Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 28
28 8. desember 2007 LAUGARDAGUR KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar FÖSTUDAGUR, 30. NÓVEMBER. Menningarmegavött Hún heitir Sigga Dóra, konan sem í sam- vinnu við fleira fólk skipulegg- ur upplestr- arferð rit- höfunda um Norðausturland. Við skautum milli staða á stór- um Landcruiser- jeppa sem er eins og yfirbyggður jóla- sveinasleði með hreindýr- in samanþjöppuð undir vélarhlífinni. Ég er svo bílhræddur að ég bið um að fá að keyra. Félagar mínir Kristín Svava, Jón Kalman, Pétur Blöndal og Vigdís Grímsdóttir láta það eftir mér. Fyrsti upplesturinn var á Skriðuklaustri á miðvikudags- kvöld, 28. nóv. Þar eru myndarleg húsakynni og mæting var góð. Halldóra og Skúli hafa skipulagt þetta út í hörgul. Skemmtileg stemming. Gisting á Egilsstöðum, flott bændagisting og kálfur í fjósi hinum megin við hlaðið baular vinalega og minnir mig á nátt- hrafna í miðbænum. Þaðan til Vopnafjarðar, upp- lestur, fimmtudagskvöld, 29. nóv. Þar fæ ég loks að hitta Siggu Dóru. Hún er það orkuver sem framleið- ir menningarmegavött sem ná að lýsa langt út fyrir landsfjórðung- inn. Gistum á Hótel Tanga. Leggjum af stað til Þórshafnar næsta morgun. Þar á ég frænd- garð. Guðni Hauksson sparisjóðs- stjóri á Þórshöfn og Sigurður skip- stjóri taka á móti okkur þegar við förum að nálgast byggðina. Guðni er dóttur- sonur Guðnýjar Oddsdóttur móðursystur minnar. Að sjálfsögðu er okkur vísað til gistingar að Ytra Lóni hjá Sverri Möller og Mirjam konu hans en Sverrir er sonarsonur Rannveigar Oddsdóttur móður- systur minnar. Það er 30. nóvember og degin- um lýkur með afmælisveislu því að ég er fæddur á Andrésarmessu. Þetta var því miður ekki nein orgía því að veitingarnar voru aðeins tvær rauðvínsflöskur og fjórir bollar af tyrknesku kaffi sem ég sauð handa listhafendum. LAUGARDAGUR, 1. DESEMBER. Um nánasarhátt Löng ferð til Seyðisfjarðar. Við fikrum okkur lúshægt yfir Fjarð- arheiði. Hótel Alda heitir gististaðurinn. Fallega uppgert gamalt hús. Við lásum upp í Skaftfelli sem er líka fallega uppgert gamalt hús. Þetta var síðasta upplestrarkvöldið í ferðinni. Ljóðskáldið Kristín Svava slær alls staðar í gegn þar sem hún kemur. Þetta sakleysislega yfir- bragð! Þessi nakti sannleikur! Flug heim áætlað kl. 10.40, mæting 10.10 á Egilsstöðum. Þarf að skrifa bakþanka fyrir Fréttablaðið áður en ég fer að sofa. Þetta er orðinn langur dagur. Hugurinn er svo bundinn við þetta ferða- lag að ég get ekki slitið mig frá því að hugsa um listamenn á flakki. Skrifa bakþanka um kjör lista- manna; förumanna nútímans. Ég veit ekki hvort skýr- ingin á durgs- legum nánasar- hætti Alþingis við listamenn er sú að hvorki menntamálaráðherrann okkar né óbreyttir þing- menn hafa sálargáfur til að skilja nauðsyn þess að tryggja að í þjóðfélaginu sé til fjölbreyttur hópur listamanna sem er fjár- hagslega sjálfstæður og getur sinnt list sinni óháð markaðslögmálum og öðrum öflum en eigin sann- færingu – eins og dómar- ar, alþingismenn og fleiri stéttir sem þurfa að hafa efni á að hugsa sjálf- stætt. SUNNUDAGUR, 2. DESEMBER. Pútín seðlabankastjóri? Vöknuðum í rauða bítið og fengum staðgóðan morgunverð á Hótel Öldu áður en við lögðum á heiðina. Flugið var á áætlun eins og allt annað í þessu ferðalagi. Reyndar hefði mér ekki leiðst að verða veðurtepptur einhvers staðar með Kristínu Svövu, Jóni Kalman, Pétri Blöndal og Vigdísi Gríms- dóttur. Kom heim um hádegisbil haf- andi kvatt mitt góða samferðafólk með þakklæti fyrir samveruna. Heimsfréttirnar hafa farið framhjá mér undanfarna daga en nú er komið í ljós að Pútín