Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 47

Fréttablaðið - 08.12.2007, Side 47
LAUGARDAGUR 8. desember 2007 3 Saga Harley Davidson-risans er löng og farsæl en hófst með gerð mótors í litlum garðskúr árið 1901. Stofnun Harley Davidson-fyrir- tækisins er rakið aftur til ársins 1903 þegar fyrsta mótorhjól þess leit dagsins ljós, en segja má að hún nái þó aftur til 1901 þegar æskuvinirnir William S. Harley og Arthur Davidson hönnuðu mótor í kasthjól. Árið 1905 hófu þeir síðan eiginlega framleiðslu á mótorhjól- um, sem var fyrst í takmörkuðu upplagi og fór fram í litlum skúr í bakgarði Davidson-fjölskyldunnar. Þessi skúr var síðar fluttur og komið fyrir í fyrstu eiginlegu verk- smiðju Harley Davidson á Juneau Avenue í Milwaukee, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins standa enn. Þá hafði framleiðslan aukist til muna og var fyrirtækið farið að sjá lögreglunni fyrir mótorhjólum og síðar bandaríska hernum þegar fyrri heimsstyrjöldin skall á. Fyr- irtækið var þá orðið stærsti mótor- hjólaframleiðandi heims, og fram- leiddi 28.189 hjól á ári, en í kreppunni sem fylgdi hrundi salan úr 21.000 árið 1929 niður í færri en 4.000 hjól árið 1933. Harley Davidson beitti ýmsum brögðum til að halda velli, meðal annars með framleiðslu á þriggja hjóla þjónustubílum, og var aðeins annar af tveimur mótorhjólafram- leiðendum sem lifði kreppuna af. Fyrirtækið rétti aftur úr kútnum í seinni heimsstyrjöldinni vegna aukinnar eftirspurnar hersins eftir mótorhjólum og fór þá aftur að framleiða hjól fyrir almenning í stórum stíl. Á sjötta áratugnum fékk fyrir- tækið síðan annan stóran skell. Forráðamennirnir voru sakaðir um fjársvik og ímynd fyrirtækisins beið hnekki með tilkomu Holly- wood-kvikmynda um mótorhjóla- útlaga. Næstu þrjá áratugi var ímyndin samofin Vítisenglum og ræflum sem höfðu orð á sér fyrir að berja gamlar konur með keðj- um, eins og einhver orðaði það. Vegna þessa og samkeppni frá japönskum framleiðendum mótor- hjóla, sem þóttu taka þeim banda- rísku fram í flestu, var framtíðin ekki björt fyrir Harley Davidson allt þar til forsvarsmennirnir hysj- uðu upp um sig buxurnar snemma á níunda áratugnum og hófu fram- leiðslu á vandaðri hjólum í retró- stíl, sem svipaði í útliti til fyrstu mótorhjóla fyrirtækisins. Síðan hefur leiðin legið upp á við hjá Harley Davidson, og náði sölu- legum hátindi á seinni hluta tíunda áratugarins og á upphafsárum 21. aldarinnar. Þrátt fyrir nokkur bakslög held- ur fyrirtækið enn velli og verður aðdáendahópurinn sífellt fjöl- skrúðugri. roald@frettabladid.is Byrjaði allt í litlum skúr Saga Harley Davidson fyrirtækisins er rakin alla leið aftur til ársins 1901. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Sérverslun vélhjólamannsins ::: Laugavegi 168 Sími 511 2121 Hjá okkur færðu jólagjöf vélhjólamannsins. Hágæða vörur, framleiddar af evrópskum og bandarískum hand- verksmönnum. Mikið úrval mótorhjóla - ný sending á leið til landsins. Ótrúlegt verð á frábærum hjólunum! Þú vilt það besta! Af hverju gera málamiðlanir? DAVIDA Handsmíðaðir hjálmar frá Englandi LEON JEANTET Handsmíðuð hlífðargleraugu frá Frakklandi WESCO Handsaumuð mótorhjóla- göngu- og vinnustígvél LOOKWELL Hollenskur mótorhjólafatnaður úr leðri og vefnaði Hjá Mótormax fá allir áhugamenn í mótorsportinu draumagjöfina sína. Allt frá skóm upp í hjálm og allt þar á milli. Mundu að gjafabréf Mótormax er tilvalin jólagjöf. Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 www.motormax.is Óskagjöfin í mótorsportinu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.