Tindastóli við Sauðárkrók hefur einnig verið opnað og tekin var í notkun ný skíðalyfta þar í gær. - þo Skíðasvæði opin víða: Gott skíðafæri víða um land BEÐIÐ EFTIR LYFTUNNI Fjölmargir lögðu leið sína í Hlíðarfjall í gær enda nægur snjór. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL LÖGREGLUMÁL Fíkniefni fundust falin undir kodda í rúmi í íbúð í Hlíðahverfi síðdegis í fyrradag. Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gerði húsleit á staðnum og fann þá bæði hass og amfetamín að því er talið er. Húsleitin var gerð að undangengn- um úrskurði. Skömmu áður var karlmaður á þrítugsaldri færður á svæðisstöðina í Hafnarfirði. Í bíl hans fundust ætluð fíkniefni. - jss Húsleit í Hlíðahverfi: Faldi fíkniefnin undir kodda NEYTENDUR Búast má við mikilli ös í verslunum um helgina. „Undanfarna daga hafa fleiri heimsótt Kringluna en á sama tíma í fyrra. Ég á von á að helgin verði enn betri en sú síðasta enda komið nýtt kortatímabil,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar. Henning Freyr Henningsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, tekur í sama streng og segir að jólaverslunin fari vel af stað. Þar hafa verið gerðar umtals- verðar breytingar í bílastæðamál- um til að mæta jólaösinni auk þess sem framkvæmdum við breikkun Reykjanesbrautar hefur verið frestað fram yfir áramót til að koma í veg fyrir umferðar- öngþveiti. - þo Jólaösin hafin að fullu: Helgin stór fyr- ir kaupmenn Vífill, ert þetta þú? „Nei, þetta er Svanberg...“ Vífill Atlason kríaði út símafund með Bandaríkjaforseta með því að þykjast vera Ólafur Ragnar Grímsson. Hann vilti síðan á sér heimildir aftur þegar hann sendi vin sinn í viðtal í Íslandi í dag. TRÚ Biskup Íslands, Karl Sigur- björnsson, dregur ekki úr ummæl- um sínum í svarbréfi til Siðmenntar, heldur segist ætla að leyfa sér að nota orðið „hatramm- ur“ um málflutning félagsins. Hann hafði verið beðinn um að draga þau ummæli sín til baka að félagið væri „hatrömm samtök“. Biskup segir félagið hafa geng- ið gegn kirkju og kristni og vilji „útiloka hinn trúarlega þátt og kærar hefðir“ frá grunnskólum landsins. Bjarni Jónsson, varaformaður Siðmenntar, harmar að biskup haldi sig við orðavalið. Undarlegt sé að hann telji enn að Siðmennt sé á móti fræðslu um kristna trú, eftir margar greinar og fréttatil- kynningar Siðmenntar. „Við segjum að kennslan eigi ekki að einskorðast við kristin- fræði og með því heldur biskup að við séum á móti kristinfræði. Hann virðist ekki vita hvað orðið „einskorðast“ þýðir,“ segir Bjarni. Að auki segi biskup Siðmennt amast við ýmsum atriðum, eins og að teikna trúarlegar myndir í kennslustundum. „Ef hann hefði lesið erindi okkar vissi hann að þetta eru skil- greiningar mannréttindadóm- stóla, en ekki okkar,“ segir Bjarni. - kóþ Biskup Íslands dregur ekkert úr ummælum sínum í svari til Siðmenntar: Vill nota orðið „hatrammur“ SÉRA KARL SIGURBJÖRNSSON Biskup segir Siðmennt ganga gegn kristinni trú. SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.