Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 6

Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 6
6 8. desember 2007 LAUGARDAGUR KJÖRKASSINN F í t o n / S Í A Tónlist í símann Milljón íslensk og erlend lög sem þú getur eignast Gríptu augnablikið og lifðu núna Sony Ericsson V640i Lipur og nettur Walkman tónlistarspilari. 3G, EDGE, 256 Mb minniskort. Fer á netið með Vodafone live! Fæst í "Havana Gold" og svörtu. Fæst eingöngu hjá Vodafone. 19.900 kr. STJÓRNMÁL „Opinber birting upp- lýsinga úr álagningarskrám í fjöl- miðlum orkar tvímælis,“ segir Persónuvernd í umsögn um laga- frumvarp sem miðar að því að opinberri birtingu álagningar- skráa og skattskráa verði hætt. Persónuvernd segir í umsögn sem fyrst var gefin í fyrra en ítrekuð fyrir nokkrum dögum að hafa verði í huga að álagningar- skrár geymi ekki endanlegar upp- lýsingar um tekjur manna heldur séu þær bráðabirgðaskrár. Upp- lýsingar í þeim séu í mörgum til- vikum ekki réttar. Í því sambandi verði að líta til 7. greinar laga um persónuvernd og meðferð per- sónuupplýsinga. „Þar er kveðið á um þá grund- vallarreglu að við meðferð per- sónuupplýsinga skuli þess gætt að þær séu áreiðanlegar og uppfærð- ar eftir þörfum; óáreiðanlegar eða ófullkomnar upplýsingar beri að afmá eða leiðrétta,“ segir í umsögn Persónuverndar, sem kveðst ekki hafa athugasemdir við efni frum- varpsins enda samrýmist það sjón- armiðum um einkalífsvernd. Álagningarskrár eru í dag aðgengilegar almenningi á skatt- stofum í tvær vikur eftir að álagn- ingu lýkur. Mega fjölmiðlar birta upplýsingar úr þeim á þessu afmarkaða tímabili. Verði frum- varpið að lögum mun þessi opin- bera birting leggjast af. Frum- varpið var fyrst lagt fram árið 2005 af níu alþingismönnum Sjálf- stæðisflokks. Tímaritið Frjáls verslun hefur um árabil gefið út ritið Tekjublað- ið með upplýsingum um launatekj- ur valinna hópa. Útreikningar tímaritsins eru byggðir á álagn- ingarskrám. „Við værum ekki að gefa þetta út nema það samrýmdist okkar skoðunum um birtingu á þessum upplýsingu,“ segir Jón G. Hauks- son, ritstjóri Frjálsrar verslunar. Jón segir Tekjublaðið auka nauð- synlegt gegnsæi á vinnumarkaði. „Þetta er sterkt tæki gegn launa- leyndinni sem að mati margra hefur haldið launum niðri hjá til dæmis konum. Þarna eru líka upp- lýsingar um hverjir standa undir samhjálpinni með sköttum. Við höfum einnig talið að þessar upp- lýsingar komi í veg fyrir gróusög- ur um það til dæmis að hinir og þessir borgi enga skatta þrátt fyrir að berast á,“ segir Jón. Aðspurður kveður Jón það vera sína tilfinningu að almenningur sé hlynntur því að upplýsingar séu birtar úr álagningarskrám eins og verið hefur. „Vísbending um það er kannski salan á okkar blaði sem er vel á annan tug þúsunda ein- taka,“ segir Jón G. Hauksson. - gar Birting skattaskráa sögð orka tvímælis Persónuvernd hefur ítrekað jákvæða afstöðu til lagafrumvarps sem kemur í veg fyrir birtingu upplýsinga um skattgreiðslur einstaklinga. Ritstjóri Frjálsrar versl- unar segir almenning hlynntan birtingunni, sem auki nauðsynlegt gegnsæi. JÓN G. HAUKSSON Ritstjóri Frjálsrar verslunar. TEKJUBLÖÐIN Frjáls verslun hefur um árabil gefið út sérrit um tekjur valinna einstaklinga og Mannlíf var einnig með slíka útgáfu í sumar. FLUTNINGSMENNIRNIR Guðlaugur Þór Þórðarson, Birgir Ármannsson og Sigurður Kári Kristjánsson eru flutnings- menn frumvarps sem miðar að því að hætt verði að birta opinberlega álagn- ingarskrár frá skattstjórum landsins. M YN D /SIG U R Ð U R JÖ KU LL STJÓRNSÝSLA „Stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar er þess full- viss að úttekt Ríkisendurskoðunar leiði í ljós að við sölu fasteigna á Keflavíkurflugvelli hafi í öllu verið farið eftir lögum um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar,“ segir stjórn- in