Rússa- forseti hefur unnið yfirburðasigur í þingkosningunum þar í landi. Forsetakosningar verða svo í Rússlandi í mars á næsta ári og þá er Pútín ekki kjörgengur þar sem hann hefur setið í emb- ættinu í tvö kjörtímabil. Hann hefur hins vegar sagt, að fengi Sameinað Rúss- land góðan stuðning muni það veita honum „siðferðislegan styrk“ til að halda um ein- hverja stjórnartauma áfram. Ég spái því að Rússar sem eru óvanir lýðræði geri Pútín að seðlabankastjóra þegar honum er ekki lengur sætt sem forseta. MÁNUDAGUR, 3. DESEMBER. Í stað vinnufélaga Sem betur fer virðist bók- menntaáhugi ekki vera minni á höfuðborgar- svæðinu en á lands- byggðinni. Það er gaman að lesa upp. Jafnvel þrisvar á dag. Rithöfundur fer á mis við að eiga vinnufélaga. Lesendur og áheyrendur koma í þeirra stað. ÞRIÐJUDAGUR, 4. DESEMBER. Tossalisti og jóla- meyjar „Staða Íslands miðað við aðrar þjóðir hefur versnað í öllum námsgreinum sem svonefnd PISA-könnun nær til, mest í lesskiln- ingi en minnst í stærð- fræði. Niðurstöður könn- unarinnar voru kynntar á fundi í menntamála- ráðuneytinu í morgun.“ Það er fremur dapur- legt að vera kominn á tossalista. Sami stjórnmálaflokk- urinn hefur farið með menntamálin í landinu í sextán ár. Það ber vott um mikið agaleysi að hann skuli ekki ennþá hafa verið settur í skammar- krókinn. Það er margt sundurlyndið í mannheimum. Nú er hnakkrif- ist um „femín- isma“. Huldu- fólk virðist vera þrosk- aðra en mann- fólkið því að nú hefur jafnréttisráð í álfheimum ákveðið að næstu þúsund ár verði jólameyj- um falið að taka að sér það fyrir- kvíðanlega verkefni jólasveina að heimsækja mannheima einu sinni á ári á tímabilinu 12. desember til 6. janúar. Jólameyjar eru systur jóla- sveina og er Grýla móðir þeirra prófessor í uppeldisfræði og faðir þeirra, dr. Leppalúði, er með MBA- gráðu og starfar hjá greiningar- deild í banka. Tólfta desember næstkomandi er fyrsta jólamærin Súlutrutt væntanleg í stað Stekkjarstaurs; þrettánda desember kemur svo Gilitrutt í stað Giljagaurs; og þann fjórtánda kemur Ögn í stað Stúfs og þannig hver af annarri til jóla. MIÐVIKUDAGUR, 5. DESEMBER. Duggholufólkið Í dag var okkur frú Sólveigu boðið að mæta með barnabörnin á frum- sýningu á alveg dásamlegri bíó- mynd eftir Ara Kristinsson. Myndin heitir því dularfulla nafni DUGGHOLUFÓLKIÐ og fjallar um börn í lífsháska, drauga og óargadýr og yfirnáttúrulega atburði á tölvuöld. Andri og litla Sól sátu eins og bergnumin allan tímann nema hvað sú litla ákvað að tylla sér í fangið á ömmu sinni rétt á meðan ísbjörninn var hvað mest í essinu sínu. Ekkert okkar kippti sér upp við beinafundinn, nema hvað okkur brá augnablik þegar við sáum hauskúpuna. Við Andri vorum sammála um að við hefðum báðir verið pínu- smeykir þegar draugurinn byrjaði að tala. Það var svo óhugnanlegt hvað hann var blestur á máli. Litla Sól kvaðst hins vegar aldrei hafa orðið hrædd og ég held hún sé að segja satt því að hún er að mörgu leyti ákaf- lega lík ömmu sinni. Eins og önnur góð ævin- týri endaði þetta allt saman vel að lokum og við frú Sól- veig skemmtum okkur örugglega jafn vel og börnin, sem er eini rétti mælikvarðinn á hvort barnaefni sé börnum samboðið. FIMMTUDAGUR, 6. DESEMBER. Jólastemm- ing Hundslappa- drífa úti og jólastemming í húsinu. Smá- fólkið er farið að hlakka til jólanna. Ég líka. Þrettán jólameyjar Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá frændgarði á Langanesi, menningarorkuveri Austurlands, næsta seðlabankastjóra Rúss- lands, dásamlegri kvikmynd, femínisma í álfheimum og alþjóðlegum tossalista.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.