Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 86
70 8. desember 2007 LAUGARDAGUR ■ Á uppleið Axlapúðar. Ekki bara grafnir í gleymsku níunda áratugarins heldur rokkaðir og nútímalegir. Gæludýr. Svo notalegt að eiga eitthvað til að strjúka yfir vetrar- tímann. Loðnir karlmenn duga líka alveg. Skreyttar skrifstofur. Jólatré í hverju horni og arineld varpað á vegginn. Hó, hó, hó, jólin eru að koma! Manngæska. Poppaðu upp hátíð- arnar með því að bjóða róna í mat. Orðtækið „enginn veit hvar hann dansar næstu jól“ var ekki fundið upp að ástæðulausu. Guðni Ágústsson. Bókin rokselst og hann kemur út sem maðurinn sem missteig sig aldrei. Hann er líka svo jólalegur eitthvað. ■ Á niðurleið Predikun um ekkert stress. Ekkert meira stressandi en eilífur boðskapur um að maður eigi að slappa af í desember. Kærleikur og áfengi. Ekki blanda þessum tveimur hlutum saman í desember. Ekki segja náungan- um að þú elskir hann á fjórða jólaglöggsglasi. Heroes. Þessi þáttur var frá- bær í vor en er að drepa mann úr leiðindum núna þegar hann er bara endurtekn- ing á síðustu seríu. Tölvusímar. Drápu endan lega öll samskipti. Nú er fólk ekki bara að svara SMS-um endalaust heldur tékka á hverjum ruslpósti sem dettur inn. Flottræfilsháttur. Meira að segja ríka fólkið er farið að finna fyrir aðþrengingu í fjármálum. MÆLISTIKAN Botnaðu: Ef ég væri áskrifandi að einu tímariti þá væri það... Living – Martha Stewart. Er nýbúin að uppgötva þvílíkur snillingur þessi kona er. Vogue, GQ og W fæ ég í vinnunni í hverjum mánuði. Hvaða kæki ertu með? Ég naga neglurnar, alveg ferlegt. Svo er ég mikið með hendurnar í andlitinu almennt, sem er líka voðalega hallærislegt. Því eldri sem ég verð því … skyn- samari, fegurri og reyndari verð ég. Hvaða frasa ofnotar þú? Ó mæ god … Eftirlætisbragð: Súkkulaði. Hvaða hlutir á heimili þínu eru í rauðum lit? Tveir stólar í stofunni, Tivoli-ferðaútvarpið og síðan slatti í fataskápnum. Ef þú ættir að velja þér haus ein- hverrar frægrar manneskju til að setja á búkinn þinn – hvaða haus yrði fyrir valinu? Ef ég veldi út frá fegurð yrði það franska leikkonan Audrey Tatou. Hvernig heilsarðu? Fer algjörlega efitr aðstæðum og viðmælanda. Nánast alltaf sæll í tölvupósti en allur gangur á því í töluðu máli. Hvaða sjö hluti leggurðu til í góða sumarbústaðaferð? Lambalæri, rauðvín, sundföt, Trivial Pursuit, nuddolíu, ullarsokka og iPodinn. Hverju tekurðu fyrst eftir í fari fólks? Útgeisluninni. Þetta óáþreifan lega ... Ef þú yrðir að eyða 20.000 krónum næsta hálftímann – hvernig mynd- irðu eyða peningnum? Þrátt fyrir að ég væri alveg til í nýja skó myndi ég skutla peningunum inn á bankareikninga hjá góðgerða- stofnunum fyrir jólin. Búum til betri heim … Hundur eða köttur? Hundur, þeir eru hressandi og draga mann út að labba sem er ekkert nema frá- bært. Hvernig slappar þú af? Heima hjá mér, síðla kvölds með góða tónlist á. Tónlistin er yfirleitt lykilatriði. Hvaða lag geturðu hlustað á aftur og aftur? Samkvæmt tölfræðinni í iTunes í tölvunni hlusta ég mest á Time After Time með Cindy Laup- er. En ef ég hunsa tölfræðina er það Söknuður með Vilhjálmi Vil- hjálmssyni. Ég er frekar mikil lumma þegar kemur að tónlist. Hún verður helst að vera nokkurra ára gömul svo ég hlusti á hana. Ef þú uppgötvaðir nýja plánetu í sólkerfi okkar – hvað myndirðu nefna hana? Ég myndi leyfa Plútó að koma aftur. Aumingja Plútó veit ekkert hver staða sín í sól- kerfinu er. Hver er frægasti ættinginn þinn? Get ekki gert upp á milli þeirra: Páll Óskar, Diddú og Mugison. Óskaplega stolt af þeim öllum. Þú færð þér karakter úr kvik- mynd til að búa með – hvaða per- sóna yrði það og af hverju yrði hún fyrir valinu? Mary Poppins. Það gefur augaleið, mig vantar barnapíu sem getur auk þess tekið til með einni handa- hreyfingu. Hvað heldur fyrir þér vöku á nóttunni? Partí í næsta húsi og einkaþotur að lenda á Reykjavíkur- flugvelli á öllum mögulegum og ómögulegum tímum. Hvaða ljósmynd eða ljósmyndari hefur haft sterkustu áhrifin á þig? Ari Magg og Annie Leibovitz. Ari því með honum vinn ég dag hvern, þekki hann vel og persónulega og hef lært heilan helling af honum. Hann er snillingur. Annie fyrir bók- ina sína A Photographer´s Life. Mjög áhrifaríkar myndir, alveg þannig að maður grætur. Hvað var það besta sem foreldar þínir gerðu fyrir þig? Að treysta mér og láta mig læra sjálfa af mis- tökunum. Það er eina leiðin til að læra. Hvar myndir þú helst vilja búa ef þú gætir valið úr öllum heiminum? Fyrst og fremst á Íslandi en ég væri til í að eiga íbúðir eða hús á völdum stöðum í heiminum til að geta flúið íslenska rigningar- eða kuldamánuði. New York, París og Bahamaeyjar hljóma mjög vel í því samhengi. Hvaða bók getur þú lesið aftur og aftur og aftur? Ég les Nýja húsið hans Barbapabba næstum á hverju kvöldi. Hver er magnaðasta fyrirsæta heims að þínu mati? Kate Moss kemst upp með allan fjandann en heldur alltaf sínu striki, og það er út af fyrir sig alveg magnað. Hvað er það erfiðasta við starfið þitt? Þegar maður finnur ekki réttu módelin fyrir tiltekin verkefni. Hljómar kannski léttvægt en getur verið alveg ferlegt … Mesta tískufyrirmyndin þín: Af goðsögnum utan úr heimi finnst mér Audrey Hepburn standa upp úr, alltaf. Svo óendanlega fallega klædd og elegant. Úr nútímanum finnst mér Kate Moss oft flott og svo er ég heppin að eiga vinkonur sem eru mjög inspírerandi á þessu sviði. amb@frettabladid.is Myndi vilja búa með Mary Poppins ÞRIÐJA GRÁÐAN FULLT NAFN: ELVA DÖGG MELSTEÐ FÆÐINGARÁR: 1979 Á HUNDAVAÐI: Mjólkaði kýr og keyrði traktor svo árum skipti, eldabuska í eldhúsinu á Rúv, blaðamaður, fegurðardrottning (ótrúlegt en satt), fyrirsæta, bjölluspilari, lottókynnir, klar- ínettuleikari og kórsöngvari, framkvæmdastjóri í ljósmynda- stúdíói MAGG. ELVA DÖGG MELSTEÐ, FRAMKVÆMDASTJÓRI FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.