Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 50
[ ]Piparkökuhús er gaman að gera saman fyrir jólin og getur það orðið hin ánægjulegasta samverustund fyrir fjölskylduna að baka og skreyta piparkökuhús. Hjá mörgum er þetta orðið að hefð fyrir jólin.
Á hinu stóra heimili Grýlu og
Leppalúða búa þrettán jóla-
sveinar sem hafa verið þekktir
hér á landi um aldir. Yngsti
og jafnframt ógnvænlegasti
meðlimur þessarar fjölskyldu
er jólakötturinn sem varð fyrst
þekktur á nítjándu öld.
Jólakötturinn er alls ekkert venju-
legt gæludýr því hann hefur þann
óskemmtilega ávana að éta eða
taka þá sem fá enga nýja flík til að
klæðast á aðfangadag.
Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá
árinu 1864 segir um jólaköttinn:
„Þó gátu menn ekki notið jólagleð-
innar með öllu áhyggjulausir því
auk jólasveinanna var það trú að
óvættur væri á ferð sem kallaður
væri jólaköttur. Hann gerði reynd-
ar engum þeim mein sem eignuð-
ust einhverja nýja flík að fara í á
aðfangadagskvöldið, en hinir sem
ekkert nýtt fat fengu „fóru allir í
jólaköttinn“ svo hann tók þá eða að
minnsta kosti jólarefinn þeirra og
þótti þá góðu fyrir goldið ef köttur-
inn gerði sig ánægðan með hann.“
Það hefur lengi eitthvað verið á
reiki hvort ólukkans kötturinn æti
þá sem ekki fengu nýja flík eða léti
sér nægja jólarefinn, sem er það
sem hverjum heimilismanni var
skammtað af mat til jólanna á
aðfangadagskvöldið.
Þrátt fyrir að ekki sé lengur trúað
á jólaköttinn þá er enn í dag gjarn-
an talað um að fólk fari í jólaköttinn
ef það fær ekki nýja flík og því er
það vani að allir fái að minnsta kosti
eina nýja flík fyrir jólin. -sig
Kötturinn fer á kreik
Jólakötturinn er skelfilegt gæludýr þeirra Grýlu og Leppalúða sem leggur það í vana
sinn að éta þá sem ekki fá ný föt fyrir jólin.
Opið hús verður í verkstæðinu
Gler í Bergvík á Kjalarnesi nú
um helgina frá 10 til 15.
„Hér eru glervörur til sölu á
afslætti, bæði útlitsgallaðar og
aðrar. Það er kaffi á könnunni og
piparkökur með og svo verður lif-
andi tónlist á staðnum. Menn úr
South River Band, meðal annars
Kormákur Bragason, eru með
grúppu sem þeir kalla Gæðablóð
og svo er einn síungur öldungur
með heimasmíðaða munnhörpu
sem spilar ásamt öðrum,“ segir
Sigrún Einarsdóttir í Gler í Berg-
vík. Sigrún hefur haft opið eina
helgi fyrir jólin öll þau ár sem hún
hefur rekið glerblástursverkstæð-
ið sitt á Kjalarnesinu sem nú eru
orðin yfir tuttugu. Gler í Bergvík
er staðsett milli Klébergsskóla og
Grundarhverfis. -gun
Jólastuð í
Bergvík
Ólgurnar eru meðal listaverka Sigrúnar.
Þær eru til í mörgum litum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Prinsessukökur
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum
fyrir viðkiptavini okkar.
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardag 10-18 sunnudag 11-17Opið
Allt það fína frá Kína
ATH! Þú greiðir aðeins fyrir dýrari hlutinn
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
2 fyrir 1
Tilboð á kínversku
m
listmunum til jóla
G
O
T
T
F
O
L
K
Auglýsingasími
– Mest lesið