í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær. Stjórn Þróunarfélagsins segist sjálf hafa óskað eftir að Ríkis- endurskoðun gerði úttektina. Hún segir félagið hafa unnið samkvæmt skilyrðum og fyrirmælum. „Tilgangurinn með stofnun Þró- unarfélagsins var meðal annars að koma fasteignum í eigu ríkisins á Keflavíkurflugvelli sem fyrst í arð- bær borgaraleg not með það að markmiði að jákvæð samfélagsleg áhrif verði sem mest og neikvæðum áhrifum á nærsamfélagið verði haldið í lágmarki,“ segir í yfirlýs- ingunni. Þróunarfélagið hefur meðal annars verið sagt hafa selt útvöldum fasteignir á flugvallar- svæðinu án auglýsinga og verið gagnrýnt fyrir að selja án útboðs. „Þróunarfélagið hefur frá upp- hafi kallað eftir áhugasömum aðilum með hugmyndir um nýt- ingu eigna á svæðinu, meðal ann- ars með áberandi auglýsingum með vísun í upplýsandi vef félags- ins, þar sem allar óseldar eignir ríkisins á svæðinu eru kynntar og söluskilmálar tíundaðir,“ segir í yfirlýsingu Magnúsar Gunnars- sonar, Árna Sigfússonar og Stefáns Þórarinssonar. - gar Stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar segir rannsókn munu hreinsa félagið: Allt unnið eftir fyrirmælum STOFNUN ÞRÓUNARFÉLAGS Geir Haarde forsætisráðherra undirritar samning um stofnun Þróunarfélags Keflavíkurvallar í október í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNSÝSLA Árni Sigfússon bæjarstjóri krefst þess að tveir þingmenn leiðrétti ósannindi. „Atli Gíslason sagði meðal annars að Reykjanesbær væri eigandi í Háskólavöllum, sem keypt hefði 1.700 íbúðir og ég væri þar stjórnarformaður,“ segir Árni, sem kveður þetta ósatt. Reykjanes- bær eigi ekki í Háskólavöllum, hann sé þar ekki í stjórn og eigi ekki í félaginu. „Bjarni Harðarson fullyrti í ræðu fyrir alþjóð að ég ætti persónulega hluti bæði í Þróunarfélagi Keflavíkurflug- vallar og skólafélaginu Keili. Þetta eru einnig hrein ósannindi.“ Bjarni hefur tekið orð sín aftur. - gar Árni Sigfússon: Vill ósannindi um sig leiðrétt Ertu fylgjandi aðgerðum ríkis- ins í þágu öryrkja og aldraðra? Já 81% Nei 19 % SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú að mansal viðgangist á Íslandi? Segðu þína skoðun á visir.is MENNTUN Einar Skúlason, fram- kvæmdastjóri Alþjóðahúss, segir það ekki koma á óvart að nýbúa- börn komi mun verr út en íslensk börn í PISA-könnuninni, sem kynnt var í vikunni og Fréttablaðið sagði frá í gær, . Hann telur að efla þurfi íslenskukennslu og stuðning við þessi börn, til dæmis í gegnum mentorakerfið. „Allt kerfið þarf að herða sig. Við þurfum að átta okkur á því að það tekur tíma fyrir hvern og einn að tileinka sér nýtt tungumál,“ segir Einar og telur nýbúana þurfa auk- inn stuðning, til dæmis við heima- nám, því foreldrarnir séu oft ekki í stakk búnir til að veita þá aðstoð. Þá megi gjarnan búa til fyrirmynd- ir í gegnum ment- orakerfið. Hulda Karen Daníelsdóttir, kennsluráðgjafi í nýbúafræðslu, kveðst hafa áhyggjur af skól- unum, undirmönnun geti haft áhrif á skólastarfið. Hún bendir á að það taki mörg ár að ná skólamáli, miklu fyrr þurfi því að byrja að vinna með skólaorðaforða. Vinna megi markvisst með lesskilning og þjálfa kennara í kennsluháttum sem koma þessum nemendum til góða. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir það áhyggjuefni hve illa nýbúabörnin komi úr PISA-könnuninni. Íslensku- kennslan hafi verið bætt og betur sé haldið utan um íslenskukennslu í skólum. „Ég hef áhyggjur af frístunda- lestri, lesturinn heima er með allt öðrum hætti í dag en var fyrir tíu árum. Skólakerfið verður að taka mið af breyttum aðstæðum auk þess sem foreldrar geta ekki ýtt öllu yfir á skólakerfið.“ - ghs ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Frammistaða nýbúabarna í námskönnun kemur ekki á óvart: Efla þarf stuðning við nýbúabörn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.